Rökkur - 01.06.1932, Side 26

Rökkur - 01.06.1932, Side 26
24 R O K K U R Ferðalög fuglanna. (Grein sú, sem hér fer á eftir, er eftir enskan fuglavin. — Hér á landi licfir liáttum far- fugla verið minni gaumur gef- inn en skyldi. Með samtökum þcirra manna, sem best eru settir til þess að athuga komu og brottför farfugla, mætti á skömmum tíma safna margvís- legum fróðleik um ferðir þeirra, og gæti það bæði verið til gagns og gamans). Farfuglum er eiginlegt að fara með ströndum fram á ferð- um sínum, hvar sem því verður við komið. Margir farfuglar frá heimskautslöndum, Norður- löndum og meginlandi álfunn- ar, fljúga vestur á bóginn og slást í för með breskum far- fuglum, og eykst við það liinn mikli fjöldi haustfugla, sem svífur suður með Bretlands- ströndum, yfir Ermarsund og þaðan suðvestur með vestur- strönd álfunnar. Þessi langa strönd er fuglunum öruggur leiðarvísir til vetrarstöðva þeirra. Margir smáfuglar fljúga að eins á meðan bjart er, þegar þeir fara með ströndum fram, fara í hægðum sinum og lialda jafnvel kyrru fyrir nokkura daga. Svo er t. d. um máríuerl- ur, svölur o. m. fl. Þegar menn gefa gætur að farfuglum, sem fljúga á daginn, keniur það í ljós, að hér um bil 5 af liundraði (lauslega áætlað) hvíla sig með skömmu milli- bili, en viðstöðutiminn fer eft- ir atvikum. Ef veður er kyrt og gott, fara þeir sér hægt, og nota tækifærið til þess að tína sér flugur, sem nóg er af í þara- brúkum. Meðal flughraði flestra farfugla er um 25 mílur enskar á klukkustund í kyrru veðri. Þegar stinningskaldi er, og fugl- arnir eiga gegn veðri að sækja, dregur úr hraðanum, en flýtir honum, ef vindurinn er á eftir. Svölur þjóta áfram á bylgju- flugi í hér um bil 40 feta hæð, og geta flogið um 100 mílur á klukkustund. Þessir litlu fuglar fljúga venjulega um sex stundir á dag að haustinu, og hvílast oftast upp úr hádegi. Margir fuglar fljúga dag eftir dag, allir í eina átt, allir í skipulegum fylking- um, allir jafnhratt, þegar um eina og sömu tegund er að ræða, og lialda uppi óslitnum straumi i nokkura daga, hvíld- arlaust, nema þegar stórviðri eða þokur skella á, sem neyða þá til þess að halda kvrru fyrir. Oft ber það við, að fuglar, sem fljúga um nætur, tefjast við vita eða fara sér þar að voða.

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.