Rökkur - 01.06.1932, Side 60
58
R O K K U R
að líkindum viturleg ráðstöfun.
A brúnni eru þrjár brautir (li-
nes) fyrir vagnaumferð, en
verða sex á nýju brautinni. —
Sir Giies Gilbert Scott hefir ver-
ið falið að gera uppdrátt að nýju
brúnni, en hann gerði uppdrátt
að dómkirkjunni í Liverpool,
sem mjög er rómuð fyrir feg-
urð. Ráðgert er, að kostnaður
við að rífa gömlu brúna og
byggja þá nýju, verði 1.295.000
sterlingspund. Ríkissjóður og
sjóðir L. C. C. standa sameigin-
lega straum af kostnaðinum.
Lögð verður áliersla á, að nýja
brúin verði eigi síður fögur út-
lits en hin garnla og fræga brú,
sem nú verður að víkja.
Bertha 8. Phillpotts.
—o—-
Rertha S. Phillpotts var, eins
og mörgum mentamönnum ís-
lenskum er kunnugt, mikill vin-
ur íslands og islenskra bók-
menta. Hafa íslendingar mist
góðan vin og nýtan, þar sem
hún var, því þessi ágætlega
mentaða breska kona andaðist
skömmu eftir nýár s. 1, 54 ára að
aldri. Var hún fyrir eigi löngu
síðan gift manni að nafni Ne-
wall, báskólakennara í stjörnu-
eðlisfræði.
Bertha S. Phillpotts mun hafa
fengið áhuga fyrir Islandi og
íslenskum bókmentum fyrir
áhrif frá Eríki Magnússyni og
breska skáldinu og íslandsvin-
inum William Morris. Lagði
hún eftir það stund á að kynna
sér sem best norræn fræði og
þrisvar sinnum kom liún til ís-
lands og einnig mun liún liafa
ferðast um Danmörku, Noreg
og Svíþjóð.
Bertha S. Phillpotts var fyrir-
lesari við háskólann i Cam-
bridge. Og hún var víðkunnur
rithöfundur. Liggja eftir hana
þessar bækur: „Kindred and
Clan“, „The Elder Edda and
Scandinavian Drama“ og „Edda
and Saga“.
Þykir sérstök ástæða til að
vekja athygli á þeirri bókinni,
sem síðast var nefnd, því hún
er fyrir stuttu útkomin. Hún
var gefin út árið sem leið i hinu
alkunna og vinsæla „Home Uni-
versity Library of Modern
Knowledge“.
Þessi bók Berthu S. Phillpotts,
„Edda and Saga“, er eins og
nafnið bendir til, samin til að
kvnna mönnum og skýra Edd-
urnarbáðar og sagnagerðlslend-
inga að fornu. Ber bókin höf-
undinum vitni um mikla elju og
þekkingu, en auk þess er bók-
in svo vel rituð, að efni henn-
ar er Ijóst og aðgengilegt hverj-