Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Page 11

Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Page 11
9 Vatnsvirkni í fóðri getur verið breytileg, þótt rakastigið sé hið sama. Við alia geymslu þurrmetis skiptir miklu máli, hver vatnsvirkni þess er. Geymsluhæfnin byggist einkum á því, að vatnsvirknin sé nógu lítil - að vatnið sé gert óvirkt að mestu. Vatnsvirkni í tilteknu efni segir til um þrýsting vatnsgufunnar í því, og er þannig nátengd rakastigi loftsins. Vatnsvirknin er gefin til kynna með hlutfallstölum. Mælist þrýstingur vatnsgufu í heytuggu t.il dæmis 8096 af þeim sem hann er yfir vatnsyfirborði við sama lofthita, er vatnsvirknin í heytuggunni 0,8 eða 80%. 1. mynd sýnir samhengi á milli rakastigs og vatnsvirkni í íslensku heyi (2). 1. mynd. Tengsl rakastigs og vatnsvirkni í heyi. a og b er hey ór hlöðum, c er hey á velli (2). Sé vatnsvirknin minni en 0,9 þrífast gerlar að öðru jöfnu ekki. Fari hún niður fyrir 0,8 sverfur mjög að myglusveppunum, og þegar vatnsvirkni er komin niður fyrir 0,6-0,7 er grundvöllur tilvera flestra lífvera brostinn. Þannig fækkar lífverunum, sem þrifist geta, eftir því sem vatnsvirknin í umhverfinu verður minni. Þetta má sjá á 2. mynd, sem einnig sýnir áhrif umhverfishitans á þrif lífvera í korni (3).

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.