Rökkur - 01.06.1932, Síða 81

Rökkur - 01.06.1932, Síða 81
R 0 K Ií U R 79 skýjabókina, eins og Dantés kallaði hana, Og þegar Jacobo spnrði hann hvers vegna hann væri að hafa fyr- ir því að kenna sér, óbreyttum sjó- manninum, alt þetta, þá svaraði Dantés: „Hver veit? Kannske þér verðið skipstjóri einhverntíma. Samlandi yðar einn varð keisari.“ Jacobo var sem sé Korsikubúi, en oss mun hafa láðst að geta þess. Hálfur þriðji mánuður var nú lið- inn síðan Dantés gerðist skipsmað- ur á „La Jeune Amélie“. Hann var enn leiknari siglingamaður nú en hann áður var, því að hann hafði mikið lært af smyglunum. Hann kunni nú skil á ótal merkjum, sem smyglar gáfu hverjir öðrum, og margt fleira hafði hann lært i sjó- ferðunum þennan tíma. Líldega fór hann um það bil tuttugu sinnum fram hjá eyjunni Monte Christo í ferðum þessum, en fékk aldrei tæki- færi til að stíga þar á land. Var honum nú efst í huga, þegar tími sá væri út runninn, sem hann hafði lofað að vera á „La Jeune Amélie“, að leigja sér litla seglskútu og fara upp á eigin spýtur til Monte Christo. Dantés vissi vel, að hann yrði að fara varlega, ef til vill myndi félagar hans á „La Jeune Amélie“ gefa honum nánar gætur. Fangavistin hafði gert Dantés gæt- inn, en hann vissi þó vel, að altaf varð að hætta á eitthvað. Dantés hugsaði títt um þetta, og eilt sinn: er hann enn var að hug- leiða þetta með sjálfum sér, kom skipstjórinn til hans, en hann har nú hið besta traust til Dantésar og lagði mikið kapp á að gera hann fráhverfan því að fara af skipinu. Þetta var að kveldlagi, og fóru þeir, Dantés og skipstjóri, til gistihúss nokkurs í Via del’ Oglio, en þar var aðalsamkomustaður smyglanna í Leghorn. Ræddu þeir þar vandamál sín. Dantés hafði verið nokkrum sinnum áður á slikum fundi. Og þá — eins og nú, — er hann virti fyr- ir sér þessa harðgerðu, frjálsmann- leg'u og veðurbörðu sjókappa, er fóru sínu fram í trássi við lög og rétt um alt Miðjarðarhaf, hugleiddi hann hve miklum völdum viljasterk- ur maður gæti náð i þeirra hóp. Að þessu sinni var rætt um dýrmætan skipsfarm, heilan skipsfarm af tyrkneskum teppum og öðrum Aust- urlandavarningi, sem umhlaða þurfti, án þess að tollverðir yrðu varir við, á afskekktum stað, og smygla að þvi loknu til Frakklands. Ef þetta áform heppnaðist, var stór- gróði i aðra hönd. Hver einasti þátttakandi gat búist við að hagn- ast um fimtíu til sextíu pjastra. Skipstjórinn á „La Jeune Amélie“ stakk upp á því, að nota eyjuna Monte Christo fyrir umhleðslustað. Kvað hann eyjuna hina ákjósanleg- ustu til þessara hluta. Hún væri óbygð, sjóliðsmenn og tollverðir legði þangað aldrei leið sína. Kvað hann svo að orði, að samkvæmt gömlum sögnum hefði Merkúrius, guð þjófa og kaupsýslumanna — sem vér nú á tímum aðgreinum i tvo flokka, en að vísu skylda — skapað eyju þessa i miðju hafinu, og síðan hefði eyjan alt frá þeim tímum verið fyrir utan valdsvið þeirra, sem laganna ætti að gæta. Ætti því einnig vel við þess vegna, að velja stað þennan, þegar eins væri ástatt og nú. Dantés varð glaður og hrærður í geði, er skipstjórinn kom með þessa uppástungu. Reis hann á fætur og fór að ganga um gólf, til þess að:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.