Rökkur - 01.06.1932, Side 65
ROKKUR
63
t'rigSissjónarmiði að sækja títt
kvikmyndasýningar. Segir í
skýrslunni, aö það sé vert að
rannsaka það atriði sérstaklega.
Börn, sem hafa verið á kvik-
myndasýningu kvarta oft yfir því,
að þau séu þreytt í augunum og
hafi höfuðverk. Börnin þurfa að
leika og skemta sér, segir í skýrsl-
unni, og helst að hafa eitthvað að
starfa, sem bæði er til gagns og
og gamans. Mætti vafalaust draga
úr kvikmyndalöngun barna með
því að leggja enn meiri áherslu á
það en gert hefir verið, aS sjá
börnunum fyrir leikvöllum og
leikskálum og vinnnustöðvum
i sambandi við þá.
Velgerðastofnanlr
1 Bandaríkjunum,
styrktar af sambandsstjórninni,
stjórnum einstakra ríkja, félög-
um og einstaklingum, vörðu $
73.757.300 á fyrsta fjórðungi
ársins 1931 til aðstoðar þeim,
sem bjargarvana voru i land-
inu. Þetta var $ 51.419.156
meira en á sama tíma 1930. —
Tölur þessar eru teknar úr
skýrslum stjórnarinnar í Was-
hington. 57.4% af íbúum Banda-
ríkjanna voru að einhverju
leyti aðnjótandi aðstoðar þess-
arar á tímabili því, sem um er
að ræða. Á hverri nóttu fengu
að meðaltali 49.411 heimilis-
lausir menn og konur húsa-
skjól og máltíð þenna tíma, en
að eins 14.037 að meðaltali á
sama tíma árið áður. Á þessu
tímabili útlilutuðu stofnanirnar
4.170.318 ókeypis máltíðum til
öreiga, en á sama tíma árið áð-
ur 671.419 máltiðum. Stofnan-
irnar önnuðust árið sem leið
um 1.287.778 fjölskyldur að
nokkru eða öllu leyti og nem-
ur aukningin, miðað við 1930,
285.7%. — í fjallaríkjunum svo-
nefndu var langminst neyð, þ. e.
í Montana, Idaho, Wj^oming,
Colorado, New Mexico, Arizona,
Utah og Nevada, en mest í iðn-
aðarríkjunum, þ. e. Atlantshafs-
strandar- og Kyrrahafsstrandar-
ríkjunum og miðvesturríkjun-
um svokölluðu.
Bálfarir aukast í Svíþjóð.
Bálfarir aukast mjög í Sví-
þjóð. í Stokkhólmi voru bál-
farir 944 talsins árið sem leið
og nam aukningin frá 1930 um
25%.
Meðlimir hálfarafélagsins í
Stokkhólmi eru 9.000. Alls eru
63 félög í Svíþjóð, sem vinna
að því að bálfarir verði almenn-
ari.