Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 90
stjóri hafi boðað niðurskurð og
að mögulega eigi að loka fangels-
unum að Sogni eða Kvíabryggju til
að minnka kostnað, þannig sé hægt
að fækka föngum og fangavörðum.
„Það sparast með þessu peningur
og hægt að færa til störf. Það er það
sem gerðist þegar fangelsinu á Akur-
eyri var lokað, en sá peningur er
búinn núna.“
En þýðir þetta ekki lengri bið í
afplánun?
„Jú, algerlega. Ef það er fækkað
um fanga á hverju ári felst sparn-
aður í því auðvitað. Það eru um 340
manns á biðlista í boðun og sá listi
mun klárlega lengjast ef vistunarúr-
ræðum verður fækkað.“
Opið fangelsi og aðgengi
Kvíabryggja er skilgreind sem opið
fangelsi og er þar hægt að vista alls
21 fanga. Í fangelsinu eru ekki riml-
ar fyrir gluggum né svæðið afgirt að
nokkru leyti. Fangelsið er því mjög
ólíkt því sem er á Hólmsheiði og
Litla-Hrauni og samkvæmt því er
starfsemin öðruvísi.
Á vef Fangelsismálastofnunar
segir að þar sé að finna rúmgóða
setustofu, eldhús, borðstofu og
góðan æfingasal. Fangar sjá um
matseld. Auk þess þurfa þeir að vera
tilbúnir til að takast á við vímuefna-
vanda sinn og taka þátt í endur-
hæfingaráætlun og stunda vinnu
eða nám.
Á Kvíabryggju starfa níu fanga-
verðir sem vinna á þrískiptum
vöktum, tveir á morgun- og kvöld-
vakt en einn frá miðnætti til sjö á
morgnana. Einnig er forstöðumaður
og skrifstofumaður virka daga.
„Kvíabryggja er öðruvísi stofnun
en önnur fangelsi. Þarna eru menn
sem eru kannski í fyrsta skipti
að eignast vini á lífsleiðinni. Eftir
heilablóðfallið fékk ég símtöl frá
nokkrum fyrrverandi vistmönnum
sem vildu vita hvernig ég hefði það,“
segir Garðar og að fangaverðir fái
reglulega bréf frá fyrrverandi föng-
um þar sem þeim er þakkað fyrir að
gera þeim vistina bærilega.
Stofnað sem vinnuhæli
„Þetta var upphaf lega rekið sem
vinnuhæli og hefur í raun haldið
þannig áfram,“ segir Garðar.
Hann segir að reglulega komi
erlendir fangaverðir til að skoða það
sem þeir eru að gera. Hann segir að
oft sé talað um Noreg þegar leita á
fyrirmynda í fangelsismálum en þar
er endurkomutíðni í fangelsi lægst í
Evrópu.
„Við erum búin að vinna eftir
þessu sama kerfi og í Noregi síðan
’54 og vorum lengi vel litnir horn-
auga af öðrum deildum innan fang-
elsisins. Það hefur mikið breyst síð-
ustu ár. Má þar nefna vinnustofur í
hinum fangelsunum sem hafa verið
vel nýttar. Dyrnar að varðstofunni
eru alltaf opnar og fangarnir hafa
alltaf greiðan aðgang að starfs-
mönnum. Út á það gengur þessi
betrunarvist. Það er meðferðin og
samtalið,“ segir Garðar.
Hann segir að fangarnir í raun sjái
um allt fangelsið. Eldi mat, þrífi og
hugsi um kindurnar. Það sé aðeins
sauðfjárgirðing sem er meira ætlað
að halda kindunum úti.
„Þeir vita alveg að þeir mega ekki
fara út fyrir girðinguna. Það er betr-
unin. Þeir fá tilgang, traust og hlut-
verk.“
Garðar segir starfið, þótt krefj-
andi sé, afar skemmtilegt og að
hann njóti þess sérstaklega að sjá
þegar betrunarvistin hefur virkað.
Fangaverðir eins og foreldrar
„Ég segi alltaf að okkar hlutverk sem
fangaverðir sé í raun að vera for-
eldri. Það er okkar hlutverk að sjá til
þess að þeir taki lyfin sín, þrífi sig og
tannbursti og að þeir fari til læknis.
Við metum líðan þeirra og eigum að
grípa inn í þegar eitthvað er í gangi.
Okkar hlutverk er að vera foreldri
og þú gerir það ekki með lokaðar
dyr. Þú þarft að vera í tengslum og
þess vegna borðum við með þeim,
drekkum kaffi og reykjum.“
Mynd af Garðari
sem fylgdi við-
tali við hann
árið 2018 eftir
að hann fékk
heilablóðfall
einn á vaktinni.
MYND/HANNA
ANDRÉSDÓTTIR
Garðar segir starfið krefjandi en á sama tíma skemmtilegt. MYND/TÓMAS FREYR
Fangarnir sjá um
að kindurnar
séu hirtar og fái
að borða.
MYND/TÓMAS
FREYR
Hann segir aðstöðuna þó alls ekki
fullkomna á Kvíabryggju og nefnir
sem dæmi heimsóknaraðstöðuna
sem er engin.
„Við erum með matsal og setu-
stofu og það er sameiginlegt rými
fyrir alla. Menn eru að fá börnin sín
í heimsókn og á meðan er kannski
einhver annar að horfa á fótbolta.
Þú getur ekki neins staðar verið
einn með þínum gestum,“ segir
Garðar.
Undanfarið hefur verið afar erfið
staða í fangelsunum. Fyrr í vikunni
sátu 62 í gæsluvarðhaldi vegna
stunguárásarinnar á Bankastræti
Club og annarra mála og greint var
frá því í október að fresta þyrfti
afplánun fanga vegna mikils fjölda
sem sat í varðhaldi, sem var þá 47.
„Það er í rauninni mjög slæmt
þegar það þarf að fresta. Fólk er að
koma jafnvel þremur eða fjórum
árum eftir að dómur fellur og marg-
ir eru á allt öðrum stað. Það er mjög
slæmt fyrir bæði þá og fjölskyldur
þeirra,“ segir hann.
Fríðindi sem ekki allir skilja
Fangarnir sem afplána á Kvía-
bryggju eru alls konar og hafa brotið
af sér með ýmsum hætti.
„Þeir fá fangelsisdóma og það er
hluti betrunar að fá að koma. Þeir
eru til að byrja með í lokuðu úrræði,
svo í opnu úrræði og svo á Vernd og
svo í rafrænu eftirliti.“
Á Kvíabryggju má vera með tölvu
og farsíma og menn fá tækifæri til
að ná tengslum aftur við samfélagið.
Garðar segist hafa skilning á því
að fólk, og sérstaklega þolendur,
hafi kannski ekki skilning á því að
fangar hafi slíkan aðgang og frelsi en
tekur fram að það sé mjög strangt á
því tekið ef fangar misnota þetta. Í
f lestum tilfellum missa þeir tækin
en í alvarlegustu tilfellunum eru
menn sendir aftur í lokað úrræði.
„Það er tekið af þeim um leið og
það er tilkynnt. Þeim þykja almennt
þessi fríðindi mjög almennileg og
vilja ekki missa þau. Ég hef verið
spurður hvort hægt sé að koma á
einhverju umbunarkerfi en ég lít
frekar á það þannig að fangarnir
komi inn með hundrað prósent
traust og það er þeirra að halda því
trausti.“ n
Okkar
hlutverk er
að vera
foreldri og
þú gerir
það ekki
með lok-
aðar dyr.
46 Helgin 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið