Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Side 47

Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Side 47
45 ÖNDUNARFÆRAS3ÚKDÓMAR TENGDIR VINNU í HEYI Á ÍSLANDI Tryggvi Ásmundsson, Davíð Gíslason og Vigfús Magnússon Vífilsstaðaspítala og Landspítala I: Inngangur Að minnsta kosti 5 sjukdómar í öndunarfærum tengjast vinnu í heyi á íslandi. Þeir eru: 1. Ofnæmiskvef (Rhinitis allergica). 2. Asthmi. 3. Heysótt ("Farmers lung") 4. Langvinnt berkjukvef (Bronchitis chronica) 5. Lungnaþemba (Emphysema). Ekki er óalgengt að sami einstaklingur þjáist af fleiri en einum slíkum sjukdómi samtímis eða síðar á lífsleiðinni. Allir þessir sjúkdómar að hey- sótt undanskilinni eru reyndar algengir hjá fólki sem aidrei kemur í hey. Lagt hefur verið til að orðið heymæði sé notað sem safnheiti yfir sjúk- dóma 2-5 þegar þeir tengjast vinnu í heyi, en allir valda þeir mæði. Hinsvegar er lagt til að endurvekja hið forna nafn heysótt yfir ákveðna sjúkdomsmynd, sem lýsir sér með sótthita. Sveinn Pálsson notaði það heiti þegar hann lýsti þeim sjúkdómi fyrstur manna á prenti í hei/ninun að því er best er vitað (2). Hér á eftir verður leitast við að að lýsa þessumsjúkdónum stuttlega, drepa a einkenni þeirra, greiningu og meðferð, en þar verður aðeins stiklað á stóru. II. Ofnæmiskvef 1. Skilgreining: Sjúkdómur í slímhúð efri loftvega og augna, sem stafar af ofnæmi. 2. Orsakir: helstu ofnæmisvaldar í heyi eru: Heymaurar, frjókorn ,musahár og þvag. 3. Einkenni: þau byrja fljótt, venjulega innan hálfrar klukkustundar

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.