Fréttablaðið - 21.01.2023, Síða 44
Kjúkling er hægt að elda á
ótal vegu og auðvelt að leika
sér með kryddblöndur fyrir
hann. Hér eru tveir kjúkl-
ingaréttir sem vert er að
prófa. Þessir réttir eru ein-
faldir en mjög góðir.
elin@frettabladid.is
Þótt þorrinn sé hafinn og gott að
fá sér smávegis af súrmat er það þó
ekki matur sem er borðaður dag-
lega. Kjúkling er hins vegar alltaf
hægt að borða og breyta á marga
vegu.
Heilsteiktur kjúklingur er vin-
sæll matur, jafnt hjá börnum og
fullorðnum. Þegar kjúklingur er
eldaður með blönduðu grænmeti,
fylltur með lauk og sítrónu, verður
hann mjög safaríkur og góður.
Uppskriftin miðast við fjóra.
Kjúklingur á grænmetisbeði
fyrir fjóra
1 kjúklingur, um það bil 1.500 g
4 msk. smjör
Rifinn börkur af einni sítrónu
4 msk. ferskt rósmarín, hakkað
smátt
1 tsk. salt
0,5 tsk. pipar
1 tsk. kjúklingakrydd, ef vill
Tveir sítrónubátar og hálfur laukur
til að troða inn í fuglinn
3 gulrætur
½ sellerírót
2 stk. fennel
2 rauðlaukar
10 möndlukartöflur
4 hvítlauksrif
2 msk. ferskt timian
50 svartar ólífur
2 msk. hunang
1 tsk. salt og pipar
Hitið ofninn í 180°C. Þerrið
kjúklinginn með eldhúspappír.
Skerið lauk og sítrónu og setjið inn
í fuglinn.
Bræðið smjör og setjið rifinn
börk af sítrónu, kjúklingakrydd,
rósmarín, salt og pipar út í.
Penslið kjúklinginn með smjör-
blöndunni og setjið í eldfast form.
Bakið kjúklinginn í einn og hálfan
tíma eða þar til hann er gegnum-
steiktur og kjötmælir sýnir
minnst 70°C.
Skrælið og skerið niður græn-
metið í grófa bita.
Blandið hvítlauk, timian,
ólífum, hunangi, salti og pipar.
Setjið allt með kjúklingnum og
eldið með síðustu 30 mínúturnar.
Takið kjúklinginn út þegar hann
hefur náð réttu hitastigi og látið
hann hvíla í að minnsta kosti 15
mínútur.
Á meðan kjúklingurinn hvílir er
hitinn á ofninum hækkaður upp í
220°C og grænmetið bakað áfram
þar til það er orðið mjúkt og hefur
fengið fallegan lit.
Það er hægt að gera einfalda en
góða sósu til að bera fram með
kjúklingnum.
Sveppasósa
1 box sveppir, niðurskornir
2 hvítlauksrif
Olía og smjör
1 villisveppaostur
2-3 dl vatn
1 kjúklingateningur
Rjómi
Sojasósa
Salt, pipar og paprikuduft
Steikið sveppina og hvítlaukinn
á pönnu upp úr smjöri og olíu.
Þegar sveppirnir eru fullsteiktir
er smá sojasósu hellt yfir. Bragð-
bætið með salti og pipar.
Setjið 2-3 dl af vatni í pott
og hitið með kjúklingateningi.
Skerið ostinn smátt niður og setjið
út í vatnið. Látið malla á meðan
osturinn bráðnar.
Þá er sveppunum bætt í pottinn
og rjóma eftir smekk. Þykkið með
maizena ef þarf. Kryddið sósuna
með salti, pipar og papriku eftir
því sem þarf. Smakkið til.
Berið sósuna fram með
kjúklingnum og grænmetinu. Hér
er komin fullkomin máltíð fyrir
fjölskylduna.
Ofnbakaðar
kjúklingabringur með karrí
fyrir fjóra
4 kjúklingabringur
1 msk. smjör og olía til steikingar
1 laukur, gróft skorinn
1 rauð paprika, skorin niður
Sósa
3 dl rjómi
1 dl tómatsósa
2 tsk. karrí
Brúnið kjúklingabringurnar vel
á báðum hliðum í smjöri og olíu.
Bragðbætið með salti og pipar.
Þegar þær hafa náð fallegum
steikingarlit eru þær settar í eld-
fast form ásamt lauk og papriku.
Hrærið saman því sem á að fara
í sósuna og hellið yfir kjúklinga-
bringurnar. Bakið í ofni við 200°C
í um það bil 20-25 mínútur eða
þar til kjúklingurinn er full-
steiktur.
Berið fram með hrísgrjónum og
góðu fersku salati. n
Dásamlegir kjúklingaréttir fyrir helgina
Þorgeir Valur Pálsson, 49
ára lagerstjóri, hefur fundið
fyrir óþægindum vegna
svefntruflana í mörg ár. Þá
vaknaði hann að meðal-
tali tvisvar hverja nótt. Nú
tekur hann inn Sofðu rótt frá
ICEHERBS og sefur út alla
nóttina án þess að rumska.
Þorgeir byrjaði að taka inn Sofðu
rótt frá ICEHERBS fyrir rúmu ári
síðan eftir að hafa fundið fyrir
svefntruflunum í mörg ár. „Ég sef
alla jafna fast þegar ég sofna. En
svo rankaði ég vanalega við mér á
ákveðnum tímapunkti á nótt-
unni og átti oft erfitt með að festa
svefn aftur. Þá var ég að meðaltali
að vakna svona tvisvar sinnum
á nóttu, stundum til að pissa en
oftast virtist ekki vera nein sérstök
ástæða fyrir því,“ segir Þorgeir.
„Raunar tengi ég svefntruflan-
irnar ekki við neitt sérstakt, hvorki
kvíða né stress. Og það getur vel
verið að ég hafi alltaf verið svona,
en að með aldrinum finni ég meira
fyrir áhrifunum af svefnleysinu.
Ég byrjaði líka að finna sérstaklega
fyrir því hversu mikilvæg hvíldin
er eftir að ég fór að æfa meira í
líkamsræktinni, en ég byrjaði
að lyfta og æfa stífar fyrir fimm
árum.“
Fann mun á nokkrum dögum
Þorgeir var að ræða um nætur-
rumskið sitt og þá benti ein-
hver honum á að Sofðu rótt gæti
kannski hjálpað. „Fyrst keypti ég
mér eitt hylkjaglas til að kanna
áhrifin. Eftir að hafa tekið eitt
hylki á hverju kvöldi í nokkra
daga byrjaði ég að finna mun á
mér. Það tók mig nokkra daga
að fatta muninn, enda hafði ég
einstaka sinnum áður náð að sofa
út alla nóttina. En þarna náði ég
skyndilega, eftir margra ára svefn-
truflanir, að sofa fastasvefni alla
nóttina án þess að rumska, margar
nætur í röð.“
Sefur eins og lamb
„Í dag tek ég Sofðu rótt á hverju
kvöldi, um hálf ellefu, og steinligg
út alla nóttina þar til ég vakna um
morguninn. Ég hef aldrei viljað
fara á svefnlyf og finnst gott að vita
til þess að Sofðu rótt er náttúruleg
vara. Ég finn líka fyrir fótaóeirð á
næturnar og mest þegar ég er að
reyna að sofna. Þá finn ég sérstak-
lega fyrir því þegar ég hef tekið
vel á í rækinni þann daginn. Við
fótapirringnum tek ég magnesíum
og saman virka þessi tvö bætiefni
mjög vel á mig og ég sef eins og
steinn.
Ég finn líka fljótt mun ef ég
gleymi að taka hylkið. Nokkrum
mánuðum eftir að ég kynntist
Sofðu rótt gleymdi ég til dæmis
að taka inn hylki fyrir svefninn.
Sömu nótt vaknaði ég þrisvar
sinnum, sem hafði ekki gerst lengi.
Kvöldið eftir tók ég hylkið og svaf
eins og lamb,“ segir Þorgeir.
Náttúrulega slakandi og róandi
Náttúrulegar lausnir eins og
jurtir og lækningajurtir hafa verið
notaðar langt aftur í aldir um heim
allan. Fjölmargar rannsóknir hafa
verið gerðar, ekki klínískar þó,
en þær eiga það sameiginlegt að
sýna fram á virkni lækningajurta.
Flestar lækningajurtir eru skað-
lausar og því er greiður aðgangur
að þeim. Náttúrulegar lausnir
hafa lengi virkað vel á fjölmarga
enda er sú leið oft valin ef fólk vill
komast hjá lyfjanotkun. ICEHERBS
býður upp á náttúrulega lausn við
svefnvandamálum, en gríðarlega
stór hópur fólks velur að reyna
við náttúrulegar lausnir áður en
svefnlyf eru notuð.
Sofðu rótt í alla nótt
Sofðu rótt frá ICEHERBS inni-
heldur magnolíubörk og íslensk
fjallagrös. Saman virka þessar
tvær jurtir einstaklega vel til þess
að bæta svefn á náttúrulegan og
heilbrigðan hátt. Þessi öfluga
blanda hentar vel fyrir þá sem vilja
aðstoð við að ná betri, jafnari og
samfelldum svefni sem og bæta
andlega líðan.
Þessi magnaða jurt, magnolía,
hefur verið notuð um aldir við
þunglyndi, svefnvandamálum,
kvíða og streitu. Þá er hún þekkt
fyrir að virka almennt slakandi og
róandi, og á að bæta eðlilegan og
samfelldan svefn.
Rannsóknir á magnolíu hafa
sýnt fram á að hún inniheldur
virk efni, sem vitað er að hafi áhrif
á andlegt jafnvægi. Virku efnin
í magnolíuberkinum eru þann-
ig þekkt fyrir að örva boðefni
í heilanum og koma jafnvægi
á hormónið kortísón. Þau geta
virkað almennt slakandi og róandi
og bæta eðlilegan og samfelldan
svefn.
Sofðu rótt-blandan inniheldur
einnig íslensk fjallagrös sem eru
oft nefnd gingseng Íslands. Fjalla-
grös eru rík af steinefnum, einkum
járni og kalsíum. Fjallagrös hafa
verið þekkt fyrir vatnslosandi
áhrif sín og geta hjálpað til við
að draga úr bjúg. Þau innihalda
betaglúkantrefjar sem hafa reynst
vel við þyngdartap, geta bætt
meltingu og styrkt þarmana.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna í
hreina neytendavæna vöru fyrir
viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS
leggjum áherslu á að framleiða
hrein og náttúruleg bætiefni sem
byggja á sjálfbærri nýtingu nátt-
úruauðlinda. Við viljum að vör-
urnar okkar nýtist viðskiptavinum
okkar, að virkni skili sér í réttum
blöndum og að eiginleikar efnanna
viðhaldi sér að fullu. Þá notum við
enn fremur engin óþörf fylliefni.“ n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum og í nýrri
vefverslun á iceherbs.is.
Sefur rótt eftir margra ára svefntruflanir
Þorgeir Valur
var snöggur að
finna fyrir mun
á svefngæðum
eftir að hann
byrjaði að taka
Sofðu rótt frá
ICEHERBS á
hverju kvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Heilsteiktur
kjúklingur á
grænmetisbeði
er mjög góður
réttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
4 kynningarblað A L LT 21. janúar 2023 LAUGARDAGUR