Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 42

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 42
Á jólum var Jón vanur að gefa starfsmönnum sín- um myndarlegar jólagjafir. Ein jólin fengu allir eitthvað, nema Bogi. Einhver hafði orð á þessu við Jón, og spurði hvers vegna Bogi fengi enga jólagjöf. „Hann sér um sig,“ svaraði Jón hægt og myndug- lega. 84. ÞORSTEINN I BRISTOL og Gunnar frá Selalæk voru þekktir kvennamenn á sínum tíma. Eitt sinn hittust þeir í Bankastræti á leið niður í bæ. Þeir komu sér saman um, að í hvert sinn er þeir mættu konu, sem þeir hefðu sofið hjá, skyldi Þorsteinn segja „damm“ en Gunnar „digg“. Leiknum átti svo að ljúka við Hótel Island, sem stóð við Aðalstræti. Þeir lögðu svo af stað, mættu mörgum fallegum konum og sögðu til skiptis „damm“, „digg“, „damm“, „digg“ alla leiðina. Þegar þeir komu að hótelinu stóðu leikar hnífjafnir. Þá hittist svo vel á fyrir Þorstein, að kona hans og dóttir voru staddar í anddyrinu. „Damm“, þrum- aði Þorsteinn sigri hrósandi. „Digga digg“, kvað þá við hjá Gunnari. 85. SVAVAR GESTSSON, ritstjóri, gifti sig í kirkju að ósk tengdaforeldra sinna. Þegar athöfninni í kirkj- unni var lokið, vék Svavar sér að tengdaföður sínum og sagði hátt: „Þennan andskota geri ég aldrei aftur." 40

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.