Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 9

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 9
1. KONA NOKKUR á Austurlandi spurði verkamann, sem var að binda járn í nýbyggingu: „Til hvers eruð þið með allt þetta j árn ? Það hverfur hvort sem er allt undir steypu.“ 2. SVEINBJÖRN HERMANSEN vann lengi á skrif- stofu Bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Hann var drykkfelldur, en þó mjög hæfur starfsmaður. Skrifstofustjóri við embætti bæjarfógeta hét Jó- hann, en gekk manna á meðal undir nafninu Jói rúsína. Eitt sinn, er Sveinbjörn hafði verið á löngu fylliríi, en var mættur aftur til vinnu, enda þótt heilsan væri af eðlilegum ástæðum mjög bágborin, hundskamm- aði Jóhann hann fyrir það hátterni að mæta ekki til vinnu vegna drykkjuskapar. Þegar Jóhann virtist hafa rasað út, leit Sveinbjörn á hann og sagði síðan með brúsandi hægð: „Ég held nú bara, að þú sért að verða að sveskju.“ 3. INGVAR BJÖRNSSON, lögfræðingur, sat eitt sinn að spjalli við kunningja sína. Talið barst að efnuðum manni, sem var nýlátinn. Voru menn ekki á eitt sátt- 7

x

Íslenzk fyndni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.