Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 18
TENERIFE!
SAMAN Í SÓL YFIR JÓLIN
14 DAGAR | 22. DESEMBER - 05. JANÚAR
HOVIMA JARDIN CALETA 3*
Í LA CALETA Í GÖNGUFÆRI VIÐ STRÖNDINA
ÍBÚÐ MEÐ HÁLFU FÆÐI
VERÐ FRÁ 239.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, HÁLFT FÆÐI, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
HÁLFT FÆ
ÐI
SÍÐUSTU SÆTIN YFIR HÁTÍÐARNAR
FORLAGSFJÖR Á BÓKAMESSU
• Höfundar afgreiða og árita
bækur sínar
• Föndur fyrir börnin
• Gefins plaköt og bókamerki
V i ð t ö k u m v e l á m ó t i y k k u r í H ö r p u u m h e l g i n a k l . 1 1 – 1 7
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is
Grínistinn Kirill Voronin býr
með fjölskyldu sinni í Tíblísi,
höfuðborg Georgíu. Þau eru
meðal 700 þúsund rússneskra
ríkisborgara sem hafa flúið í
kjölfar stríðsins í Úkraínu.
helgisteinar@frettabladid.is
RÚSSLAND Rússneskir grínistar
eru meðal þeirra sem flýja nú land
vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þeir
sem Fréttablaðið ræddi við vilja ekki
snúa aftur vegna kúgunar.
Þann 24. febrúar var Kirill Vor-
onin vakinn um miðja nótt á meðan
hann svaf í rúmi sínu með konu sinni
og eins árs dóttur þeirra. Úkraínskur
vinur hans, sem bjó við landamæri
Rússlands, hafði hringt í hann og
sagt að flugvöllurinn í bænum hans
hefði orðið fyrir sprengjuárás. Kirill
segir þá báða hafa verið fljóta að átta
sig á því hvað hafði gerst.
Ljóst var orðið í augum margra
Rússa og Úkraínumanna að átök
myndu brjótast út. Ríkisstjórnir
beggja landa höfðu undirritað
vopnahlé árið 2015 sem batt enda
á stórfelld átök í austurhluta Úkra-
ínu eftir fyrstu innrás Rússa. Smá-
vægilegir skotbardagar héldu engu
að síður áfram. Rússar voru með
yfir hundrað þúsund hermenn við
landamæri Úkraínu.
Kirill hafði áður starfað sem uppi-
standari í Moskvu. Í nokkur ár höfðu
margir listamenn upplifað kúgun og
ritskoðun frá stjórnvöldum.
„Við byrjuðum strax að undirbúa
brottflutning. Við sóttum samdæg-
urs um vegabréf fyrir dóttur okkar
og það tók um mánuð að fá það í
hendurnar. Í lok mars vorum við öll
komin um borð í f lugvél á leið frá
landinu,“ segir Kirill.
Að sögn Kirill er fjölskyldan mjög
ánægð í Georgíu og hyggst búa þar til
frambúðar. Hann er byrjaður að læra
georgísku og segir að heimamenn
séu mjög hlýir og móttækilegir ef
þeim er sýnd virðing. Uppistands-
ferill Kirill hefur einnig blómstrað á
ný. Hann segist skemmta fyrir bæði
heimamenn á ensku og líka á rúss-
nesku fyrir þann gríðarlega fjölda af
Rússum sem hafa flúið þangað með
honum.
Denis Smirnov er annar rúss-
neskur grínisti. Hann flúði til Istan-
búl. Hann hafði unnið í rússnesku
sjónvarpi í mörg ár og segir að þættir
hans hafi verið mjög ritskoðaðir.
Denis og kona hans höfðu íhugað
að flytja til Tyrklands og voru þau
lent þar fyrir tilviljun tveimur
dögum fyrir stríð. Denis segir þau
ekki á leið heim og að á þeim fimm
mánuðum sem hann hafi búið í Ist-
anbúl hafi hann fengið meiri aðstoð
en á sínum 30 árum í Rússlandi.
Grínistinn Oleg Denisov hefur
einnig kvatt Rússland. Oleg, sem
býr í Þýskalandi, tók þátt í Reykja-
vik Fringe hátíðinni 2021. Hann
segir langflesta vini sína frá Moskvu
hafa flúið. Þeir sem fóru snemma séu
gjarnan friðarsinnar eða hafi óttast
ofsóknir.
Oleg segir að herkvaðningin hafi
þrýst enn meira á fólksf lótta frá
Rússlandi. Það sé meginástæða þess
að hann og margir samlandar hans
hafi ekki snúið aftur heim. n
Grínistarnir flýja
kúgun í Rússlandi
Kirill Voronin og fjölskylda hans búa nú í Tíblísí í Georgíu. MYND/AÐSEND
kristinnhaukur@frettabladid.is
BRETLAND Hægri popúlistinn Nigel
Farage hótar nú endurkomu í bresk
stjórnmál og að hann muni gera út af
við Íhaldsflokkinn. Helsta ástæðan
fyrir þessu eru áætlanir bresku
ríkisstjórnarinnar að reyna að gera
samning við Evrópusambandið um
„svissneskt samkomulag“.
Farage, sem áður leiddi flokkana
UKIP og Brexit-flokkinn, telur að
slíkir samningar væru svik við þá
sem kusu með útgöngu Bretlands
úr Evrópusambandinu árið 2016.
Eftir að fréttir um þessar áætlanir
birtust lét Farage í sér heyra á sam-
félagsmiðlum, kallaði Rishi Sunak
forsætisráðherra „Goldman Sachs
glóbalista“ og að það yrði að „kremja
Íhaldsflokkinn fyrir þessi svik“.
Bresk stjórnvöld sjá fram á langa
efnahagskreppu, vegna orkukrepp-
unnar, af leiðinga faraldursins
og ekki síst vandamála tengdum
útgöngunni úr Evrópusambandinu.
Er ríkur vilji innan stjórnarinnar til
þess að milda það högg og komast
betur inn á samevrópska markaði.
Ólíklegt er hins vegar að Evr-
ópusambandið myndi samþykkja
„svissneska leið“ fyrir Bretland.
Sambandið er nú þegar óánægt með
fyrirkomulagið og telur Sviss fá of
mikinn aðgang að innri markað-
inum án þess að greiða nógu mikið
fyrir það. Hefur Evrópusambandið
nýlega hótað Svisslendingum undir
rós að samningunum yrði slitið.
Íhaldsmenn hafa miklar áhyggjur
af hugsanlegri endurkomu Farage, en
hann myndi án nokkurs vafa taka
stóran hluta kjósenda flokksins til
sín í næstu kosningum, árið 2024.
Kannanir hafa sjaldan litið jafn illa
út fyrir Íhaldsflokkinn því Verka-
mannaflokkurinn leiðir með um
það bil 25 prósenta mun.
Vegna einmenningskosningakerf-
isins í Bretlandi gæti farið svo að nýr
flokkur Farage myndi kljúfa hægra
fylgið það mikið að Íhaldsflokkur-
inn myndi jafnvel ekki ná 100 þing-
sætum. Farage væri hins vegar ekki
sá sem myndi græða á klofningnum,
heldur Verkamannaflokkurinn. n
Farage hótar endurkomu sem
gæti gert út af við Íhaldsflokkinn
Verkamannaflokkur-
inn hefur 25 prósenta
forskot á Íhaldsflokk-
inn í könnunum.
18 Fréttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ