Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 55

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 55
117. Á ÞORRABLÓTI fyrir nokkrum árum voru meðal annars súrsaðir hrútspungar á borðum, svo sem títt er í slíkum samkvæmum. Þegar kona ein, Heiða að nafni, fékkst ekki til að éta hrútspungana, var þetta ort: Kom á penar konur hik. Kynfæri voru súr á borðum. Heiða vildi þau heldur kvik, þó hermdi það ekki berum orðum. 118. LEIRULÆKJAR-FÚSI kom á bæ á Snæfellsnesi og bað um að sér yrði gefin mysa að drekka. Húsfreyjan, sem var ein heima með kornabarn, kvað það sjálfsagt, ef hann gætti barnsins meðan hún sækti drykkinn, en bað hann um leið að hafa nú ekkert ljótt yfir barninu. Þegar konan kom inn aftur var Fúsi að kyrja eftir- farandi vísur: Verður þegar vits færð gætt að varast þínar hendur. Það er gjörvöll þjófaætt, það sem að þér stendur. Faðir og móðir furðu hvinn, frændur og vinir bófar. ömmur báðar og afi þinn, allt voru þetta þjófar. 53

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.