Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Side 73

Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Side 73
71 mynda síður fellimótefni og hvort þetta þyðir að þeir njóti einhverrar verndar gegn heysótt er ekki vitað. Niðurstöður blásturspófa syna að teppa (obstruction) var algengari hjá bændum á Suðurlandi en á Ströndum og mun algengari en fundist hefur i hóprannsóknum Hjartaverndar. Lungnateppa er algeng við heymæði og hjá heysóttarsjúklingum hefur einnig verið íyst óeðlilegu histamin og metakólín þolprófum. Liklegt verður að telja að færri lungnaeinkenni og betri lungnastarfsemi bænda megi rekja til votheysverkunar en há tiðni einkenna og jákvæðra felliprófa meðal bænda i Vikurumdæmi eigi rót að rekja til heyverkunaraðferða ásamt langs innistöðutima búfjár, og mikillar vinnu i peningshúsum allt árið um kring. Siðari könnun á sömu landsvæðum benti eindregið til þess að bændur rektu mjög sjaldan öndunarfæraeinkenni til vinnu i votheyi en oftast til vinnu i þurrheyi, einkum mygluðu. Aðrar heyverkunaraðferðir hafa nú nýlega verið teknar upp þar sem heyinu er pakkað i sérstakar lofttæmdar plastrúllur. E.t.v. er hér önnur aðferð til að forðast heyryk, en slikt ryk virðist nú vera einhver mesti skaðvaldur i atvinnuumhverfi Xslendinga.

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.