Rökkur - 01.06.1932, Síða 80

Rökkur - 01.06.1932, Síða 80
78 ROKKUR var nú dregið upp að sigluhún og stefnt til strandar og farið svo ná- lægt, að ef tollverðir hefði komið niður að ströndinni, þá hefði þeir getað skotið á þá. En öll varúð virt- ist óþörf. Innan stundar komu bát- ar úr landi. Voru þeir og skipsbát- urinn hafðir i flutningum, og klukk- an tvö að morgni næsta dags var allur farmurinn kominn á land. Og þegar því var lokið, var hagnaðin- um skift. Hver maður fékk sinn hlut. Því skipstjóri hafði vit á því, að vera reiðilegur við menn sína, til að koma í veg fyrir alla óánægju. En ekki var í ráði að hvílast, held- i:r var ákveðið að sigla til Sardíníu og taka þar nýjan farm. Hepnaðist sú ferð einnig vel. Hepnin var með „La Jeune Amélie“ og þeim, sem á henni voru. Á Sardíníu var tekinn farmur af Havana-vindlum, sherry og Malagavínum, og átti að flytja þetta til hertogadæmisins Lucca. Þegar þeir voru í þann veginn að fara þaðan, lentu þeir i bardaga við tollgæsluliðið. Einn tollvarðanna beið bana og tveir skipsmanna af „La Jeune Amélie“ særðust. Annar þeirra var Dantés. Hann hafði þó eigi særst mikið. Byssukúla hafði strokist við vinstri öxl hans og blóð- merkt hann dálitið. Dantés hló að þessu, og það lá við, að hann ósk- aði þess, að hann hefði verið merkt- ur betur en raun varð á. í hans aug- um voru líkamegar kvalir ekkert óttaefni lengur. Og þegar hann leit á tollvörðinn engjast sundur og saman af kvölum, þá hafði það eigi nein áhrif á hann, og einnig yfir þessu gladdist Dantés. Honum var það fagnaðarefni, að öll viðkvæmni var upprætt úr huga hans, því að það var á hörku, sem hann mundi þurfa á að halda í framtíðinni, en ekki mildi og viðkvæmni. — Dantés hafði hnotið við, er byssukúlan straukst við öxl hans, og Jacobo hélt, að hann hefði hlotið banasár og æddi til hans. Leit Jacobo á hann sem vin og félaga og vildi í öllu að honum hlynna sem best. Heimurinn fór þá ekki eins mikið batnandi eins og Pangloss læknir hélt, og heldur eigi eins versnandi og Dantés hafði haldið, frá því er hamingjan sneri við honum bakinu á unglings- árum. Og þó að Dantés væri hertur orðinn, þá gat hann þó ekki varist því, að finna til hlýju, er Jacobo lét í ljós mikla gleði yfir því, að sárið var ekki mikið. Smyglarnir höfðu birgðir græðijurta á skipinu, og voru þær notaðar til að græða sár Dant- ésar og greri það fljótt og vel. Yarð það hlutskifti Jacobo að græða sár hans. Til þess að prófa hann, bauð Dantés honum eitt sinn fé, en Ja- cobo þótti miður, að Dantés skyldi gera það, og neitaði þvi harðlega, að taka nokkurn pening af honum. Leiddi þetta, og eins það, sem á undan var gengið, til þess að Dantés og Jacobo urðu félagar. En altaf leit Jacobo á Dantés sem væri hann honum æðri, þótt þeir væri jafningj- ar, að þvi er starfa þeirra á skipinu snerti. Og það atvikaðist þá þannig, þeg- ar þeir sigldu fram og aftur um hið bláa Miðjarðarhaf og hin örugga hönd Dantésar stýrði skipinu, og alt var í besta lagi, að Dantés fræddi Jacobo á margan hátt, eins og Faria ábóti hafði áður frætt hann forð- um, í Ifkastala. Hann gerði Jacobo kunnan siglingaleiðum öllum, kendi honum að stýra eftir kompás, kendi honum að lesa á „bókina miklu“v sem var opin yfir höfðum þeirra, himinbókina, stjörnubókina, eða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.