Fréttablaðið - 26.11.2022, Qupperneq 114
Jólabókaflóðið er ein af
þessum séríslensku hefðum
sem allir landsmenn kann-
ast við en færri vita hvaðan
kemur. Fréttablaðið leitaði til
þriggja sérfræðinga í bókaút-
gáfu til að rýna í eðli og upp-
runa jólabókaflóðsins.
tsh@frettabladid.is
Talið er að jólabókaflóðið eins og
við þekkjum það í dag eigi rætur
sínar að rekja til áranna í kringum
síðari heimsstyrjöld og þess efna-
hagsástands sem myndaðist vegna
víðtæks kvóta og innf lutnings-
banns sem takmarkaði úrval gjafa-
vöru hér á landi. Eina elstu prentuðu
heimildina þar sem jólabókaflóðið
er nefnt á nafn má finna í tímaritinu
Syrpu, 1. tölublaði, 3. árgangi 1949:
„Í ár var jólabókaflóðið meira en
nokkru sinni fyrr og héldu því engar
stíflur fremur en Markarfljóti. Er að
vonum að almenningur, sem sækja
á sína sálarfæðu í þetta f lóð, stari
næsta ringlaður á straumfallið og
þurfi leiðsagnar við um það, hvernig
hann skuli bera sig eftir sálarbjörg-
inni og hvað vænlegast sé að fiska úr
þeirri miklu móðu.“
Hugvit smáþjóðar
Af því má skilja að árið 1949 hafi
jólabókaf lóðið þegar verið búið
að festa sig í sessi en Halldór Guð-
mundsson bókmenntafræðingur
segir að sú hefð að gefa bók í jóla-
gjöf sé töluvert eldri en hið eiginlega
jólabókaflóð.
„Alvöru bókamarkaður verður
ekki til hér fyrr en í byrjun 20. aldar.
Það er auðvitað verið að prenta
slatta af bókum á 19. öld, bæði hér
og í Kaupmannahöfn, en í byrjun
þeirrar 20. verður tvöföldun.“
Að sögn Halldórs var þegar orðið
vinsælt að gefa bók í jólagjöf á 3. og
4. áratug síðustu aldar. Í Stúdenta-
blaðinu 1. desember 1932 má til að
mynda sjá auglýsingar frá bóka-
verslunum E.P. Briem og Sigfúsar
Eymundssonar þar sem landsmenn
eru hvattir til að gefa bók í jólagjöf.
En ekki höfðu allir þó efni á svo veg-
legri gjöf.
„Fyrir venjulegan verkamann þá
kostaði það einn og hálfan dag að
vinna sér inn fyrir einni bók, þær
voru svo dýrar. Svo gerist tvennt
í stríðinu, einkum þegar líður á
stríðið og Kaninn kemur, að það
stóreykst peningaflæðið. Peninga-
hagkerfið tekur við og fólk fær
aðeins meiri kaupmátt og vill gefa
jólagjafir en það var vöruskortur
í landinu, vesen með aðflutninga
og líka bara skömmtun á mörgum
sviðum. Ég held að afi minn hafi
drukkið svart kaffi því amma mín
fékk allan sykurinn,“ segir Halldór.
Furðulega lítið breytt
Þar sem pappír stóð utan innflutn-
ingshafta gripu bókaútgefendur til
þess ráðs að prenta f leiri og f leiri
bækur sem urðu f ljótt vinsælar í
jólapakkana.
„Þannig varð útgáfa íslenskra
bóka á þessum árstíma tákn um
hugvit smáþjóðar sem bæði styrkti
sjálfsmynd sína á erfiðum tímum og
skóp líka einstaka hefð sem hvergi
á sér hliðstæðu í heiminum,“ segir í
Bókatíðindum 2021 þar sem Heiðar
Ingi Svansson, formaður Félags
íslenskra bókaútgefenda (FÍBÚT),
rifjar upp uppruna jólabókaflóðs-
ins.
Kristján B. Jónasson var for-
maður FÍBÚT á árunum 2006-2013
og hefur fylgst vel með stefnum og
straumum í bókaútgáfu undanfarna
áratugi. Hann segir jólabókaflóðið
lítið hafa breyst þrátt fyrir tækni-
byltingar undanfarinna ára.
„Jólabókaflóðið er alveg furðu-
lega lítið breytt, það eina er að það
var aðeins seinna á ferðinni í gamla
daga. Það var upp við jólin og talað
um að jólabókaflóðið væri skollið á
í byrjun desember. Þá miðuðu menn
oft við að þetta væri eins og Nóa-
Jólabókaflóðið
ekkert á förum
Jólabókaflóð
í verslun Máls
og menningar í
kringum 1970.
Mynd/
LjósMyndasafn
ReykjavíkuR
Halldór Guð-
mundsson,
bókmennta-
fræðingur
Kristján B.
Jónasson,
fyrrverandi for-
maður FÍBÚT
Hólmfríður Úa
Matthíasdóttir,
útgefandi For-
lagsins
n 2021 985 bækur samtals n 2022 913 bækur samtals
Fjöldi skráðra bókatitla frá Félagi íslenskra bókaútgefenda
Sálfræði,
sjálfshjálp
Barnabækur
myndskreyttar
Barnabækur
skáldverk
Barnabækur
fræðibækur/handb.
Ungmennabækur
Skáldverk
íslensk
Skáldverk
þýdd
Ljóð og
leikrit
Listir og
ljósmyndir
Fræðibækur/
handbækur
Saga, ættfræði
og héraðslýsingar
Ævisögur og
endurminningar
Saga, ættfræði
og héraðslýsingar
Matur og
drykkur
Hannyrðir og
matreiðsla
Útivist, tómstundir
og íþróttir
86
87
115
31
31
148
193
57
9
161
13
31
9
125
24
53
173
201
53
10
177
12
37
12
22
16
12
n Í baksýnisspeglinum
flóðið, það var líking sem var mjög
oft notuð, 40 dagar og 40 nætur.“
Ekki samdráttur í hruninu
Jólabókaflóðið hefur staðið af sér
verðbólgu, efnahagslægðir, hrun og
heimsfaraldur. Kristján sem var for-
maður FÍBÚT á hrunárunum segir
hrunið ekki hafa haft neikvæð áhrif
á bóksölu.
„Hrunið hafði til að byrja með
bara jákvæð áhrif á bókamarkað-
inn, vegna þess að í þeirri skrýtnu
bylgju sem verður eftir hrunið þá
verður gríðarleg áhersla á allt sem
var þjóðlegt og okkar gildi. Gamla
Ísland. Við lögðum áherslu á bóka-
markaðinn og jólabókaflóðið sem
var hluti af þessu gamla Íslandi,“
segir hann.
Þannig að bóksala dróst ekki
saman?
„Nei, hún dróst ekki saman í
hruninu og raunverulega jókst hún
ívið árin á eftir. En svo breyttist
markaðurinn á öðrum áratug aldar-
innar. Þar er helsti áhrifavaldurinn
snjallsíminn sem kemur á markað
2009-10 og sem hvert mannsbarn
nánast var komið með í hendur frá
2011 að telja. Þá náttúrlega opnast
líka þessi möguleiki á stafrænni
miðlun, sem Storytel er svo einhver
niðurstaða af.“
Aukning í Covid
Covid hefur, eins og allir vita,
umturnað flestu í okkar samfélagi,
þótt við viljum nú helst láta sem
það hafi aldrei gerst. Það virðist
þó sem heimsfaraldurinn hafi, líkt
og hrunið, haft jákvæð áhrif á jóla-
bókamarkaðinn að mörgu leyti.
Spurð um hvaða áhrif Covid hafi
haft á bóksölu og útgáfu segir Hólm-
fríður Úa Matthíasdóttir, útgefandi
Forlagsins:
„Ég held að það hafi aukist lítil-
lega hjá okkur jólabókasalan en
mestu áhrif in voru kannski á
neysluform. Ég held að það hafi
flýtt fyrir þessari stafrænu byltingu.
Flýtt fyrir því að fólk færi að hlusta
á hljóðbækur.“
Að sögn Úu leiddi Covid og hið
breytta neysluform til ákveðins
samdráttar í kiljusölu. „En aftur á
móti þá stóðst jólabókasalan þetta
áfall. Hún hélt áfram og vonandi
bara heldur áfram,“ segir hún.
Halldór Guðmundsson tekur í
sama streng en hann telur að þessi
aukning í hljóðbókasölu muni gera
það að verkum að vægi jólabóka-
flóðsins aukist enn frekar.
„Það er mín teoría núna að vegna
tilkomu streymisveitna og hljóð-
bóka, þá auðvitað sérstaklega Story-
tel, sé vægi jólabókamarkaðarins
aftur að aukast fyrir hefðbundna
útgáfu,“ segir hann.
Hækkandi kostnaður
Þó er ljóst að Covid hefur haft víð-
tæk áhrif á bókamarkaðinn sem
birtist einna helst í töfum hjá prent-
smiðjum í Evrópu, hráefnisskorti
og hækkandi prentkostnaði. Þetta
hefur aukist enn frekar vegna stríðs-
ins í Úkraínu og orkuskorts í Evrópu
en sumir útgefendur eins og Veröld
og Sæmundur þurftu í fyrra að fresta
bókum um heilt ár vegna slíkra tafa.
„Þetta hefur allt áhrif, fyrst var
pappírsskortur, svo voru erfiðleikar
með f lutninga og það hefur ekki
alveg ræst úr þessu þannig að það
náttúrlega neyðir bókaútgefendur
til að gefa sér meiri tíma. Svo þýðir
það líka að kostnaður hefur hækkað,
það er orðið miklu dýrara að fram-
leiða prentaðar bækur en áður,“ segir
Hólmfríður Úa.
Sumir bókaunnendur hafa ef til
vill tekið eftir því að jólabækurnar
kosta aðeins meira en þær gerðu
fyrir nokkrum árum enda hafa
þessir hlutir óhjákvæmilega áhrif á
söluverðið.
„Við náttúrlega reynum að halda
þessu í skefjum eins og við getum en
það er óhjákvæmilegt að þetta hafi
áhrif,“ segir Úa.
Þanið taugakerfi
Jólabókaf lóðið gegnir gífurlega
mikilvægu hlutverki fyrir bóksala
og útgefendur enda fara allt upp
undir 40 prósent af árssölunni fram
á þessum tveimur mánuðum fyrir
jól. Samkvæmt tölfræði frá FÍBÚT
var heildarvelta bókamarkaðarins
árið 2021 rúmlega 4,1 milljarður
króna. Velta nóvember- og desem-
bermánaða var rúmir 1,6 milljarðar
eða tæp 39 prósent. Ef velta septem-
ber- og októbermánaða, 626 millj-
ónir, er tekin inn í myndina er ljóst
að haustsalan er rúm 53 prósent af
heildarveltu bókamarkaðarins.
Því er ljóst að bókaútgefendur og
bóksalar eiga mikilla hagsmuna að
gæta af þessari jólahefð Íslendinga.
Eða eins og Halldór Guðmundsson
orðar það: „Taugakerfi þeirra sem
eru í bókaútgáfu er náttúrlega þanið
til hins ýtrasta á þessum vikum.“
Spurð um hvort jólabókaflóðið sé
á förum eða hvort það sé komið til
að vera segir Hólmfríður Úa:
„Á meðan Íslendingar kunna enn
að meta þessar fínu bækur sem við
erum að fá fyrir jólin og gefa þær í
jólagjöf, þá er jólabókaflóðið ekkert
að fara. Ég náttúrlega vona að það
lifi sem lengst því mér finnst það
dásamlegt.“ n
70 Menning 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið