Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 24
ar, þar sem hlustunarskilyrði voru misjafnlega léleg,
og brenglaðist því margoft á leiðinni.
Þegar Grímseyingum barst loks skeytið, hljóðaði
það svo: „Hengið prestinn. Biskup.“
38.
NEMENDUR eins bekkjar Menntaskólans í
Reykjavík voru að byrja að lesa Snorra-Eddu.
1 upphafi fyrsta tímans kom einn nemandinn að
máli við kennarann og sagði honum, að því miður
hefði sér ekki tekist að ná í Snorra-Eddu, en spurði
svo, hvort hann gæti ekki bara notast við Sæmundar-
Eddu.
39.
ÞÓRÐUR GUÐBJARTSSON á Patreksfirði er
hægur og meinfyndinn í tilsvörum. Hann var eitt
sinn spurður um líðan gamals manns, sem átti við
slæma heilsu að stríða. „Er hann lifandi hann
Brynki ?“
„Það tel ég varla,“ svaraði Þórður með hægð.
40.
ÞÓRÐUR er lítill prestavinur og telur þá ekki
vinna mjög þarft verk í þjóðfélaginu.
Eitt sinn, er unnið var við uppskipun á Patreks-
firði, og menn vantaði til vinnunnar, sendi verkstjór-
inn Þórð upp í pláss til að reyna að finna menn.
Þórður fór beint til prestsins á staðnum og sagði:
„Þá vantar menn í uppskipun, og mér datt í hug, að
það væri ekki mikið að gera hjá þér.“
22