Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 58

Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 UMHVERFISMÁL - TÍSKA FUGLINN: GARGÖND Gargönd, eða litla gráönd eins og hún er kölluð í Mývatnssveit, er fremur lítil buslönd. Hún er að öllu leyti farfugl fyrir utan fáeina fugla sem halda sig á innnesjum yfir veturinn. Gargönd finnst víða á norðurhveli jarðar en Ísland er nyrsti staðurinn þar sem þær verpa. Íslenski stofninn er fremur fáliðaður, eða 400-500 varppör. Mikill meirihluti þeirra verpir í Mývatnssveit en engu að síður finnast þær víða niðri á láglendi í mýrum, pollum og tjörnum. Steggirnir líkjast meira kollunum en þekkist hjá öðrum buslöndum. Hann er að mestu grár en brúnni á höfði og svartyrjóttur á bringu. Kollan líkist stokkandarkollum en er minni og grárri. Steggurinn gefur frá sér lágvært flaut en kollan hávært garg sem fuglinn dregur nafn sitt af. Andfuglar fella fjaðrirnar á sumrin og fara í svokallaðan felubúning. Gargandarsteggirnir verða á þessum tíma nánast óþekkjanlegir frá kollunum. Síðsumars, þegar þeir hafa endurnýjað flugfjaðrirnar, verða þeir fleygir að nýju og skarta aftur fallegum skrúðbúning á haustin. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson Efnið latex er í huga margra tengt kynlífi, smokkar koma þar sterkir inn, en einnig sem efni fatnaðar af djörfum toga, til að mynda þeirra er stunda eilítið ögrandi kynlíf. Færri gera sér e.t.v. grein fyrir því að efnið latex, ef lífrænt er – er á afar háu vistfræðilegu plani. Æ fleiri tískuhönnuðir eru að vakna til vitundar er kemur að þessum sjálfbæra valkosti í stað efna sem kennd eru við dýrahúðir eða óvistvæna f r a m l e i ð s l u - aðferð – því jú, Latex er náttúrulegt, endurnýjanlegt efni sem unnið er úr gúmmítrénu (habea brasillensis). Þar sem trén eru ekki felld við uppskeru er framleiðsla þess sjálfbær og kolefnisneikvæð. Hvítt og klístrað náttúruundur Orðið latex er samheiti yfir klístraða, mjólkurhvíta vökvann sem margar plöntur og tré framleiða til að verja sig gegn skaðvöldum, sbr. þegar börkur latexberandi plöntu skemmist, myndast latex sem svo storknar til að innsigla örið á meðan börkurinn vex aftur. Latexkvoðu er safnað með því að skera burt þunnt lag af berki gúmmítrésins þannig að sárið vísi niður á við og myndi eins konar trekt. Þar undir er skál eða einhvers konar söfnunarílát sem latexið leggst í. Í besta falli má fá allt að tveimur tonnum af þurru latexi á hektara. Efnið latex er því náttúrulegt að uppruna. Hins vegar, meðan á framleiðsluferlinu stendur, er stundum bætt við blönduna ýmsum aukaefnum úr dýraríkinu. Það er þó hægt að vera án þeirra og því best að athuga með vörumerkið þegar varan er keypt. The Hits, Balmain - Gaultier Tískuveldi á borð við Balmain og Jean Paul Gaultier státa meðal annars af fatnaði unnum úr latex – þökk sé einum aðalhönnuði Balmain, Olivier Rousteing, sem brenndi upp tískupallana haustið 2020 þar sem hann kynnti latexfatnað í bland við kasjúal. Á tískuviku Parísarborgar svo nýverið, við kynningu hausts/vetrar 2022-23 kom í ljós að gestahönnuður Jean Paul Gaultier í ár var einmitt Olivier Rousteing. Hefur samstarf veldis Gaultier við aðra hönnuði eignast fastan sess í tískuvikunni, en sú ákvörðun var tekin árið 2020, er Jean Paul sjálfur settist í helgan stein. Vakti haustlínan undir stjórn Oliviers – sem nefnd var The Hits – mikla athygli, en auk latexáhrifa, voru smáatriði við saumaskap fatnaðarins einkenni Balmain. Áhuga vakti að sjálfur Gaultier kaus að koma ekki að samstarfinu á neinn hátt, heldur er að sýningunni kom sat hann þar á fremsta bekk og létu fréttamiðlar hafa eftir sér að þessi jöfur tískuveldisins hafi fagnað heil ósköp. Hlaut Olivier mikið lof fyrir sýninguna, en gríðarlega ógnvekjandi verkefni er að vera gestahönnuður hins mikla meistara Gaultier. Tók Olivier skemmtilegt tvist á tískuna, en hann, eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna, tók þekktustu hönnun Gaultier og gerði að sinni. Þar má meðal annars telja korsett og „keilulaga“ brjóstahaldara eins og söngkonan Madonna gerði fræga um árið – og reyndar mátti þarna líka sjá annað dæmi fatnaðar er hún bar með stolti 30 árum áður. Þó þarna væri um staðlaða og sterka hönnun að ræða voru tvímælalaus áhrif Oliviers sýnileg. Til dæmis ef latexið er sérstaklega tekið fyrir – í buxnadragt úr brúnu latexi, gegnsæjum efri part kjóla og korselett úr latexi þar sem karlmannslíkami var fyrirmyndin þó um kvendragt væri að ræða. Gaman er að geta þess að Jean Paul Gaultier er einn fyrstu er ögruðu með tvíræðri línu milli kynja í fatahönnun sinni. Eitt hið heitasta nú í ár Þykir efnið latex sem sagt eitt það heitasta nú í sumar og með haustinu og er Versace meðal þeirra tískuvelda sem láta ekki sitt eftir liggja. Christopher Kane þykir djarfur í þessum efnum svo og sérstaklega breski hönnuðurinn Richard Quinn. Vilja sumir meina að til móts við þá tísku er fjallað var um hér fyrir nokkru undir heitinu „Barbicore“ megi hér finna „Fetishcore“. Eitt er víst að latex er, ef vel er að staðið, gæðaefni og jafnvel eitthvað sem almúginn ætti að kynna sér betur. /SP Sjálfbær gæðavara: Latex fyrir alla Að ofan til hægri er dæmi um hvernig latexi er tappað af tré. Til hliðar má svo sjá latex-hönnun Oliviers Rousteing og Richard Quinn. Madonna íklædd hönnun JPG árið 1992 og útfærsla Olivier Rousteing 30 árum síðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.