Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Blaðsíða 38
36
lítið af lifandi maurum. I rakara heyi voru fleiri maurar, og
þvi rakara sem heyið var, þvi fljótari voru maurarnir að
fjölga sér, eftir að heyið var komið í hlöóu.
Þaó að maurafjöldinn stjórnast af vatnsvirkni heysins, hefur
bæði kost og galla. Kosturinn er sá, að þarna er aðferð til
aó halda maurunum i skefjum. Aðeins þarf að sjá til þess, aó
vatnsvirkni heysins fari ekki yfir 73 % , meðan það er geymt i
hlöðunni. Gallinn er aftur á móti, að loftraki á íslandi er
yfirleitt á bilinu 78 - 84 % , og vatnsvirkni heysins leitast
við að fylgja loftrakanum.
Helsta leiöin til að halda maurunum i skefjum, er að þurrka
heyið með upphituðu lofti. Það er dýr lausn. Aðrar leiðir
eru að nota eingöngu súrhey, eða geyma hey i lofttæmdum
umbúðum. Allar þessar þrjár aðferðir til að losna við maura
eiga það sameiginlegt, að þær hindra mygluna, sem maurarnir
lifa á, i að vaxa. Halda mætti, að einfaldast væri aö nota
eitur til að útrýma maurunum, en málið er ekki svo einfalt. I
fyrsta lagi er það tæknilega erfitt, og einnig er ýmislegt sem
bendir til, að i röku heyi séu mauranir til gagns, þvi án
þeirra myndi heyið breytast i myglukökk.
Eina ráðið, sem hægt er að gefa bændum sem nota þurrhey, er að
reyna að halda maurafjöldanum i skefjum með þvi aó þurrka hey-
ið sem best og jafnast, og fylgjast með vatnsvirkni (hlut-
fallslegu rakastigi) heysins með hárrakamæli. Enn er ekki
vitað nákvæmlega hvernig best er að geyma hey til að hættan af
ofnæmisvöldum verði sem minnst. Gera þarf frekari tilraunir,
sem sýna samhengið milli verkunar og geymslu heys annarsvegar,
og hve mikið af ofnæmisvöldum þyrlast upp þegar hreyft er við
heyinu hinsvegar.