Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 100
Lína Langsokkur er ein ást-
sælasta barnabókapersóna
sögunnar. Hún er sköpuð af
sænska rithöfundinum Astrid
Lindgren og í dag eru 77 ár
síðan fyrsta bókin um Línu
kom út.
Lína Sigurlína Rúllugardían
Nýlendína Krúsimunda
Eframísdóttir Langsokkur,
betur þekkt sem Lína Lang-
sokkur, er ein ástsælasta
barnabókapersóna fyrr og síðar.
Hún er aðalper-
s ó n a í
bókaf lokki
sænska rit-
höfundarins
Astrid Lind-
g ren. Í dag
eru 77 ár síðan
f y rst a bók in
um Línu kom út.
L í n a L a ng -
sok k ur er níu
ára gömul og í
upphafi sögunnar
f lytur hún í húsið
Sjónarhól. Þar býr
hún með hestinum
sínum og apanum Herra
Níels. Fljótlega eftir að Lína
f lytur á Sjónarhól kynnist
hún krökkunum Önnu og
Tomma sem búa í húsinu við
hliðina á.
Lína er með rautt hár og
freknur, hún er fjörug, klár, óút-
reiknanleg og sterk, svo sterk að hún
getur lyft hestinum sínum. Móðir
Línu lést stuttu eftir að hún fæddist
og pabbi hennar er skipstjóri sem
siglir um heimsins höf svo Lína býr
án fullorðinna á Sjónarhóli. Hún á
tösku fulla af gullpeningum og sér
um sig sjálf, yfirvöld í þorpinu þar
sem hún býr reyna að færa líf Línu
í annan farveg en hún er hamingju-
söm og lætur ekki segjast.
Sagði dóttur sinni sögur
Astrid Lindgren fæddist í Svíþjóð
þann 14. nóvember árið 1907 og
hún lést þann 28. janúar árið 2002.
Hún skrifaði fjölda barnabóka og
meðal þekktustu bóka hennar eru
sögurnar af Línu, Emil í Kattholti,
Ronju Ræningjadóttur og börn-
unum í Ólátagarði.
Árið 1941 hóf Astrid að segja
Karin, dóttur sinni, sögur af stúlku
sem lenti í ýmsum ævintýrum,
en það var Karin sem hóf að kalla
uppátækjasömu stelpuna sem
mamma hennar sagði henni frá
Línu Langsokk. Sögurnar urðu
fastur punktur í heimilislífinu hjá
Astrid og Karin og síðar fengu fleiri
fjölskyldumeðlimir að heyra þær
líka. Árið 1944 ákvað Astrid svo
að skrifa sögurnar niður, úr varð
að hún handskrifaði tvö eintök af
sögunni um Línu, eitt handa Karin
og annað fór hún með til útgefanda.
Honum leist ekki vel á söguna og
hafnaði því að gefa hana út, Astrid
fór til annars útgefanda í maí árið
1945. Honum leist betur á en þeim
fyrri og bað Astrid að gera smávægi-
legar breytingar á sögunni sem hún
og gerði. Þann 26. nóvember sama
ár kom svo út fyrsta sagan um Línu
Langsokk. Í kjölfarið komu út tvær
bækur til viðbótar um líf Línu, ein
árið 1946 og önnur árið 1948. Þrjár
myndskreyttar bækur komu svo út
árin 1950, 1971 og sú síðasta árið
2001.
Fljótlega eftir að fyrsta bókin um
Línu kom út í Svíþjóð varð hún afar
vinsæl og hlaut bókin almennt góða
dóma og seldist vel. Sett var upp
barnaleikrit um Línu í Stokkhólmi
og árið 1948 var fyrsta Línu-bókin
gefin út á íslensku. Bækurnar voru
þýddar á fjölmörg tungumál en ekki
voru allir sammála um ágæti þeirra.
Sumir gengu jafnvel svo langt að
segja að bækurnar um Línu væru
skaðlegar börnum og á sumum
tungumálum voru sögurnar rit-
skoðaðar.
Í franskri ritskoðaðri útgáfu birt-
ist Lína sem fínleg ung kona í stað
sterku sjálfstæðu stelpunnar og
hestinum hennar var breytt
í smáhest þar sem ótrú-
verðugt þótti að lítil
stelpa gæti lyft hesti.
Við þessa breytingu
krafði Astrid Lindgren
útgefandann um mynd
af raunverulegri franskri stúlku að
lyfta smáhesti, þá stúlku sagði hún
eiga tryggan feril í kraftlyftingum
fram undan. Árið 1995 var Lína
Langsokkur fyrst gefin út órit-
skoðuð í Frakklandi.
Áhrifaríkt að leika Línu
Lína Langsokkur hefur heillað
heimsbyggðina með persónu-
töfrunum sem Astrid Lindgren
skapaði henni. Gerðar hafa verið
kvikmyndir og sjónvarpsþættir
um Línu, Tomma og Önnu. Vinsæl-
astar urðu myndirnar og þættirnir
sem komu út á árunum 1969 og 1970
þar sem Inger Nilsson fór með hlut-
verk Línu.
Hér á Íslandi hafa verið settar upp
fjölmargar leiksýningar um Línu,
Ilmur Kristjánsdóttir lék hana til að
mynda á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins árið 2003. Hún segir hlutverkið
hafa haft mikil áhrif á sig. „Þetta var
fyrsta hlutverkið sem ég fékk eftir að
ég útskrifaðist svo þetta var frekar
þægilegt stökk fyrir mig út í leik-
húsið en á
sama tíma
fékk ég
s vona
hugrakkan karakter í hendurnar
og það hefur fylgt mér,“ segir Ilmur.
„Að ögra, fara út fyrir boxið og
láta ekki segja sér hvað á að gera er
allt einkennandi fyrir Línu og það
tók ég allt til mín,“ segir Ilmur, sem
lék Línu í um hundrað sýningum í
leikhúsinu.
„Svo fórum við í leikskóla og alls
konar staði um allan bæ og það var
æðislegt, það dá allir og dýrka Línu,“
segir Ilmur. „Það er svo gaman að
hún hvetur krakka til að vera frjáls
en svo gerist það líka hjá börnum að
þau fara að stoppa hana ef hún fer
yfir strikið, þá leiðrétta þau hana
og segja bara: nei, þetta má ekki,“
segir Ilmur.
„Og þessa sálfræði hef ég notað á
mín eigin börn,“ segir hún og hlær.
„Þau eru rosalega stundvís, ég segi
við þau æi, viltu ekki sofa aðeins
lengur og þau bara nei, ég ætla auð-
vitað að mæta á réttum tíma,“ bætir
hún hlæjandi við. n
Sterkasta
stelpa í heimi
Rithöfundurinn og skapari Línu Langsokks, Asrid Lindgren, ásamt leikkonunni Inger Nilsson sem lék Línu og leikstjóranum Olle Hellblom árið 1969. Fréttblaðiði/Getty
Tommi, Lína og Anna úr kvikmynd frá árinu 1969. Fréttablaðið/Getty
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Fyrsta bókin um
Línu Langsokk á
íslensku kom út
árið 1948.
Ilmur Kristjánsdóttir lék
Línu í Borgarleikhúsinu árið
2003. Hún segir hlutverkið
hafa haft mikil áhrif á sig.
Það er svo gaman að
hún hvetur krakka til
að vera frjáls.
Ilmur Kristjánsdóttir
56 Helgin 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið