Rökkur - 01.06.1932, Qupperneq 10
8
R O K K U R
ýmis óvinsæl lög, svo sem liegn-
ingarlög Primo de Rivera o. fl.
Víðtækar ráðstafanir voru gerð-
ar til þess að koma betra skipu-
lagi á lierinn. Alcala Zamora
fór frægðarför til Barcelona, til
þess að semja við Francisco
Macia, aðalstjórnmálaleiðtoga
Cataloniu.
En Alfonso liafði enn ekki
gefist upp að fullu. Þann 5. maí
birti blaðið A. B. C. í Madrid
viðtal við liinn afsetta konung.
Hvatti Alfonso konungssinna i
viðtali þessu, til þess að missa
ekki móðinn, sigurinn væri vís
í framtíðinni. Þ'ann 6. maí birti
Pedro Segura kardínáli, fulltrúi
páfans, hið fræga kardínálabréf
sitt í Toledo, og fór vinsamleg-
um orðum um Alfonso og stjórn
hans og livatti kaþólska menn
til samvinnu fyri r kirkjuna og
konungsveldið. Vakti þetta fá-
dæma gremju og þann 10. maí
tók múgurinn til sinna ráða og
kveikti í húsi því, sem skrifstof-
ur A B C voru í og árásir voru
einnig gerðar á ritstjórnarskrif-
stofur kaþólska blaðsins „E1 De-
bate“. — Syndikalistar gerðu til-
raunir til þess að koma á bylt-
ingakendri stjórn, allsherjar-
verkföll voru hafin o. s. frv.
Og þótt tilganginum væri ekki
náð, jók þetta vandræði og all-
mikið tjón ldaust af. Tilraun var
einnig gerð til þess að stofna
lýðveldi í Andalúsíu og stóð að
þeirri tilraun flugmajórinn
frægi, Ramon Franco, en eigi
hepnaðist honum það. — Þing-
kosningar voru nú haldnar þann
28. júní og voru róttækari flokk-
arnir i miklum meiri hluta. Þ.
14. júlí komu hinir þjóðkjörnu
fulltrúar saman í Madrid og
komst nú aftur á þingbundin
stjórn í landinu, í fyrsta skifti
á átta árum. Þjóðþingið (cortes)
tók nú til óspiltra málanna að
undirbúa nýja stjórnarskrá og
tók það all-langan tíma; er hin
nýja stjórnarskrá mjög frjáls-
leg, samanborið við grundvall-
arlög flestra landa. Gerði þjóð-
þingið svo víðtækar breytingar
i sambandi við trúarleg m.ál, að
Alcala-Zamora, sem er ka-
þólskur, baðst lausnar sem for-
sætisráðherra þann 14. okí. En
það liafði ekki alvarlegar afleið-
ingar. Don Miguel Azana mynd-
aði stjórn á ný og voru flestir
gömlu ráðherranna teknir í
stjórn hans. Alcala Zamora
hnignaði ekki í áliti að neinu
ráði og að eins í bili, enda mátti
heita, að allir flokkar væru sam-
mála um að kjósa hann fyrir
forseta lýðveldisins.
Fjárhags- og viðskiftaástæð-
ur voru slæmar á Spáni 1931,
verri en nokkru sinni. Ástæð-
urnar til þess voru margar, ekki
síst afleiðingarnar af syndum