Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Blaðsíða 13
Mikill fjöldi fólks var kominn saman á flugvellin-
um til þess að votta hinum látna virðingu sína. Þar
voru meðal annarra nokkrir framámenn Alþýðu-
flokksins á staðnum.
Þegar Gylfi steig út úr vélinni vék hann sér að
einum flokksbræðra sinna, heilsaði honum virðulega
og sagði hrærður: „Þetta er nú kannski einum of
mikil fyrirhöfn."
„Við erum nú að taka á móti öðru líki,“ svaraði
hinn.
11.
EINS OG KUNNUGT ER heita íþróttafélögin í
Vestmannaeyjum Þór og Týr.
I barnaskólanum var kennarinn eitt sinn að spyrja
ellefu ára nemendur út úr í goðafræðinni.
„Vitið þið, hver var æðstur allra goða?“ spurði
hann krakkana. Eftir langa þögn svaraði einn strák-
urinn: „Er það Þór?“ Kennarinn hristi höfuðið. „Er
það kannski Týr?“ kallaði þá annar strákur.
Þegar kennarinn svaraði því líka neitandi, gall við
í þeim þriðja:
„Er það ekki bara ÍBV?“
12.
JÓN BALDUR, 4 ára gamall, var smámæltur og
gat meðal annars ekki sagt s. Pabbi hans var sköll-
óttur.
Eitt sinn sagði systir hans, 6 ára, upp úr þurru:
„Guð gefur mönnunum hár.“
„Já, og líka galla,“ bætti Jón Baldur við.
11