Rökkur - 01.06.1932, Side 59

Rökkur - 01.06.1932, Side 59
R O K K U R 57 ið Islendingum til fyrirmynd- ar. Hann átti i senn hina nor- rænu hörku og' ólgandi þrá, en einnig suðrœna mildi og glóð hjartans, er brann með jöfn- um loga alt lífið til hinstu stundar. Hann var í senn nor- rænn og suðrænn, liann horfði til norðurs og hann horfði til suðurs, og í þessu felst ef til vill skýring á ágæti vísinda og lista Þjóðverja, að þeir búa í miðri álfunni, á takmörkum tveggja lieima, á takmörkum norræns þróttar og suðrænnar glóðar. En sjálfur snillingur- inn Goethe svnir þessi ein- kenni þýskrar þjóðsálar í rík- ara mæli en nokkur annar Þjóðverji, er getinn hefir verið af þýskri móður. Þess vegna minnast allar germanskar þjóðir þessa afburðasnillings í dag.l) 1) Þessi ágæta grein Alexanders Jóhannessonar prófessors birtist í dagblaðinu Vísi, þ. 23. mars, en þann dag var öld liðin síðan Goethe and- aðist. Greinin er birt í Rökkri, með leyfi höfundarins. — Öll þau kvæði Goethes, sem Steingrímur Thor- steinson þýddi, eru i safni þvi af ljóðaþýðingum hans, sem útgefandi Rökkurs er að gefa út, en af því eru tvö bindi út komin. Waterloo-Miii. — O—’ Waterloo-brúin á Tliames- fljóti, milli London-brúarinnar og Westminster-brúarinnar, var löngum talin einhver fegursta fljótsbrú í heimi. Canova, ítalski myndhöggvarinn frægi, fór þeim orðum um hana, að hann hefði enga brú fallegri séð.. Fjöldi sérfræðinga og allur al- menningur í Bretlandi hefir lit- ið brúna sömu augum og Can- ova. Féll því mörgum illa, er sú ákvörðun var tekin, að rífa brúna, og smíða aðra i hennar stað. Sérfræðingar eru þó alls eklci á einu máli um það, að knýjandi nauðsyn sé á, að rífa brúna. Skiftast þeir í flokka. Vill annar flokkurinn láta treysta brúna og endurbæta, en liinn rífa hana og smíða aðra i staðinn. Og undanfarin ár hef- ir verið harðlega deilt um þetta. Síðarnefndi flokkurinn iteldur þvi fram að stöplarnir undir brúnni hafi sigið svo mikið, að eigi verði leyst úr vandanum með öðru móti en að rífa brúna og smíða nýja i staðinn. Hefir síðarnefndi flokkurinn nú liaft sitt mál fram. London County Council hefir nú samþykt með 97 atkv. gegn 29, að rífa skuh gömlu brúna. Með tilliti til þess, að umferð eykst stöðugt, er það

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.