Rökkur - 01.06.1932, Side 28
26
R O K K U R
skapinn á Vífilsstöðum að um-
talsefni er sú, að um þetta efni
vilja margir fræðast, sem ekki
hafa greiðan aðgang að því, sem
um það hefir verið rilað áður.
Heilsuhælið tók til starfa
1910, eins og kunnugt er. Er
talið, að ræktaða landið hafi þá
gefið af sér 60 hesta. Ríkissjóð-
ur byrjaði búskap á jörðinni
1916 og hefir rekið hann siðan.
Aðalræktunin liefst um það
leyti, er Þorleifur heitinn Guð-
mundsson tók við búsforráðum.
Naut hans við til ársins 1925.
Síðan hefir núverandi bússtjóri
Björn Konráðsson stjórnað bú-
inu. Starf það, sem þessir tveir
menn hafa int af liendi á Víf-
ilsstöðum, er mikið og gott. I
grein Gunnars Árnasonar í
„Búnaði sunnanlands“ segir
svo: — „Báðir bússtjórarnir,
sem nefndir hafa verið, hafa
liaft hinn mesta áhuga fyrir
ræktuninni; báðir liafa þeir
verið kunnugir Sigurði Sig-
urðssyni búnaðarmálastjóra
og sótt til hans ráð og eldmóð
til að ráðast i framkvæmdirn-
ar, og má þvi þangað eins og
víðar, þar sem fagurt tún hvl-
ur grýtta mela eða forarmýr-
ar, rekja slóð hans. Þörf bús-
afurða handa hælinu gerði og
sitt — og einnig hátt verðlag a
afurðum — til að ýta undir
ræktunina.
Nú eru komnir i fulla rækt
52 ha. af mýrum og melum, og
geta menn gert sér glegsta hug-
mynd um land það, sem rækt-
að hefir verið, með þvi að
skoða lioltin og mýrarnar utan
túns, sem eru ekki verri til
ræktur.ar en land það, sem
þegar er komið i fulla rækt.
Aðallega hefir áhuganum í
nýræktinni verið beint að tún-
rækt, cn nú s.l. ár liefir einnig
verið tekið til óspiltra mála
með garðræktina, bæði utan
húss og innan.“
Nýyrkjan á Vífilsstöðum tók
hröðum skrefum, þegar þúfna-
baninn kom til sögunnar 1921
—1922, enda var þá hin al-
kunna veti’armýri tekin til
ræktunar, og er nú orðin að
grasgefnu þurru túni. Mýri
þessi er talin hin óálitlegasta,
sem tekin hefir verið til rækt-
unar enn sem komið er hér á
landi. Alt ræktaða landið er
nú um 156 dagsláttur og gefur
af sér fulla 2000 hesta af töðu
í meðalári. (1930: 2400 hest-
burðir, en 1931 1800 hestburðir,
sem er með minsta móti, enda
spratt seint í sumar vegna
þurka í vor og fyrri part
sumars.) Bústofninn hefir
einnig aukist jafnhliða rækt-
uninni. Eru nautgripir nú um
70 á Vífilsstöðum, þar af um
60 mjólkandi kýr. Árið 1929