Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Blaðsíða 35
65.
Á VÉLRITUNARPRÓFI í Verslunarskólanum fyr-
ir allmörgum árum gerðist það í miðju taugastríðinu,
að nemandi einn kallaði hátt yfir allan hópinn:
„Hvar er nú eiginlega r-ið?“ Það þarf ekki að taka
það fram, að prófinu var frestað um óákveðinn tíma.
66.
FYRIR ALLMÖRGUM ÁRUM voru þýskir ferða-
menn að skoða sundhöllina í Reykjavík, sem þá hafði
nýlega verið tekin í notkun.
Kunnur sundkappi, sem var sundlaugarvörður, tók
að sér leiðsögn þjóðverjanna. Hann hóf mál sitt á
þessum orðum: „Please, go denne vej. Here has we
einen sturtenbaden.“
67.
HANNIBAL VALDIMARSSON var eitt sinn í
Kaupmannahöfn í opinberum erindum ásamt fleiri
alþingismönnum. Þetta var á þeim árum, sem Gunn-
ar Thoroddsen var sendiherra í Höfn og bauð hann
þingmönnunum til veislu skömmu áður en þeir héldu
heim. Þá var orðið altalað, að Gunnar hygðist bjóða
sig fram til forseta.
Veislan þótti takast hið besta, og á leiðinni heim
á hótel sagði einhver þingmannanna við Hannibal,
sem lék á als oddi: „Þú kýst nú Gunnar, ef hann býð-
ur sig fram.“
„Það veit ég ekkert um,“ svaraði Hannibal, „en ég
kýs Völu.“
33