Fréttablaðið - 21.01.2023, Page 21

Fréttablaðið - 21.01.2023, Page 21
KYNN INGARBLAÐ ALLT LAUGARDAGUR 21. janúar 2023 Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is Margrét segir að hún finni mun á liðleika eftir að hún byrjaði að taka inn Active JOINT. Margrét er mikil íþróttakona og stundar þríþraut af miklu kappi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ofurkona sem keppir í þríþraut Margrét Ágústsdóttir er ótrúleg ofurkona þegar kemur að hreyfingu. Hún stundar þríþraut og lætur ekki aldurinn stoppa sig. Til að verja liði tekur hún Active JOINTS frá Eylíf. 2 Ramen-súpur eru frægar fyrir að taka sinn tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GeTTy. jme@frettabladid.is Japönsk ramen-súpa er tilvalin í veðrinu sem herjar á landann, en tekur sinn tíma. Hér er uppskrift fyrir fjóra að núðlusúpu þar sem öll brögðin í kokkabókinni eru nýtt til að fá rjúkandi skál á hálftíma. Ramen-súpa 400 g þurrkaðar ramen-núðlur 2 lítrar kjúklingasoð 1 msk. olía 250 g svínahakk 2–3 hvítlauksgeirar 2 tsk. rifið engifer + 3 engifer- sneiðar ½ dl miso 200 g spínat 3 dl maískorn (ferskt, frosið eða úr dós) 2-4 egg, linsoðin og skorin í tvennt 2 msk. sojasósa 1 msk. sesamolía vorlaukur Láttu soðið krauma með 2 hvít- lauksgeirum, 3 engifersneiðum og 1 vorlauk. Í öðrum stærri potti skal steikja á miðlungshita rifið engifer, þrjá kramda hvítlauksgeira, miso og hakk í olíu. Þegar hakkið hefur tekið á sig lit og brún skán mynd- ast á pottbotni er soðinu hellt út á gegnum sigti. Sjóddu næst núðlur í ósöltu vatni. Settu svo maís út í súpuna og spínat og slökktu undir. Bragðbættu með sojasósu og sesamolíu. Tylltu eggjahelmingi ofan á núðlurnar í súpunni og stráðu vorlauk yfir. Gott að bera fram með smjörklípu út á. n Ramen með hraði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.