Fréttablaðið - 21.01.2023, Qupperneq 2
Við reynum að vera
landi og þjóð til sóma
og öskra okkur hása.
.
Ólafur Helgi
Kristjánsson,
eigandi Brass
erie Kársness
HM-draumurinn að fjara út
Vonir Strákanna okkar um að komast í átta liða úrslit Heimsmeistaramótsins í handbolta eru nánast úr sögunni eftir 35–30 tap gegn Svíþjóð í gær. Eftir jafnan
leik framan af sigu Evrópumeistararnir örugglega fram úr í seinni hálfleik og tryggðu sér um leið efsta sæti milliriðilsins. Ísland þarf því að treysta á hagstæð
en langsótt úrslit úr öðrum leikjum í lokaumferð riðlakeppninnar á morgun. Fréttablaðið/EPa
Um hundrað manna hópur
heldur til Lyon í Frakklandi
um helgina til að hvetja
Bocuse d’Or-lið Íslands.
Ólafur Helgi Kristjánsson,
eigandi Brasserie Kársness,
heldur utan um hópinn
sem verður í KSÍ-treyjum og
stefnir á að gera allt vitlaust.
benediktboas@frettabladid.is
fólk „Sum matreiðslufötin, eins
og Danir og Norðmenn eru að bera
fram á, eru gerð af konunglegum
gullsmiðum og kosta tugi milljóna.
Ísland hefur yfirleitt staðið sig vel
og það var því smá skellur þegar
ríkið hætti að styrkja okkur. En við
stefnum hátt sem endranær,“ segir
Ólafur Helgi Kristjánsson, eigandi
Brasserie Kársness í Kópavogi, sem
fer ásamt um 100 Íslendingum á
Bocuse d’Or keppnina í Lyon.
Bocuse d’Or er heimsmeistara-
keppni í matreiðslu og mun íslenska
liðið keppa á mánudag. Sigurjón
Bragi Geirsson keppir fyrir Ísland
og er farinn utan með aðstoðarfólki.
Alls taka 24 lönd þátt. Kokkarnir
hafa fimm og hálfan tíma til að
búa til sjávarréttadisk úr skötusel
og hörpuskel fyrir 15 manns. Tvær
grænmetisskreytingar fara á fatið og
eitt skraut af „ragout“ gerð sem sýnir
belgjurt frá þátttökulandinu.
Sigurjón tryggði sér þátttökurétt
í mars með því að ná fimmta sæti.
„Hann er búinn að vera við
æfingar í tvö ár. Það eru tíu manns
með honum til að aðstoða hann og
ætli það hafi ekki farið um tonn af
búnaði og mat með þeim.
Við förum um 100 manns héðan
frá Íslandi. Flestallir úr veitingageir-
anum, birgjar og fjölskylda hans.
Það er líka stór og mikil matvæla-
sýning í kringum keppnina sem er
skemmtilegt að fara á,“ segir Ólafur.
Hann hefur áður farið með stóran
hóp til að styðja íslenska keppend-
ur, síðast árið 2017. „Það eru stúkur
eins og á íþróttakappleik. Sigurjón
er í fimm klukkutíma að elda og
það eru um fimm þúsund manns í
stúkunni að syngja og tralla.
Brasilía er fremst meðal jafningja.
Koma með hljómsveit með sér og
Bretarnir eru líka sterkir. Syngja
God save the King og allur pakkinn.
Við reynum að vera landi og þjóð til
sóma og öskra okkur hása.“
Íslandi hefur gengið vel í Bocuse
D’Or og aldrei endað neðar en í
tíunda sæti. Tölfræðin sýnir að
Íslendingar eru í hópi sex bestu
þjóða í heiminum í matreiðslu.
„Bandaríkjamenn eru að setja
milljarða í sitt lið. Þeir fóru út fyrir
mánuði og búa bara á svæðinu með
æfingaeldhús í risastórum trukk.
Liðið þeirra telur um 50–60 manns.
Við erum að reyna að keppa við
stóru strákana án styrkja frá ríkinu,
sem hætti að styrkja okkur í ár. Skar
20 milljónir af þannig að þetta eru
birgjar á Íslandi sem eru að láta
enda ná saman,“ segir Ólafur. n
Hundruð streyma héðan til
Frakklands á Bocuse d’Or
Sigurjón Bragi Geirsson keppir fyrir hönd Íslands en hann hélt utan á þriðju
dag. Hér fagnar hann því að hafa verið valinn. Fréttablaðið/Valli
olafur@frettabladid.is
DóMSMÁl Á miðvikudag hefst mál-
f lutningur í máli Frigusar II gegn
ríkinu og Lindarhvoli ehf. vegna
sölu á Klakka ehf., sem var ein stöð-
ugleikaeignanna sem gömlu bank-
arnir afhentu ríkinu. Fjármálaráðu-
neytið stofnaði Lindarhvol til að
ráðstafa sumum þeirra eigna.
Sigurður Þórðarson, fyrrverandi
settur ríkisendurskoðandi í málum
Lindarhvols, ber vitni en lögmaður
ríkisins og Lindarhvols, Steinar Þór
Guðgeirsson, hafði barist gegn því.
Sigurður sendi forseta Alþingis
harðorða greinargerð um Lindar-
hvol er hann hætti sem settur ríkis-
endurskoðandi. Stangast hún mjög
á við skýrslu Skúla Eggerts Þórðar-
sonar ríkisendurskoðanda sem gaf
starfsemi Lindarhvols fagra ein-
kunn.
Búast má við að í máli Sigurðar
komi fram upplýsingar sem Birgir
Ármannsson, forseti Alþingis,
hefur hindrað að líti dagsins ljós.
Hann hefur neitað að birta greinar-
gerð Sigurðar þótt forsætisnefnd
Alþingis hafi samþykkt birtingu. n
Sigurður mun tala
fyrir héraðsdómi
Sigurður Þórðarson var settur ríkis
endurskoðandi í málum Lindarhvols.
kristinnpall@frettabladid.is
Reykjavík „Dagurinn var mjög
þéttur. Við fórum í 28 útköll vegna
vatnstjóns úti um allt höfuðborgar-
svæðið, bæði í fyrirtæki og heimili,“
sagði Ásdís Gíslason, upplýsinga-
fulltrúi hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins, um verkefni gærdagsins.
„Það var helst að það væri að leka
inn á þök, svalir og staði þar sem
fólk gleymdi að hreinsa niðurföllin,“
segir Ásdís. Viðvaranir um fyrirhug-
aða asahláku gætu hafa skilað sér.
„Þegar allir hjálpast að gengur
þetta betur,“ segir Ásdís og bætir
við að slökkviliðið hafi undirbúið
sig vel.
„Við vorum með aukalega tvo
þjónustubíla til taks sem voru að fara
milli staða og vorum vel undir þetta
búin. Það reyndist heillaskref.“ n
Tugir útkalla í gær vegna vatnstjóns
Neðst í Fossvog
inum myndaðist
lón.
Fréttablaðið/
Valli
2 FréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 21. jAnúAR 2023
LAUGArDAGUr