Peningamál - 18.11.2020, Qupperneq 47
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
2
0
•
4
47
Eins og fyrri ár birtir Seðlabankinn í nóvemberhefti Peningamála
samantekt á því hvernig bankanum tókst til við að spá um fram-
vindu efnahagsmála á nýliðnu ári. Með því er reynt að draga fram
helstu orsakir frávika í spám bankans svo að hægt sé að læra af þeim
og nýta til að bæta spágerðina og líkön bankans.
Árið 2019 einkenndist af miklu umróti í efnahagsmálum og
tóku efnahagshorfur töluverðum breytingum við fall flugfélagsins
WOW Air í mars það ár. Spár bankans sem gerðar voru fyrir fall
félagsins reyndust því of bjartsýnar. Spár bankans strax í kjölfarið
reyndust hins vegar of svartsýnar sem helst má rekja til þess að
samdráttur útgjalda heimila og fyrirtækja beindist í ríkari mæli að
innflutningi vöru og þjónustu en gert hafði verið ráð fyrir. Framan af
árinu reyndust verðbólguspár bankans einnig heldur svartsýnar og
virðist það helst mega rekja til ofmats á áhrifum lækkunar á gengi
krónunnar á verðbólgu og verðbólguvæntingar.
Miklar breytingar urðu á hagvaxtarhorfum í kjölfar falls WOW Air
Spár bankans fram eftir ári 2018 gerðu ráð fyrir um 2¾-3% hag-
vexti árið 2019 eins og mynd 1 sýnir. Bankinn varð hins vegar smám
saman svartsýnni um horfurnar og í spá Peningamála frá febrúar
2019 var hagvaxtarspáin komin niður í 1,8%.1 Þar vó þungt að
rekstrarvandi WOW Air var að verða æ ljósari. Strax undir lok árs
2018 tók félagið að draga úr umsvifum sínum og selja flugvélar úr
rekstri. Áfram var þó gert ráð fyrir að flugfélaginu tækist að bjarga
sér fyrir horn og halda áfram rekstri. Þegar leið á marsmánuð 2019
var hins vegar orðið æ ljósara að það tækist ekki. Þá bættust við
vandræði Icelandair vegna kyrrsetningar nýrra Boeing 737 MAX-
þotna félagsins en áætlanir þess höfðu gert ráð fyrir að þær myndu
standa undir tæplega þriðjungi flugferða þess sumarið 2019. Spá
um þróun útflutnings á árinu var því lækkuð í febrúarspá bankans
og enn frekari lækkun varð í maíspánni en sú spá var fyrsta spá
bankans eftir að WOW Air varð gjaldþrota í lok mars. Í stað áfram-
haldandi vaxtar útflutnings var talið að hann myndi dragast saman
um tæplega 4% á árinu og hefur sú spá í meginatriðum gengið eftir
(mynd 2).
Í maíspá bankans voru hagvaxtarhorfur fyrir árið 2019 því
færðar enn frekar niður og spáð 0,4% samdrætti. Áfram var spáð
samdrætti á árinu í síðustu spá ársins en þá lágu fyrir þjóðhagsreikn-
ingar fyrir fyrri hluta ársins. Þegar Hagstofa Íslands birti fyrsta mat
á hagvexti ársins 2019 í febrúar 2020 kom hins vegar í ljós að spár
bankans sem gerðar voru í kjölfar falls WOW Air höfðu reynst of
svartsýnar og að hagvöxtur ársins var í reynd 1,9% sem er svipaður
vöxtur og gert hafði verið ráð fyrir í febrúarspá bankans.
Horfur um vöxt innlendrar eftirspurnar versnuðu verulega …
Versnandi útflutningshorfur höfðu veruleg áhrif á spár bankans um
þróun innlendrar eftirspurnar (mynd 3). Horfur um vöxt einkaneyslu
voru endurskoðaðar verulega niður á við og frá og með maíspánni
2019 var spáð um 1½% vexti á árinu í stað um 4% í febrúarspánni
og hefur sú spá í meginatriðum gengið eftir. Í maí var gert ráð fyrir
að atvinnuvegafjárfesting myndi dragast saman um tæplega 7% á
árinu en eftir því sem leið á árið varð ljóst að það var vanmat og
reyndist samdrátturinn töluvert meiri eða 18%. Þá voru spár um
eftirspurn hins opinbera einnig færðar niður í maí og gert ráð fyrir
liðlega 2% vexti á árinu sem hefur gengið eftir.
1. Þegar spá bankans fyrir Peningamál 2019/1 er gerð í febrúar 2019 liggja
einungis fyrir þjóðhagsreikningar frá Hagstofu Íslands til og með þriðja
ársfjórðungi 2018.
Rammagrein 4
Spár Seðlabankans um
efnahagsþróun ársins
2019
Breyting frá fyrra ári (%)
Mynd 1
Hagvaxtarspár Peningamála fyrir árið 20191
1. Spár PM 2018/2, 2018/4 og 2019/1-2019/4 fyrir hagvöxt ársins
2019 ásamt nýjasta mati Hagstofu Íslands á hagvexti ársins.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
-1,0
-0,5
0,0
0,5
1,0
1,5
2,0
2,5
3,0
3,5
HÍ ‘19 19/4 19/3 19/2 19/1 18/4 18/2
Breyting frá fyrra ári (%)
Mynd 2
Útflutningsspár Peningamála fyrir árið 20191
1. Spár PM 2018/2, 2018/4 og 2019/1-2019/4 fyrir útflutning ársins
2019 ásamt nýjasta mati Hagstofu Íslands á útflutningi ársins.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
-7
-6
-5
-4
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
HÍ ‘19 19/4 19/3 19/2 19/1 18/4 18/2