Fréttablaðið - 21.01.2023, Blaðsíða 11
Hlutirnir gerast aldrei
af sjálfu sér. Við erum
blessunarlega á réttri
leið þegar kemur að
jafnrétti kynjanna í
íþróttum.
Guðni Th. Jóhannesson
Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2023 verða birtir á vefsíðunni island.is og á
Rafrænni Reykjavik á næstu dögum. Álagningar- og breytingarseðlar eru ekki sendir í pósti í samræmi við
breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að
senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.
Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum netbanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðsluseðil.
Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum á mínum síðum á
www.reykjavik.is eða í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.
Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar annast álagningu
og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi.
Fasteignagjöld ársins 2023, yfir 25.000 kr., greiðast með ellefu
jöfnum greiðslum á eftirfarandi gjalddögum: 30. janúar, 4. mars,
2. apríl, 2. maí, 3. júní, 2. júlí, 2. ágúst, 2. september, 2. október,
1. nóvember og 3. desember. Eindagi er 30 dögum síðar.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 30. janúar.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu afslátt af fasteigna-
skatti og fráveitugjaldi sem greitt er til Orkuveitu Reykjavíkur á
síðast liðnu ári, fá einnig að óbreyttu afslátt af fasteignaskatti og
fráveitugjaldi fyrir árið 2023 að teknu tilliti til tekjuviðmiða. Eftir
yfirferð Ríkisskattstjóra á skattframtölum elli- og örorkulífeyrisþega
gerir Fjármála- og áhættustýringarsvið breytingar á fasteignaskatti
og fráveitugjaldi. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um afslátt
þessara gjalda. Við álagningu fasteignagjalda í janúar verður afsláttur
elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins
2021. Þegar álagning vegna tekna ársins 2022 liggur fyrir í júní 2023,
verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar
tilkynntar bréflega seinnipartinn í október.
Skilyrði afsláttar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi,
sé þinglýstur eigandi fasteignar, eigi þar lögheimili og geti átt rétt
á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um
tekjuskatt og eignaskatt.
Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna
afsláttar fasteignaskatts og fráveitugjalds á árinu 2023 verði eftirfarandi:
100% afsláttur: Einstaklingur með tekjur allt að 4.950.000 kr.
A100 Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 6.910.000 kr.
80% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.950.001 til 5.670.000 kr.
A80 Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 6.910.001 til
7.660.000 kr.
50% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu 5.670.001 til 6.590.000 kr.
A50 Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 7.660.001 til
9.150.000 kr.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, veitir
allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á gjaldi fyrir meðhöndlun
úrgangs í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á
netfangið sorphirda@reykjavik.is.
Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar, Höfðatorgi, Borgar-
túni 12-14, veitir upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og
lóðarleigu og breytingar á þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga
með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is
Fasteignagjöld
2023
Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. janúar 2023.
www.reykjavik.is
Það vakti heimsathygli þegar
Sara Björk Gunnarsdóttir, ein
fremsta knattspyrnukona í
sögu Íslands, sagði frá reynslu
sinni í vikunni. Franska félag-
ið Lyon reyndi þá að ræna af
henni laununum á meðan
hún bar barn undir belti.
Frásögn Söru mun hafa áhrif
til framtíðar að mati forseta
Íslands.
helgifannar@frettabladid.is
Fótbolti Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, segir það frábært
framtak hjá Söru Björk Gunnars-
dóttur að stíga fram og segja frá
framkomu Lyon í sinn garð. Hefur
það vakið mikla athygli að Sara
steig fram og sagði frá því hvernig
franska stórveldið kom fram við
hana á meðan hún var barnshaf-
andi. Guðni var gestur í Íþróttavik-
unni með Benna Bó á Hringbraut á
föstudagskvöld.
Félagið neitaði að greiða Söru
Björk full laun á meðan hún gekk
með barnið. Var það ekki fyrr
en FIFA fór að vasast í málinu að
franska félagið gerði upp við Söru.
Þá hafði félagið lítinn áhuga á að
vita af því hvernig Sara hefði það á
meðgöngunni og voru samskiptin
lítil sem engin.
„Það var frábært framtak hjá
henni. Þessi barátta hennar mun
skila árangri, ekki bara fyrir hana,
heldur íþróttakonur í fleiri greinum
og um víða veröld. Við eigum að
fagna því að hún hafi ekki látið vaða
yfir sig í Lyon,“ segir Guðni.
Sara eignaðist sitt fyrsta barn
undir lok ársins 2021 en snéri fljótt
aftur á völlinn með Lyon. Þegar
samningur hennar var svo á enda
síðasta sumar yfirgaf Sara félagið og
samdi við stórlið Juventus á Ítalíu.
„Hlutirnir gerast aldrei af sjálfu
sér. Við erum blessunarlega á
réttri leið þegar kemur að jafnrétti
kynjanna í íþróttum. En sú var tíð
að þær þurftu að fá nýtt búningasett
og þá var gamla settinu af strákun-
um hent í þær. Það þætti óþolandi
í dag rétt eins og að eftir nokkur ár
verður það óþolandi að litið sé svo á
knattspyrnukonu sem hefur orðið
þunguð að það sé einhver svaka-
legur skellur sem eigi ekki að þola.
Það verður liðin tíð eftir nokkur ár,“
segir Guðni um málið.
Hörður Snævar Jónsson, frétta-
stjóri íþrótta á Torgi, sat með Guðna
í þættinum hjá Benna Bó og lagði
orð í belg. „Það kom skemmtilega
á óvart hversu víða þetta fór. Það
segir kannski ýmislegt um þann
prófíl sem Sara er í heimsfótbolt-
anum, afrek hennar tala fyrir sig. En
það kom manni gríðarlega á óvart
að svona stór klúbbur eins og Lyon
sé að reyna að snuða leikmennina
sína um þessa peninga, 12 milljónir
króna, fyrir klúbb eins og Lyon eru
það smáaurar í stóra samhenginu.
Þegar fram líða stundir munu félög-
in ekki gera svona því þau sjá hvaða
afleiðingar það hefur.“ n
Fagnar því að Sara hafi ekki látið vaða yfir sig
Guðni Th. mætti á Hringbraut og ræddi íþróttafréttir, eitt af því sem hann snerti á var mál Söru
Bjarkar Gunnarsdóttur. Fréttablaðið/Ernir
Vonar að Arsenal vinni þann stóra
Guðni heldur með Manchester United í enska
boltanum en er mjög hrifinn af því sem er í gangi
hjá toppliði Arsenal. Lærisveinar Mikel Arteta
hafa komið öllum á óvart með vaskri framgöngu
sinni á þessu tímabili.
„Ég dáist að Arsenal. Þar á bæ ákvað fólk
greinilega að vinna eftir einhverju langtímaplani.
Gefa Arteta smá tíma til að búa til lið. Auðvitað
fá þeir leikmenn til sín. Það er happdrættis
vinningur að fá Martin Ödegaard en það koma
líka leikmenn úr unglingastarfinu þar,“ segir
forsetinn um félagið sem situr á toppnum. Man
chester United heimsækir Emiratesvöllinn á
sunnudag, ætli rauða liðið úr Manchester að eiga
veika von á titilbaráttu þarf það á sigri að halda.
Sigur fyrir Arsenal væri hins vegar stórt skref í átt
að titlinum stóra sem félagið vann síðast fyrir
19 árum. Eftir erfiða tíma undir stjórn Arteta á
síðustu leiktíð hefur orðið gríðarleg bæting á leik
Arsenal sem Guðni fagnar.
„Það er nánast borin von að United beri sigur
úr býtum í deildinni en sem almennur áhuga
maður um knattspyrnu vona ég að það verði
Arsenal.
Það er hluti af þessu sporti að peningar geta
skipt sköpum. Ég er ekki að segja að Arsenal sé
lítið félag en þeir eru samt ekki vaðandi í seðlum
eins og ónefnd önnur lið. Ég held það verði gott
fyrir íþróttina að þeir nái að fara alla leið.“
Fréttablaðið íþróttir 1121. janúar 2023
LAUGArDAGUr