Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 58

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 58
Allt er kalið undir mér í þeim svala vindi. Hún svaraði: Mig að fala ónýtt er, ungan hal þótt fyndi. 124. DEILUR ÞÆR, sem urðu milli kaupfélagsstjórans á Selfossi, Odds Sigurbergssonar, og allmargra starfsmanna kaupfélagsins, eru mönnum enn í fersku minni. Eftir að sættir höfðu tekist orti Kristján Jóhanns- son: Eflaust skilja eftir brodd örvar í slíkri brýnu. En brotið hefur Oddur odd af oflætinu sínu. \ 125. NOKKRU EFTIR hið fræga geðveikismál var Jón- as frá Hriflu á kosningafundi á Seyðisfirði. Meðan Jónas var að halda ræðu, gall við maður, er Brynjólfur hét: „Hlustið ekki á manninn. Hann er geðbilaður." Jónas svaraði að bragði: „Já, geðveikina, hana er hægt að lækna, en heimskan, hún er ólæknandi." Svarið vakti mikinn fögnuð, og skömmu síðar komst þessi vísa á kreik: Ekki er Brynki alveg frá, er þó nærri strandi. 56

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.