Fréttablaðið - 26.11.2022, Qupperneq 120
Afternoon Tea 5.890 kr. á mann
Með glasi af Prosecco freyðivíni 6.890 kr. á mann
Bókaðu borð á fjallkona.is
SAVOURY
Bláberjaskonsur
Þeytt íslenskt smjör og tvær tegundir af sultu
Confit önd á vestfirskri hveitköku
Andaconfit rillet, karamelluseruð epli, Maltsósa, appelsínusósa
Lax & lummur
Bláberja og dill-grafinn lax, kjúklingabaunalummur, hrogn,
piparrótarsósa, stökkar linsubaunir, yuzu-illiblómadressing
Craffla (croissant + vaffla)
Parmaskinka, piparrótarostakrem, parmesan,
parmesan “crisp”, granatepli
Jólasamloka
Hamborgarahryggur, gulróta- og grænbaunamæjó
SÆTT
Eton Mess skyr ostakaka
Hvítsúkkulaði-skyrmús, marengs, hindber, hindberjasósa
Þrista-súkkulaðiterta
Súkkulaði, Þristur, vanilluís, þeyttur rjómi
Bollakökur
Red Velvet > hindaberjafylling, rjómaosta-skyrkrem
Súkkulaðifudge > dulce de leche fylling, súkkulaðikrem
Sörur
Makkarónur
JÓLA
AFTERNOON
TEA
ALLA DAGA 14.30–17.00
Að skrifa er bara að
segja sögu eða segja frá
og við erum alltaf að
segja frá. Líf okkar er
frásögn og saga og við
getum öll skrifað.
Sunna Dís
Másdóttir, rit-
höfundur og
leiðbeinandi í
ritlist
Það getur verið erfitt að fá
góða hugmynd þegar skrifa á
skapandi texta. Ein leið til að
nálgast hugmyndavinnu er
nýta sér kveikju til að koma
sjálfum sér af stað.
ragnarjon@frettabladid.is
Skapandi skrif þurfa alls ekki að
vera eitthvað sem bara grafalvar-
leg verðlaunaskáld taka sér fyrir
hendur. Það þarf ekki að vera þann-
ig að í hvert skipti sem við snertum
lyklaborðið eða setjum penna við
hvítt blað þurfi útkoman að vera
ódauðleg. Góð leið til þess að halda
sér í æfingu getur verið að nýta sér
kveikju en það er stuttur texti sem
setur fram hugmynd sem hægt er að
þróa og útfæra.
Fréttablaðið birtir hér átta kveikj-
ur sem áhugasamir geta notað
til þess að kynnast æfingum sem
þessum. Þessar kveikjur eru allar
birtar sem fyrstu persónu frásagnir
en að sjálfsögðu er öllum frjálst að
skipta um sjónarhorn og breyta ein-
staka þáttum í kveikjunni. Til þess
að leikurinn gerður.
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur
og leiðbeinandi í skapandi skrifum,
segir að kveikjur séu góð leið til þess
að halda sér í formi sem rithöfundur
og notar þær óspart í námskeiðum
sínum.
„Það er hægt að keyra heilu nám-
skeiðin út frá þessu þegar fólk fær til
dæmis sendar kveikjur, svo gerist
eitthvað þegar neistinn kviknar,“
segir Sunna Dís en hennar ráð til
þeirra sem hafa áhuga á að byrja að
skrifa er að dæma sig ekki of hart.
„Langmikilvægast er að bremsa
sjálfan sig ekki af og senda dóm-
harða ritstjórann af öxlinni í frí,“
segir hún og bætir við „Við erum
alltaf okkar eigin hörðustu dómarar
og bara mjög ósanngjarnir oft.“
Sunna telur þannig einnig góða
æfingu að deila með öðrum því sem
maður hefur skrifað.
„Það er ótrúlega hollt. Það er
rosalega gott að viðra textann sinn
aðeins og getur líka verið æfing í
því að standa með honum. Ég hef
til dæmis verið að keyra námskeið
þar sem fólk fær sendar kveikjur frá
mér á hverjum degi og svo erum við
með hópa þar sem fólk birtir efni
sitt eða ekki,“ segir Sunna en auð-
vitað sé valfrjálst hvort fólk sýni það
sem það hefur skrifað.
„Það er mjög misjafnt hvort fólk
vill þetta eða ekki. En ég held að
þegar maður er kominn þangað
og treystir sér til þá er rosa gott að
rífa þann plástur af,“ segir hún en
kveikjur geti einnig komið í marg-
víslegum formum.
„Þessar tegundir af kveikjum eru
líka bara eitt form þeirra. Þegar
maður er skrifandi eða langar að
vera að skrifa þá er maður alltaf að
leita að kveikjum alveg sama í hvaða
formi þær eru,“ segir Sunna Dís en
hún telur það öruggt að allir geti
skrifað. „Já algjörlega. Að skrifa er
bara að segja sögu eða segja frá og
við erum alltaf að segja frá. Líf okkar
er frásögn og saga og við getum öll
skrifað. Það er bara þannig.“
Sunna Dís kemur til með að vera
með námskeið næst í janúar og
verður hægt að skrá sig á þau í gegn-
um Facebook-síðu hennar sem ber
sama nafn og hún. n
Átta kveikjur fyrir
skapandi skrif
Það getur stundum verið erfitt að finna hugmyndir til að skrifa um og því er góð æfing að fá hugmyndir lánaðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1
Draugasagan
Þú neyðist til að fara í einangrun vegna
faraldursins. Þú færð íbúð að láni frá vina-
fólki. Þú ert sá eini sem er með lykla. Þegar
þú situr á klósettinu í fyrsta skipti er bankað
á hurðina.
2
Ástarsagan
Þú ferð í gegnum gamla muni á háaloftinu.
Þú finnur fyrir tilviljun gamlan jakka sem þú
klæddist síðast á menntaskólaballi. Í hliðar-
vasanum er bréf. Þetta bréf er ástarjátning
frá honum/henni. Þeim sem þú þráðir á þeim
árum.
4
Dramatíska sagan
Þú ert í brúðkaupsferðinni þinni með maka
þínum. Stuttu eftir að þið hafið lagt af stað
áttar þú þig á því að þú elskar manneskjuna
ekki lengur.
3
Vísindaskáldsagan
Evrópusambandið vinnur kapphlaupið til
Mars árið 2087. Þegar fyrsta fólkið kemur á
yfirborðið finna þau kínverskan fána sem
skilinn hefur verið eftir. Hvers vegna sögðu
Kínverjarnir ekki frá?
5
Grínsagan
Þú deyrð og endar í helvíti. Djöfullinn verður
brjálaður þegar þú gengur inn um dyrnar
því þú ert kornið sem fyllti mælinn. Hann er
hættur. Hann setur veldissprotann í þínar
hendur og flýgur aftur til himinríkis. Hvað
gerir þú?
6
Ráðgátan
Þú ert leigubílstjóri í stórborg. Þú tekur upp
enn einn farþegann en þegar þér verður litið í
baksýnisspegilinn bregður þér í brún. Aðilinn
lítur út alveg eins og þú.
7
Barnasagan
Í tré sem stendur svo hátt að það nær upp í
skýin búa bleikir apar með vængi. Þeir búa þó
í stöðugum ótta því risi gengur laus í trénu og
neitar að sofa á nóttunni. Hvernig svæfir þú
risann?
8
Fantasían
Galdrar hurfu af jörðinni fyrir þúsundum ára.
En þeir fóru ekki langt heldur bundu fornir
galdramenn þá djúpt í iðrum jarðar. Ef við
höldum áfram að grafa dýpra eftir jarðelds-
neyti munu þeir sleppa aftur og galdrastríð
brjótast út. Þú einn/ein veist af þessu vanda-
máli.
76 Lífið 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ