Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Síða 46

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Síða 46
í bridds. Svo vildi til að gestur úr Reykjavík var staddur í næsta húsi. Hann var góður briddsmaður og bættist í hópinn og var nú spilað fram á nótt. Nokkrum dögum seinna frétti Valbjörg lát þessa manns. Henni varð þá að orði: „En hvað þetta er skrýtið. Það eru ekki nema þrír dagar síðan ég var að spila við líkið.“ 95. EINHVERJU SINNI, þegar litla vinnu var að hafa við höfnina kom maður frá Pósti og síma niður á gamla verkamannaskýlið, þeirra erinda að ráða menn til að grafa fyrir kapli við símstöðina, sem verið var að reisa við Múlakamp. Meðal annarra, sem boðin var vinna, var verka- maður, er hafði orð fyrir að vera hirðusamur úr hófi, þegar hann vann við uppskipun. Hann var tregur til að taka þessu starfstilboði, en lét þó að lokum tilleiðast. Þegar komið var á vinnustaðinn, sneri hann sér að starfsfélögum sínum, tilvonandi, og sagði: „Ég vek athygli ykkar á því piltar, að hér er það bara kaupið klippt og skorið.“ 96. GUÐMUNDUR HANNESSON, sem lengi var bæj- arfógeti á Siglufirði, var maður afskaplega kurteis, en þótti oft nokkuð utan við sig. Á bæjarfógetaárum Guðmundar var það ekki fátítt að Siglfirðingar hefðu geitur sem húsdýr. 44

x

Íslenzk fyndni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.