Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 28
28 Íþróttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Banka fast á dyrnar
hjá Guðmundi
Jólatilboð í dag!
Lúsíulest
Verð áður 16.900 kr.
Tilboð: 12.500 kr.
Lúsíukór
Verð áður 9.900 kr. Tilboð: 7.450 kr.
PFAFF • Grensásvegi 13 • pfaff.is • OPIÐ fös–mán 10–18 / lau 11-15
Sjaldan hefur verið um jafn
auðugan garð að gresja er
kemur að íslenskum hand-
boltamönnum sem gera tilkall
til sætis í íslenska landsliðinu.
Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari Íslands,
glímir nú við stærðarinnar
áskorun. Að velja fulltrúa
Íslands á komandi Heims-
meistaramót í handbolta sem
fer fram í Svíþjóð og Póllandi í
janúar næstkomandi.
aron@frettabladid.is
HANDBOLTI Margir leikmenn eru
nálægt því að tryggja sér sæti í
landsliðinu en ljóst að einhverjir
sitja eftir með sárt ennið. Einar Örn
Jónsson, íþróttafréttamaður RÚV og
fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður
í handbolta, fer yfir sviðið með
Fréttablaðinu og þá leikmenn sem
banka fast á dyrnar hjá Guðmundi.
„Ég held að Guðmundur hafi
aldrei haft stærri hausverk heldur
en akkúrat núna þegar kemur að
því að velja landsliðshópinn fyrir
komandi HM,“ segir Einar Örn.
„Það verða örugglega svona fjórir
til fimm leikmenn fyrir utan hóp
sem myndi hver um sig sóma sér
vel innan hópsins. Ég vorkenni Guð-
mundi að þurfa að skera þetta svona
niður.“
Guðmundur velur 18 manna
landsliðshóp en getur þó tekið fleiri
með til Svíþjóðar ef vilji stendur til
og skipt leikmönnum inn og út úr
þeim hópi eins og hann vill. Hins
vegar geta bara 16
verið á skýrslu í
hverjum leik. n
Stiven Tobar Valencia (Valur)
vinstri hornamaður
Hefur slegið í gegn, bæði hér heima og
í Evrópudeildinni með Valsmönnum og
vakið verðskuldaða athygli.
„Það sem vinnur aðeins á móti og á sama
hátt með honum er að hann spilar hér heima,“
segir Einar Örn um Stiven. „Hann er fyrir augunum
á okkur alla daga, við sjáum reglulega hvað hann
getur en á sama tíma sjáum við leikmenn í sömu
stöðu og hann vera að standa sig vel sem atvinnu-
menn, það vinnur með þeim.“
Einar á erfitt með að sjá hvað muni ráða úr-
slitum hjá Guðmundi hvað vinstra hornið varðar.
„Bjarki Már Elísson er klárlega hornamaður
númer eitt en það þarf einhvern með honum.
Stiven býr yfir mikilli íþróttamennsku og skrokk
sem mjög fáir hafa. Hann er miklu fljótari en
flestir, stekkur hærra en flestir og er sterkari en
flestir í þessari stöðu. Þá vinnur það með honum
að hann er í hrikalega flottu leikformi.“
Teitur Örn Einarsson (Flensburg)
og Kristján Örn Kristjánsson (PAUC)
Örvhentu skytturnar
Ómar Ingi Magnússon og
Viggó Kristjánsson virðast á
undan Teiti og Kristjáni í stöðu
hægri skyttu og út af þessari
ofgnótt örvhentra skytta sem
við höfum þá mun, að öllum
líkindum, einhver þeirra vera
fyrir utan hóp til að byrja með,
að mati Einars Arnar.
„Þetta er sennilega erfiðasta
ákvörðunin sem Guðmundur
stendur frammi fyrir. Hver
af þessum fjórum örvhentu
skyttum á að vera fyrir utan
hóp þegar kemur að fyrsta leik?
Þeir eru allir að spila vel, allir
að spila stóra rullu í stórum
atvinnumannaliðum og búa allir
yfir mismunandi vopnum í sínu
vopnabúri.
Ómar er klárlega númer eitt
og svo ertu með þrjá fyrir aftan
hann í goggunarröðinni sem
eru allir númer tvö í röðinni.
Þetta fer bara eftir því hvað þú, í
þessu tilfelli Guðmundur, vill fá
í hverjum leik fyrir sig.
Þá geturðu lent í því að missa
af einhverju með því að skilja
einhvern þeirra eftir fyrir utan
hóp. En á móti kemur að þá
færðu eitthvað stórkostlegt frá
þeim sem verða í hóp.“
Haukur Þrastarson
(Kielce)
miðjumaður
Það var röð hluta sem
orsakaði það að hann var
ekki í síðasta landsliðshóp.
„Hann á klárlega heima
í landsliðshópnum,“ segir
Einar. „Fyrir mitt leyti ætti
Haukur að vera eitt af
fyrstu nöfnunum á blað
í þessum HM-hóp eftir
að byrjunarliðið er sett
niður.“
Haukur var á sínum tíma efnilegasti leikmaður
Evrópu en hefur á sínum ferli þurft að glíma við
miklar áskoranir, meðal annars erfið meiðsli.
„Meiðslin settu vissulega strik í reikninginn en
við þurfum að fá Hauk inn og hafa hann í stóru
hlutverki í landsliðinu. Þá verður hann klárlega
burðarás í landsliðinu næstu 10–15 ár.
Það er mjög mikilvægt að fá hann inn í lands-
liðið til þess að styðja við Aron, Gísla Þorgeir og
Elvar, vera hluti af fyrstu róteringu liðsins.
Haukur hefur hæfileika sem enginn annar
handboltamaður hefur. Ef við förum á mis við þá
hæfileika sem hann hefur sem leikmaður þá eru
það mjög alvarleg mistök. Ekki bara fyrir þetta
mót heldur fyrir framtíðina.“
Óðinn Þór Ríkharðsson (Kadetten)
hægri hornamaður
„Hann er 100% í þessari baráttu,“ segir Einar um
Óðin. „Við sáum það á síðasta stórmóti hvað
það getur verið hættulegt að spila með einn
hornamann í gegnum heilt mót. Ég gerði það
sjálfur tvisvar á sínum tíma og það skildi bara
eftir varanleg sár á mínum líkama. Það er mjög
hættulegt að fara með einn hornamann inn í
heilt mót, sér í lagi ef
við ætlum okkur
stóra hluti.“
Það verði
að hafa góðan
hægri horna-
mann með Sig-
valda í hópnum.
„Það er Óðinn.
Með því getum
við gefið Sig-
valda korter
til tuttugu mínútur í
pásu í gegnum hvern leik
í riðlakeppninni, ekki bara
til að vera til vara ef Sigvaldi
skyldi meiðast, heldur til
að gefa honum pásu svo
við eigum hann heilan í
gegnum mótið.“