Rökkur - 01.06.1932, Page 23
R Ö K K U R
21
skiftareglum fylgdi hann ávalt:
Að taka engan i félag við sig
og forðast lántökur. Á meðan
hann var að vinna sig upp, vann
hann aldrei skemur en 12 stund-
ir á sólarhring. Og engar skemt-
anir stundaði hann á þeim ár-
um eða tók sér hvíld, nema á
helgidögum. Langa hvíld frá
störfum tók hann fyrst í febrúar
1927.
Þegar Edward VII. Bretakon-
ungur var prins af Wales, gaf
Sir Thomas 500.000 dollara í
góðgerðaskyni. Var liann þá
kominn í kynni við helstu menn
Bretlands og varð mikill vinur
prinsins.
Sir Thomas hafði mikinn á-
áhuga fyrir sportsiglingum. —
Hafði hann mikinn áhuga fyrir
því, að vinna sigur í kappsigl-
ingu við Bandarikjamenn um
„The American Yacht Cup“, og
lét hann smíða hraðsiglinga-
snelckju í því skyni 1898. Hét
hún „Shamrock“. Kappsiglingin
fór fram 1899, en „Sliamrock“
beið ósigur. Hann reyndi aftur
1901, 1903 og 1920, og fimtu
hraðsiglingasnekkjuna lét liann
smíða 1929, en hún („Shamrock
V.“) beið ósigur í kappsiglingu,
sem háð var í fyrra. Snekkja
H. Vanderbildt’s, „Enterprise“,
bar sigur úr býtum. En Sir Tho-
mas var einn þeirra manna, er
kunna að taka ósigri með jafn-
aðargeði, og aldrei kom honum
til hugar að leggja árar í bát.
Seinast í fyrra kvaðst hann ætla
að reyna einu sinni enn. Var
hann í miklum metum með
Bretum og eigi síður með
Bandaríkjamönnum.
Hellsnfar skólabarna
í Bretlandi.
—° -
Á meðal þeirra framfara, sem
þjóðféláginu hafa orðið til
mestra heilla undanfarinn ald-
arfjórðung, ber óhikað að telja
hve heilsufar skólabarna hefir
batnað í Bretlandi. Jafnvel seim
asta áratug, þrátt fyrir atvinnu-
leysi í mörgum iðngreinúm,
liefir heilsufar barna lialdið
áfram að batna. Kemur þetta
glögt í ljós í ársskýrslu fræðslu-
málaráðuneytisins fyrir 1930,
en í ársskýrslu þessari er rit-
gerð eftir Sir. George Newman,
aðallækni fræðslumálaráðsiiis,
um heilsufar skólabarna. Eins
og vitanlegt er gerir Sir George
aðallega að umtalsefni starf
læknanna í barnaskólunum'.
Þegar skipulagsbundin lækn-
ingastarfsemi hófst í barnaskól-
unum árið 1907 er talið að 10%