Rökkur - 01.06.1932, Side 40

Rökkur - 01.06.1932, Side 40
38 R Ö K K U R ínu. Þegar komið var undir morgun, segir kóngurinn: „Nú verð eg að i'ara heim, en þarna kemur stormkóngurinn mágur ókkar; talaðu við hann, það gæti verið að hann hefði séð hana, þvi hann er allstaðar og smýgur inn í hverja holu.“ í sama vetfangi stóð storm- kóngurinn hjá þeim og er hann heyrði hvað það var, sem Argil- usi var hugur á að vita, þá mælti hann: „Já, víst veit eg hvar hún er niður komin. Eldkóngurinn Hólófernes heldur henni ánauð- ugri í helli nokkrum neðanjarð- ar; þar verður hún að þvo eld- húsgögn lians í logandi læk; það er ákaflega heitt á henni þar neðra og mörgum sinnum hefi eg andað að henni svala.“ „Fyrir það kann eg þér kæra þökk, mágur,“ mælti Argilus,“ en flyttu mig til hennar eins fljótt og þú getur.“ • „Það er guðvelkomið,“ ans- aði stormkóngurinn, tók að blása og þaut af stað með Argil- us og var hann óðara kominn með liest sinn að hellinum. Varð Trölla-Elín svo fegin, er liún sá hann, að hún misti ketilinn, sem hún hélt á, niður i logandi læk- inn, en Argilus hafði engin orð heldur kipti liann konu sinni upp til sín og þeysti burtu eins hart og hesturinn gat farið. ■ Eldkóngurinn Hólófernes var þá staddur í herbergi sínu og heyrði voðahark í hesthúsi sínu. Hann fer þangað ofan og sér að Fægarot hestur hans prjónar upp hneggjandi, gnagar jötuna og stappar hófum í gólf- ið. Fægarot var ólíkur öllum hestum öðrum, hann skildi manna mál; var sjálfur máli gæddur og hafði níu fætur. „Þvi læturðu svona, eins og þú sért vitlaus?“ kallar Holó- fernes, „hefirðu ekki fengið nægju þína af heyi og höfrum eða hafa þeir gleymt í dag að brynna þér?“ „Nægju mína hefi eg fengið af höfrum og heyi og brynt hef- ir mér verið,“ svaraði Fægarot, „það er ekki það, sem að er, en Trölla-Elín liefir verið brott numin.“ Þá reiddist eldkóngurinn svo að skeggið dúði og hristist, en Fægarot sagði: „Vertu rólegur, þér er óhætt að borða og drekka, enda að fá þér dálítinn dúr, taki eg þrjú stökk að eins, þá liefi eg náð þeim.“ Holófernes gerði eins og hest- urinn sagði, og er hann hafði hrest sig og hvílt sig, varp hann sér á bak Fægarot og sem hann hafði tekið þrjú stökkin hafði hann náð Argilusi, reif Trölla- Elínu úr fangi hans og kallaði í því er hann sneri við hestinum:

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.