Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Blaðsíða 14
13.
ÞÓRÐUR GUÐJOHNSEN er þekktur maður í
bæjarlífinu í Reykjavík. Þórður þykir drykkfelldur,
en er greindur vel og orðheppinn. Hann þarf oft að
„slá“ fyrir víni á börum borgarinnar, en fer þá yfir-
leitt skemmtilega að því. Ein aðferð hans er sú að
standa upp síðla kvölds og tilkynna: „Aðdáendur
mínir, nú hefst seinni sláttur.“
14.
EITT SINN, er Þórður var staddur á barnum á
Hótel Borg, kom til hans maður og bað hann um pen-
ing.
Þórði þótti þetta kyndugt, horfði lengi á manninn,
en sagði síðan: „Þér hljótið að vera utanbæjarmað-
ur.“
15.
ÞEGAR SVERRIR heitinn Kristjánsson sagnfræð-
ingur var jarðaður, hélt Guðmunda Elíasdóttir, ekkja
hans, veglega erfidrykkju, þar sem kaffi og brauð
voru á boðstólum.
Þórður Guðjohnsen var þar, enda voru þeir Sverrir
góðkunningjar.
I miðri erfidrykkjunni sneri Þórður sér að ekkj-
unni og sagði: „Það hefðu verið aðrar veitingar hér,
Guðmunda, ef Sverrir hefði fylgt þér til grafar.“
16.
I MIKILLI drykkjuveislu í Reykjavík fyrir nokkr-
um árum gerðist það, sem ekki er fátítt, að einn gest-
anna þurfti að kasta upp.
12