Rökkur - 01.06.1932, Page 19

Rökkur - 01.06.1932, Page 19
R O K K U R 17 sem hafa lagt bann á japanskar vörur, vegna Mansjúríu-deil- unnar. Ítalía 1931. Árið 1931 liefir að ýmsu leyti verið erfiðleika-ár i Italíu, eins og reyndin hefir orðið i flest- um löndum, en hinsvegar hefir fjárhags- og viðskiftalíf ítaliu orðið fyrir minni áföllum en koinið iiefir í ljós með auðugri og voldugri þjóðum. — Mesti f jármálaviðburður innanlands á árinu var sá, er tekið var þjóð- lán að upphæð 4 miljarðar líra til 9 ára. Borgarar landsins brugðust svo vel við, að þeir skrifuðu sig fvrir ríkisskulda- bréfum að upphæð 7 miljörð- um líra. Ríkisstjórnin álcvað þá að liækka lánið upp í 5 miljarða lira. Að lántöku þessari varð stjórninni mikill styrkur, er fjárkreppan mikla skall á. Þeg- ar Bretar hurfu frá gullinnlausn var talið, að ítalir myndu gera slíkt hið sama. Ríkisstjórnin gaf tvisvar ut stuttar tilkynningar til að neita því, og sem stendur eru allar líkur til, að sömu stefnu verði lialdið i þeim mál- um og að undanförnu. Snemma árs 1931 flaug flug- vélaflokkur undir forystu Balbo flugmálaráðherra, til Suður- Ameríku. Yar það fyrsta lióp- flug yfir Atlantshaf, og þótti frækilegt, þótt fimm flugmenn léti lif sitt á fluginu. Flugvéla- flokkurinn lagði af stað frá Bo- lam i norðvestur Afríku þ. 6. jan., og kom til Rio de Janeiro þ. 15. jan. Deilurnar milli ríkisstjórnar- innar og páfastólsins vöktu mikla eftirtekt, og enn meiri en ella liefði verið, vegna þess, að talið var, að öll deilumál liefði verið til lykta leidd. (Sætt- ir komust á rnilli páfastólsins og ítalska ríkisins 1929). Um vorið 1931 liófust deilur af nýju og voru þær ekki til lykta leidd- ar fyrr en i liaust sem leið. Deilan var aðallega um starf- semi félaganna „Azio ne Catto- iica“, sem liefir úthreiðslu ka- þólskunnar og vernd á stefnu- skrá sinni, en ríkisstjórnin á- sakaði félagsskap þennan um starfsemi gegn Fascistaveldinu. Samkomulag varð með þeim hætti, að biskuparnir skyldi liafa yfirumsjón með félögun- um hver í sínu umdæmi, en leggja skyldi niður aðalfram- kvæmdaráðið, sem hafði bælci- stöð sína í Rómaborg. Miklar vonir manna um sam- komulag um flotadeilumál ítala og Frakka fóru út um þúfur. Bresku ráðherrarnir Henderson og Alexander fóru til Róma- 2

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.