Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 84
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Ragna Þórunn Ragnarsdóttir
er logandi hrædd við jóla-
köttinn og gat ekki hugsað
sér að skapa jólaketti með
hennar nánustu í maganum.
„Ég er fyrir löngu búin að skreyta
fyrir jólin, kaupa mér ný föt og
baka smákökur, og ég byrjaði að
hlusta á jólalög í október. Allt til að
friða jólaköttinn,“ segir iðnhönn-
uðurinn Ragna Þórunn Ragnars-
dóttir. Hún er þriðji listamaðurinn
sem hannar jólakött fyrir Ramma-
gerðina.
„Sem barn var ég alltaf miklu
hræddari við Grýlu en nú er ég
mun hræddari við jólaköttinn sem
fyrir mér er myrkravera í kattarlíki,
send frá Grýlu. Það fylgir sennilega
ábyrgð hinnar fullorðnu mann-
eskju á undirbúningi jólanna því
sem barn spáði ég ekkert í hann.
Ég átti líka marga ketti sem barn
og gat ekki farið að óttast einhvern
jólakött, en eftir því sem ég varð
eldri fór mér að líka verr við ketti
og hugsaði sem svo að ekki vildi
ég lenda í jólakettinum. Viðhorfið
breyttist smám saman þegar ég fór
að átta mig á því hvað kettir eru að
gera úti og koma svo upp í rúm til
manns; að þeir væru ekki jafn sak-
laus gæludýr og mér þótti þegar ég
var lítil. Kettir eru nefnilega alveg
lúmskir og auðvitað rándýr sem
veiða sér til matar.“
Með frægt fólk í maganum
Það var um hásumar sem Ragna
tók að sér að búa til jólakettina.
Vont að hugsa um ástvini í maga jólakattarins
Ragna Ragnarsdóttir með nokkra af jólaköttum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég gerði mér í
hugarlund hvernig
einstaklingarnir myndu
formast eftir að hafa
verið étnir.
Ragna Þórunn Ragnarsdóttir
„Það var svolítið skrýtið að
hugsa um jólin þá en ég lagðist
undir feld til að ákveða hvernig ég
gæti unnið jólaköttinn. Þá spratt
fram sú góða speki að maður er
það sem maður borðar og í fram-
haldinu fór ég að ímynda mér að
kisi hefði étið einhvern og ákvað
að skapa þann karakter í kettinum,
svo hann fengi á sig yfirbragð þess
sem hann át yfir sig af. Þegar ég fór
svo að vinna kettina fannst mér
óþægilegt að ímynda mér ástvini
mína eða þá sem ég þekkti í belg
kattarins,“ segir Ragna og hryllir
sig.
Hún tók til þess ráðs að hlusta
á handahófskennda lagalista á
Spotify og varð þá fyrir áhrifum
frá Eminem, Johnny Cash, Ginger
Spice og fleiri listamönnum sem
enduðu sumir sem karakterar í
jólaköttunum.
„Ég gerði mér í hugarlund
hvernig þeir myndu formast eftir
að hafa verið étnir. Þannig eru
sumir kvenlegir í laginu á meðan
aðrir eru grófari og karlmannlegri,
og í mismunandi litum. Þannig
getur hver og einn tengt form jóla-
kattarins við það hver étinn var
en ég mata fólk ekki á því,“ segir
Ragna og hlær.
Stofustáss og jólaskraut
Jólakettir Rögnu eru allir hand-
renndir á bekk og hefur hver og
einn sitt einstaka form.
„Ég teiknaði í raun ekki mikið af
formunum heldur renndi kettina
eftir tilfinningunni hverju sinni
og eftir því hvern þeir höfðu étið.
Hver og einn jólaköttur er því ein-
stakur og ekki til annar eins, þetta
eru alls 25 kettir og allir númer-
aðir, enda safngripir eins og þau í
Rammagerðinni hugsa jólakettina
og næstu jól tekur annar lista-
maður við,“ greinir Ragna frá.
Hún hugsaði jólakettina sem
stofustáss og jólaskraut í senn.
„Ég vildi ekki hafa kettina of
jólalega en það má dressa þá upp
á jólunum og svo geta þeir staðið
í stofunni og sómt sér vel árið um
kring. Á kössunum eru reyndar
varnaðarorð um að sé kröfum
jólakattarins ekki fullnægt um
sómasamlegan jólaundirbúning sé
hreinlega hægt að verða kettinum
að bráð. Það er jafnframt hvetjandi
fyrir okkur öll til að taka jólunum
fagnandi,“ segir Ragna alvarleg í
bragði.
Hugrökk á sumum sviðum
Ragna lærði iðnhönnun við Ensci
Les Atelier í París.
„Mig langaði til náms í útlönd-
um og að prófa eitthvað nýtt. Ég fór
því til Parísar að skoða skólann og
leist rosalega vel á hann, fyrir utan
að ég talaði ekki orð í frönsku og
að námið fór allt fram á frönsku.
Það var smá áskorun en ég hafði
það af og kláraði masterspróf við
skólann árið 2016. Ég var heppin
með prófessora sem töluðu við
mig táknmál og svo töluðum við
mikið saman með teikningum
og alls kyns reddingum, því þeir
kunnu enga ensku. Svo þurfti ég
iðulega að vera með fyrirlestra á
frönsku og fékk þá vini til að lesa
þá upp fyrir mig og lagði textana á
minnið, en vissi ekkert hvað ég var
að segja,“ segir Ragna og samsinnir
því að hún sé greinilega hugrökk á
sumum sviðum, þó ekki gagnvart
jólakettinum.
Hún segir virkilega gaman að
upplifa ánægju fólks þegar það
eignast hluti eftir hana.
„Ég reyni að mynda tengsl við
neytendur þannig að þeim finnist
þeir hafa tekið þátt í hönnuninni
með því að velja hvað er þeirra.
Eins og þegar fólk velur sér kerta-
stjaka og er endalaust lengi að því
og segir: „Þennan!“ og svo: „Nei,
þennan!“ Það finnst mér óskap-
lega gaman því úr verður tenging á
milli mín, vörunnar og eigandans.“
Hjarðhegðunin að breytast
Sem listamaður prófar Ragna sig
áfram með alls kyns efnivið og
framleiðir allt sem hún gerir sjálf
í höndunum og á verkstæði sínu á
Grandanum.
„Ég vinn mikið með tilrauna-
kennd efni og blanda saman ólík-
um efnivið, allt frá kertastjökum
upp í húsgögn á stórum skala. Ég
er sjálfstætt starfandi listamaður
og vinn undir mínu merki en tek
líka að mér verkefni fyrir fyrirtæki
eins og nú fyrir Rammagerðina og
á dögunum afgreiðsluborð fyrir
66°Norður og svo er ég einn af
hönnuðunum fyrir Fólk Reykjavík.
Svo sel ég í verslanir kertastjaka,
vasa og fleira í Rammagerðinni,
Sky Lagoon og fleiri stöðum. Því er
hægt að vera listamaður á Íslandi
og lifa af: mér hefur allavega tekist
það ágætlega síðustu tvö árin eftir
að ég flutti til Íslands á ný,“ segir
Ragna.
Hún segir íslenska listmuna-
markaðinn lítinn en að lands-
menn sæki sífellt meira í íslenska
hönnun.
„Ég held að hjarðhegðun
Íslendinga sé að breytast og það að
eiga öll nákvæmlega eins heimili.
Íslendingar sækja orðið meira
í einstaka gripi og sérstaklega
íslenska hönnun, eins og sýnir sig
í Rammagerðinni sem ýtir mikið
undir að íslensk hönnun verði
aðgengilegri.“
Jólakötturinn kemur í Ramma-
gerðina um helgina, en þess má
geta að Rammagerðin fagnar
eins árs afmæli verslunar sinnar
í Hörpu með opnum degi í dag,
laugardaginn 26. nóvember, frá
klukkan 14 til 17. Þar verða hönn-
uðir, happadrætti með veglegum
hönnunarvinningum og Berglind
Festival fer með gamanmál. n
Aðgangur
ókeypis
Aðgangur
ókeypis
Aðgangur
ókeypis
Þar á bara að koma
fram dagskrá
messunnar,
þessir samtals
fjórir viðburðir,
opnunartími og
ókeypis inn.
2dl x12
2dl x14
2dl x20
Opið frá
kl. 11 – 17
laugardag og
sunnudag
Opið frá
kl. 11 – 17
laugardag og
sunnudag
Opið frá
kl. 11 – 17
laugardag og
sunnudag
Ástin
LAUGARDAGINN
26. NÓVEMBER KL. 13
Glæpurinn
LAUGARDAGINN
26. NÓVEMBER KL. 15
Smásagan
SUNNUDAGINN
27. NÓVEMBER KL. 13
Íslenskan
SUNNUDAGINN
27. NÓVEMBER KL. 15
Ástin
LAUGARDAGINN 26. NÓVEMBER KL. 13
Dagný Kristjánsdóttir stýrir samtali við þrjá
höfunda um ástarsögur.
Þátttakendur:
Guðni Elísson · Brimhólar
Ragna Sigurðardóttir · Þetta rauða, það er ástin
Silja Aðalsteinsdóttir, þýðandi bókar Jane Austen
· Aðgát og örlyndi
Glæpurinn
LAUGARDAGINN 26. NÓVEMBER KL. 15
Yrsa Sigurðardóttir ræðir við Ragnar Jónasson og
Katrínu Jakobsdóttur um Reykjavík – glæpasögu.
Smásagan
SUNNUDAGINN 27. NÓVEMBER KL. 13
Björn Halldórsson stýrir pallborðsumræðum
helguðum nýútgefnum smásögum.
Þátttakendur:
María Elísabet Bragadóttir · Sápufuglinn
Örvar Smárason · Svefngríman
Guðjón Baldursson · Og svo kom vorið
Kristín Guðrún Jónsdóttir, þýðandi bókar
Guadalupe Nettel · Hjónaband rauðu fiskanna
og ritstjóri sýnisbókarinnar · Með flugur í höfðinu
Íslenskan
SUNNUDAGINN 27. NÓVEMBER KL. 15
Sunna Dís Másdóttir stýrir pallborðsumræðum
um erlend skáld á íslenskum ritvelli.
Þátttakendur:
Natasha S. · Máltaka á stríðstímum
Jakub Stachowiak · Úti bíður skáldleg veröld
Ewa Marcinek · Ísland pólerað
Ástin
LAUGARDAGINN 26. NÓV. KL. 13
Dagný Kristjánsdóttir stýrir samtali
við þrjá höfunda um ástarsögur.
Glæpurinn
LAUGARDAGINN 26. NÓV. KL. 15
Yrsa Sigurðardóttir ræðir við Ragnar
Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur um
Reykjavík – glæpasögu.
Smásagan
SUNNUDAGINN 27. NÓV. KL. 13
Björn Halldórsson stýrir
pallborðsumræðum
helguðum nýútgefnum smásögum.
Íslenskan
SUNNUDAGINN 27. NÓV. KL. 15
Sunna Dís Másdóttir stýrir
pallborðsumræðum
um erlend skáld á íslenskum ritvelli.
6 kynningarblað A L LT 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR