Fréttablaðið - 26.10.2022, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 26. október 2022
Halldóra Skúladóttir hefur beitt sér síðustu ár fyrir bættri kvenheilsu og stór hluti af vinnu hennar snýr að breytingaskeiðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Breytingaskeiðsvænn
vinnustaður næsta skref
Halldóra Skúladóttir hefur síðustu ár staðið fyrir vitundarvakningu um breytingaskeiðið,
mýturnar um það og afleiðingarnar sem ranggreining á því getur haft í för með sér. 2
Umhverfismengun getur haft áhrif á
tíðahvörf. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Efni í plasti og öðrum umbúðum
geta truflað hormónajafnvægi
líkamans. Þetta geta verið hlutir
sem við notum á hverjum degi, allt
frá plastumbúðum til farða. Talið
er fullvíst að hormónatruflandi
efni geti haft áhrif á frjósemi fólks.
Fjöldi rannsókna sem gerðar hafa
verið hefur sýnt fram á að ófrjósemi
megi rekja til umhverfismeng-
unar. Sömuleiðis sýnir bandarísk
rannsókn að efnin geti haft áhrif á
að konur fari snemma á breytinga-
skeið. Konur sem voru með mikið af
hormónatruflandi efnum í líkam-
anum fóru tveimur til fjórum árum
fyrr í tíðahvörf en aðrar konur.
Draga skal úr plastnotkun
Bandarískir vísindamenn tóku
blóð- og þvagsýni hjá hópi kvenna
víðs vegar um landið. Þeir leituðu
eftir efnum sem vitað er að hafi
hormónatruflandi áhrif. Vísinda-
menn komust að því að 15 efni
tengdust snemmtíðahvörfum.
Þessi efni geta leitt til þess að starf-
semi eggjastokka skerðist fyrr.
Skert virkni í eggjastokkum er
ekki aðeins vandamál fyrir frjó-
semi heldur getur hún leitt til þess
að hjartasjúkdómar, beinþynning
og önnur heilsufarsvandamál
þróist fyrr.
Á undanförnum árum höfum
við dregið úr notkun plasts en enn
notar fólk mikið af plastílátum.
Fólk ætti til dæmis að nota gler
í stað plastboxa þegar matur er
hitaður í örbylgjuofni. n
Eiturefni hafa
áhrif á tíðahvörf
HEILAÞOKA?
Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is
AUKIN ORKA
OG FÓKUS