Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 68
Hamranes M3 - breyting á aðalskipulagi
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á
fundi sínum 23. nóvember 2022 að auglýsir
skipulagslýsingu vegna breytingar á
aðalskipulagi Hafnarfjarðar í samræmi við
1. mgr. 30. gr. og 36. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
Breytingin felst í breytingu á greinargerð þar
sem heimiluð er fjölgun íbúða úr 1500 í 1900
auk 80 þjónustueininga á hjúkrunarheimili.
Skipulagslýsingin verður til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6 og á
umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2,
frá 26.11 – 17.12.2022. Einnig er hægt að skoða
gögnin á hfj.is/skipulag.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
skipulagslýsinguna á netfangið
skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í
þjónustuver að Strandgötu 6 eigi síðar
en 17.12. nk.
Auglýsing um skipulag
Hafnarfjarðarbær
hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður
S
Tilnefning í Æskulýðsráð
Stjórnarráð Íslands
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar eftir tilnefningum æskulýðsfélaga
og æskulýðssamtaka um fulltrúa í Æskulýðsráð fyrir tímabilið 2023-2024 sbr.
reglugerð nr. 1088/2007. Tilnefna skal konu og karl til setu í Æskulýðsráði til
tveggja ára og í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga
til að taka að sér setu í ráðinu. Með tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir reynslu
og þekkingu tilnefndra á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og
yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.
Ráðuneytið hefur hafið undirbúning á endurskoðun æskulýðslaga í samræmi
við stefnu ráðuneytisins um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna.
Endurskoðun laganna verður unnin í samstarfi við Æskulýðsráð á tímabilinu.
Tilnefningar þurfa að berast mennta- og barnamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík,
bréflega í síðasta lagi
fimmtudaginn 15. desember 2022.
Ábúendur og rekstraraðilar að ferðaþjónustunni í Fossatúni í
Borgarbyggð hafa ákveðið að kanna möguleika á sölu á einkahluta-
félaginu Fossatún ehf. Allt umhverfi, aðstaða og húsakostur hefur
verið sérhannað. Vel hefur tekist til með að skapa ferðaþjónustu-
rekstrinum sérstöðu og gera Fossatún að eftirsóttum áfangastað
fyrir erlenda sem og íslenska ferðamenn.
Miklir möguleikar eru á hagkvæmri uppbyggingu glæsilegs reksturs
á traustum grunni. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Steinarsson í
síma 822-7988 eða á netfanginu olafur@steinarsson.is
Einstakt fjárfestingartækifæri í
ferðaþjónustu í Borgarbyggð
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur afhent óbyggða-
nefnd kröfur íslenska ríkisins um þjóðlendur sam kvæmt
lagaheimild nefndarinnar til að taka til meðferðar tiltekin
svæði í lands hlutum þar sem málsmeðferð hafði áður
farið fram að ákveðnum skil yrðum uppfylltum. Um er að
ræða sömu kröfur og ráðherra gerði áður í janúar 2021
en eftir það var skipuð sérstök óbyggðanefnd til að annast
málið sem ákvað að hefja málsmeðferð að nýju.
Óbyggðanefnd kallar nú eftir kröfum þeirra sem kunna að
eiga öndverðra hagsmuna að gæta. Kröfu lýs ing ráðherra
og kort eru á vefnum obyggdanefnd.is/serstok og fáanleg
á skrif stofu nefndarinnar. Upplýsingar um málsmeðferð og
leið bein ingar um frágang kröfulýsinga fást einnig á vefsíðu
og skrif stofu óbyggðanefndar.
Skorað er á þá sem telja til eignarréttinda innan
við komandi þjóðlendukröfusvæða íslenska ríkisins
að lýsa kröfum skriflega í síðasta lagi 28. febrúar
2023 fyrir óbyggðanefnd, Skuggasundi 3, 101
Reykja vík, postur@obyggdanefnd.is.
Svæðin eru eftirfarandi en upplýsingar um afmörkun eru á
vefsíðu óbyggðanefndar: 1. Svæði við vesturmörk Skriðu-
klausturs og Valþjófsstaðar; 2. nyrsti hluti Grímólfsártungu;
3. Kverkártunga; 4. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar
afréttar Torfufells, Hólsgerðis og Úlfár; 5. svæði við
norðurmörk þjóðlendnanna Vaskárdals, Almennings
og Bakkasels; 6. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar
Eyvindar staðaheiðar; 7. svæði við norðurmörk þjóð-
lend unnar Hraunanna; 8–9. svæði við vesturmörk og
norðurmörk þjóðlendunnar Skrapatunguafréttar; 10.
svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Auðkúluheiðar; 11.
svæði milli Kornsár og Kleppukvíslar; 12. svæði við austur-
mörk Hítardals; 13. svæði við norðausturmörk Svarfhóls;
14. svæði austan og sunnan Drangajökuls.
Að lokinni rannsókn úrskurðar óbyggðanefnd um kröf-
ur málsaðila. Leiði rannsóknin í ljós að einhver kunni að
telja til eignarréttinda án þess að hafa lýst kröfu verður
viðkomandi gefinn kostur á því en m.a. verður athugað
hvort fyrri kröfugerð þykir gefa tilefni til þess.
Áskorun
frá óbyggðanefnd
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ)
– LEIGUHÚSNÆÐI
221127 – Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs
óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Heyrnar-
og talmeinastöð Íslands (HTÍ) . Miðað er við 5 ára leigutíma,
húsnæði fullbúið til notkunar án lauss búnaðar.
Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu. Það
skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi,
gangandi og næg bílastæði.
Húsrýmisþörf er áætluð 800-850 fermetrar.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að
uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is
mánudaginn, 28. nóvember 2022.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leigu-
verðs, stærð húss og skipulags þess út frá starfsemi HTÍ, ör-
yggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heyrnar- og talmeinastöð -
leiguhúsnæði skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is
Fyrirspurnarfrestur rennur út föstudaginn 2. desember en
svarfrestur er til og með þriðjudags 6. desember.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is eigi síðar en
kl. 13:00, mánudaginn 12. desember.
Merkja skal tilboðin; nr. 221127 – Heyrnar- og talmeinastöð
Íslands – Leiguhúsnæði
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum
um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.
Samkomugerði, Eyjafjarðarsveit
– auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann
22. september 2022 sl. að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir
frístundarbyggð í landi Samkomugerðis í auglýsingu skv. 31. gr.
og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagstil-
lögunni felst að skilgreint verði svæði fyrir frístundarbyggð í landi
Samkomugerðis. Bætt er við svæði fyrir frístundarbyggð F17.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir tveimur frístundahúsum og er
byggingarheimild fyrir einu húsi á svæðinu því óráðstafað að sinni.
Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu
Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 25. nóvember
2022 og 6. janúar 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins,
esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til
föstudagsins 6. janúar 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar
og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar,
Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á
netfangið sbe@sbe.is.
Skipulagsfulltrúi
Eyrarland, Eyjafjarðarsveit
– auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann
22. september 2022 sl. að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir
íbúðarbyggð í landi Eyrarlands í auglýsingu skv. 31. gr. og 1. mgr.
41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagstillögunni felst að
byggingarheimildir á íbúðarsvæði ÍB14, þar sem í gildandi aðal-
skipulagi er gert ráð fyrir 10 íbúðarhúsum, eru auknar í 15 hús.
Deiliskipulagstillagan tekur til tíu íbúðarlóða á íbúðarsvæði ÍB14,
á spildu austan Veigastaðavegar og sunnan íbúðarbyggðarinnar
Kotru.
Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu
Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 25. nóvember
2022 og 6. janúar 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins,
esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til
föstudagsins 6. janúar 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og
skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar,
Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á
netfangið sbe@sbe.is.
Skipulagsfulltrúi
16 ATVINNUBLAÐIÐ 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR