Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Blaðsíða 12
mjög illa, enda naut hann bóta og hafði nægan tíma
til þess að hugsa og spjalla við menn.
Vorið 1969 batnaði ástandið á vinnumarkaðnum
mjög verulega og var sýnt að atvinnuleysinu yrði
brátt útrýmt. Þá varð Pétri að orði:
„Það ætlar bara alveg að detta botninn úr þessu.“
8.
JÓN var kyndugur, en greindur karl. Á stríðsár-
unum fylgdist hann vel með styrjaldarfréttunum og
hafði gaman af að ræða um gang ófriðarins.
Jón bar öll erlend nöfn mjög skringilega fram. Til
dæmis kallaði hann Churchill oftast „Skörkul".
Þegar Haile Selassie, sem þá nefndist ras Tafari
og Geraldine kona hans flúðu undan Itölum sagði Jón
frá því á eftirfarandi hátt:
„Nú eru þau flúin, Rass í fari og Geralltíana
drottning."
9.
MAÐUR NOKKUR, sem lengi hafði átt í miklu
basli, kom eitt sinn til kunningja síns, glaður í bragði
og sagði: „Nú lentum við hjónin í óvæntu happi.
Henni var nauðgað og við erum búin að fá vel borg-
að fyrir.“
10.
GYLFI Þ. GÍSLASON fór eitt sinn á Alþýðuflokks-
fund, sem haldinn var á Patreksfirði. Svo vildi til að
mikils metinn patreksfirðingur hafði látist í Reykja-
vík, og var kista hans flutt með sömu flugvél og
Gylfi flaug með vestur.
10