Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Blaðsíða 78
76
II. Efniviður og aðferðir
Alls rannsökuóum við 138 hesta. Fyrst tókum vió til
rannsóknar 18 heilbrigóa hesta (hópur A) og 15 hesta sem
sannanlega höfóu heymæói (hópur B) . Þvi næst tókum vió til
rannsóknar 10 skyldleikaræktaða hesta (hópur C) og 13
kynræktaða eóa innræktaóa hesta (hópur D) , en svo nefnum vió
hesta sem ræktaóir eru með tilliti til kynfestu fjölþættra
eiginleika kynstofnsins (litur, lund, bygging, ganghæfileikar
o.fl.). Aó siðustu athuguðum vió fellimótefni i sermi 82
ættbókarfæróra graóhesta (hópur E).
Blóðsýni voru tekin úr hálsæö og fellipróf voru gerð á
ofnæmissjúkdómadeild Sahlgrens spitala í Gautaborg og á
Tilraunastöóinni á Keldum. Voru geró fellipróf fyrir
geislabakteriunum Micropolyspora faeni og Thermoactinomyces
vulgaris og sveppunum Aspergillus fumigatus, Alternaria,
Penicillium og Rhizopus.
Leitað var upplýsinga um sjúkdóma, einkum lungnasjúkdóma.
Litið var á holdafar hesta, hey, loftræstingu og annan aðbúnaö
og hestar sem voru veikir voru skoðaóir sérstaklega.
III. Nióurstöður
1 1. töflu eru sýndar nióurstöður felliprófa á blóðsýnum
úr hinum mismunandi tilraunahópum.
Enginn hestanna i hópi A (friskir hestar) hafói með vissu
mótefni i sermi (jákvætt fellipróf). Hestarnir i þessum hópi
voru á aldrinum 3-16 vetra (meóalaldur 8,2 ár) . Þeir voru
aldir á góöu heyi og i góóum holdum. Einnig var loftræsting
góó i þeim húsum sem hestarnir voru i.
Heyveiku hestarnir 15 i hópi B voru á aldrinum 5-20
vetra. Var meóalaldur þeirra 10,7 ár eóa heldur hærri en
hestanna i hópi A. Þessi munur var þó ekki tölfræðilega
marktækur. Allir hestarnir í þessum hópi höföu mótefni i
sermi gegn M.faeni, einn hestur hafði aó auki mótefni gegn
sveppnum Rhizopus og annar veika svörun fyrir A.fumigatus.