Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Blaðsíða 33
Guðmundur afþakkaði boðið með svofelldum rök-
um:
„Túr getur alltaf brugðist, en hér bregst mér
aldrei dagur.“
60.
NOKKRU EFTIR að Þorsteinn Löve kringlukast-
ari varð uppvís að því að nota of létta kringlu í
keppni hittust þeir Þorsteinn og Guðmundur stofn-
auki á Röðli.
Þorsteinn bauð Guðmundi upp á vínglas.
„Nei, þakka þér fyrir,“ svaraði Guðmundur, „ég
er nú í eins konar matarkúr, og lifi bara á kringlum
og öðru léttmeti.“
61.
I HEILSUFRÆÐITlMA hjá 12 ára stúlkum á Pat-
reksfirði var námsefnið kynlíf, samband karls og
konu, og hvernig barn verður til.
Kennarinn, sem var karlmaður, hugðist fræða
stúlkurnar tæpitungulaust um þessi mál og komst svo
að orði:
„Eg ætla að reyna að útskýra þetta fyrir ykkur
eins og ég get, en því miður hef ég engin tæki til að
sýna neitt.“
62.
ÞAÐ VAR á stríðsárunum, skömmu fyrir stofnun
íslenska lýðveldisins, að nokkrir leiðtogar jafnaðar-
manna sátu yfir kaffibollum í Ingólfscafé og ræddu
um væntanleg sambandsslit við dani.
31