Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Blaðsíða 49
47
gagnlegasta meðferðin. Engin meðferð er þó til sem læknar sjúkdóminn, aðeins
er um að ræða að halda einkennum niðri.
IV. Heysótt
1. Skilgreining: Heysótt er bólgusjúkdómur í lungnablöðrum og smæstu loft-
vegum, sem stafar af ofnæmi.
2. Orsök: Ofnæmisvaldurinn er Micropolyspora faeni, hitaelsk baktería,
sem vex best við 55 - 60°C og myndar gró sem eru 1 til 2 micron í þvermál,
en agnir af þeirri stærð smjúga alia leið niður í lungnabiöðrur. Ofnæmis-
valdar sem valda ofnasmiskvefi og astma eru miklu stærri og setjast því ofar
í loftvegi, og ná ekki niður í iungnablöðrurnar.
3. Einkenni: Einkenni byrja 4 - 8 klst. eftir vinnu í heyi. Þau eru hiti,
mæði og hósti. Þessi einkenni eru svipuð og sjást við lungnabólgu. Þau
lagast á nokkrum dögum ef aðeins er unnið í heyi í eitt skipti. Ef lengi
er unnið í heyi eru þessi veikindi varanleg og tekur margar vikur að
læknast eftir að hætt er slíkri vinnu. Ef unnið er árum saman í heyi verða
varanlegar lungnaskemmdir, sem ganga ekki til baka þótt slíkri vinnu sé hætt.
Annars hverfa þessi einkenni framan af alveg á sumrin.
4. Greining: Greiningin byggist á sjúkrasögu. Fellipróf gegn M.faeni hjáipar
lítið til við greiningu. Það mælir þó gegn heysótt ef þau eru ekki til
staðar. Blásturspróf er skert og lungnamynd afbrigðileg við þennan sjukdom.
Stundum getur þurft að taka sýni úr lunganu til að staðfesta greiningu.
Einnig kemur til greina að láta sjúkling vinna í mygluðu heyi til að
framkalia einkenni, sem þá telst sönnun sjúkdómsins.
5. Meðferð: Rykvarnir eru þýðingarmiklar. Hér þarf fínni grímur en við þá
sjúkdóma sem áður eru taldir þar sem ofnæmisvaldurinn er miklu smærri í
þvermál. Það getur því verið erfitt að vinna með slíkar grímur. Barksterar
flýta fyrir bata en lækna í sjálfu sér ekki sjúkdóminn. Hann er í reynd
ólæknandi.
V. Langvinnt berkjukvef
1. Skiigreining: Þetta er sjúkdómur í berkjum, sem lýsir sér með hosta og
uppgangi í a.m.k. 3 mánuði á ári samfleytt, 2 ár í röð. Aðrir langvinnir
iungnasjúkdómar eru útiiokaðir með lungnamynd, en hún er eðlileg við þennan