Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Blaðsíða 36
68.
ÞEGAR BJARNI GUÐNASON klauf sig út úr
Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, sat hann
áfram á þingi og var þá einn í þingflokki.
Hannibal Valdimarsson, þáverandi ráðherra, var
einhverju sinni að flytja ræðu í þinginu, sem Bjarni
hafði eitthvað við að athuga. Greip hann hvað eftir
annað fram í fyrir ræðumanni með ýmsar aðfinnslur
og gagnrýni.
Hannibal sýndi þolinmæði fyrst í stað, uns honum
leiddist þófið og kallaði út í salinn: „Ég vil biðja
þingflokkinn að halda sér saman.“
69.
DAVÍÐ nefnist maður, fljóthuga og málugur.
Þegar Davíð segir frá, verður frásagnarmátinn oft
nokkuð furðulegur. Eitt sinn var hann að segja frá
slagsmálum. Þegar hann hafði lýst þeim nokkuð ræki-
lega, spurði einn áheyrenda hvernig þeim hefði lykt-
að.
Davíð svaraði að bragði: „Það steinlá hvorugur."
70.
EITT SINN hafði Davíð farið í veiðiferð vestur
á Firði. Þegar hann var að segja vinnufélögum sínum
frá ferðinni, spurði einn þeirra hvaða vatn þetta
hefði verið, og lét þess getið um leið, að lítið mundi
um veiðivötn á þeim slóðum, sem Davíð hafði verið á.
Davíð gaf þá eftirfarandi lýsingu á vatninu: „Það
er voðalega lítið. Það sést varla. Það er blindur mað-
ur, sem á það.“
34