Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.01.2023, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 28.01.2023, Qupperneq 8
Toni Omos hafði stöðu sakbornings í málinu í vel á áttunda ár. kristinnhaukur@frettabladid.is dómsmál Tony Omos, innf lytj- anda frá Nígeríu, voru á fimmtudag dæmdar bætur upp á 1,5 milljónir króna vegna framgöngu lögreglunn- ar gegn honum fyrir rúmum áratug. Ofan á þetta leggjast vextir frá árinu 2014 og dráttarvextir frá árinu 2021. „Við erum að skoða hvort við áfrýjum málinu. Við erum líka að bíða og sjá hvað ríkið gerir,“ segir Kristján Ágúst Flygenring, lögmað- ur Tony, en krafan hljóðaði upp á 4 milljónir króna. Fréttablaðið greindi frá aðalmeð- ferð málsins fyrr í þessum mánuði. Tony var vistaður í gæsluvarðhaldi í rúmar tvær vikur og hafði stöðu sakbornings í vel á áttunda ár. Hann var sakaður um að stunda mansal. Málið var á endanum látið niður falla hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Í aðalmeðferðinni benti Kristján Ágúst á að sönnunargögn í málinu hefðu verið af verulega skornum skammti og meðalhófs ekki verið gætt. Eftir skýrslutöku árið 2013 hefði ekkert gerst sem réttlætti að Tony hefði stöðu sakbornings í mörg ár á eftir. Mál Tony komst í deiglu fjöl- miðla eftir að Gísli Freyr Valdórs- son, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, lak upplýsingum um rannsóknina í fjölmiðla. Það er hið svokallaða lekamál. Að lokum var Gísli Freyr dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og Hanna Birna sagði af sér emb- ætti. n Áður hafði áhugi Reykjanesbæjar á vina- bæjarsamstarfi verið kannaður en það var afþakkað. Lögmenn sem Frétta- blaðið ræddi við telja ákvæðið heimila fund lögmanns með einu vitni en ekki með hópi vitna. Bæturnar eru 1,5 millj- ónir króna auk vaxta frá árinu 2014. H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Hljóðritasjóður Umsóknarfrestur er til 15. mars kl. 15.00 Auglýst er eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð, fyrri umsóknarfrestur 2023. Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist. Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs. Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum. Útgáfa má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn um styrk berst Hljóðritasjóði. Umsóknargögn er að finna rannis.is. Lokaskýrslum skal skilað rafrænt. Rannís, Borgartúni 30, sími 515 5838, hljodritasjodur@rannis.is. Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist til útgáfu. Veiðimaður með 108 sentímetra lax úr Hnausastreng. Mynd/Vatnsdalsá FB gar@frettabladid.is veiði Ákvörðun Fiskistofu um að fara ekki fram á að grjótgarður við hinn geysigjöfula laxveiðistað Hnausastreng í Vatnsdalsá verði fjarlægður hefur verið felld úr gildi. Þetta er niðurstaða úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlinda- mála sem barst kæra frá hluta land- eigenda við Vatnsdalsá sem telja Veiðifélag Vatnsdalsár hafa lengt grjótgarðinn verulega umfram ákvæði leyfis sem gefið var út af Landbúnaðarstofnun 2007. Það voru eigendur jarðanna Grímstungu, Hjarðartungu og Kvisthaga sem kærðu ákvörðun Fiskistofu um að hafast ekkert að vegna grjótgarðsins. Segja þeir grjót- garðinn hafa áhrif á dreifingu lax- veiði í Vatnsdalsá til hins verra fyrir sínar jarðir. Fram kemur að hlutur Hnausastrengs í heildarveiðinni í ánni virðist hafa aukist úr 27 pró- sentum í 36 eftir tilkomu garðsins. Fiskistofa sagði eðlilegra að horfa til veiði á öllum svæðum ofan Hnausastrengs samanlagt til að meta hugsanleg áhrif garðsins. Gögn styddu ekki að garðurinn tálmaði för laxa upp ána. Veiðifélag Vatnsdalsár sagði garð- inn hafa verið gerðan vegna mikils þrýstings frá leigutaka árinnar. Veiðimenn með langa reynslu af ánni hafi lagt mikla áherslu á að eitt- hvað yrði gert til að bæta Hnausa- streng. Fram kemur í umfjöllun úrskurð- arnefndarinnar að Fiskistofa hafi kært málið til lögreglu sem hafi fellt það niður en ríkissaksóknari mælt fyrir um nýja rannsókn. Úrskurðar- nefndin segir Fiskistofu ekki hafa lagt fullnægjandi mat á málið og sé ákvörðun stofnunarinnar um að aðhafast ekkert felld úr gildi. n Rannsaki grjótgarð við einn gjöfulasta laxveiðistað landsins Tony Omos fær bætur frá íslenska ríkinu Stjórnarmenn Lindarhvols og lögmaður ríkisins í Lindar- hvolsmálinu hittust á fundi í Seðlabankanum og undir- bjuggu vitnisburði sína í mál- inu. Meðal fundarmanna var sitjandi hæstaréttardómari. olafur@frettabladid.is dóm s m ál Við aðalmeðferð í Lindarhvolsmálinu, sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni, kom í ljós að Steinar Þór Guðgeirs- son lögmaður hafði verið „nánast allt í öllu“ hjá Lindarhvoli ehf., eignarhaldsfélaginu sem fjármála- ráðherra stofnaði til að annast og selja stöðugleikaeignir sem slitabú föllnu bankanna afhentu ríkinu. Lindarhvoll var rekinn frá lög- fræðistofu Steinars Þórs, sem hafði yfirráð yfir bæði netfangi og síma félagsins. Fram kom að hvorki Steinar Þór né stjórn félagsins gerðu tilraun til að verðmeta eignirnar sem félagið annaðist og seldi. Í vitn- isburði Sigurðar Þórðarsonar, fyrr- verandi ríkisendurskoðanda, kom fram að Klakki ehf., en Lindarhvols- málið snýst um meinta annmarka í söluferli Klakka, var seldur á hálfan milljarð þegar raunverulegt verð- mæti félagsins var milljarður. Sigurður varpaði einnig fram þeirri spurningu hvers vegna ríkið hefði stofnað þetta eignarhalds- félag þar sem Steinar Þór Guð- geirsson var „nánast allt í öllu“. Af vitnisburði Steinars Þórs og ann- arra vitna virðist sem stjórn Lindar- hvols hafi lítið sinnt þeirri skyldu sinni að gæta hagsmuna eiganda félagsins, íslenskra skattgreiðenda. Steinar hafi leikið nokkuð lausum hala við ráðstöfun gríðarlega verð- mætra eigna félagsins. Eitt vitnið í Lindarhvolsmálinu lýsti söluferli Klakka sem „sjoppu- legu“ og gerólíku því sem tíðkast með söluferli eigna almennt. Venjan væri að seljendur reyndu að verðmeta eignirnar til að fá sem hæst verð fyrir þær. Svo hefði ekki verið í tilfelli Lindarhvols varðandi Klakkasöluna. Raunar hefði virst sem enginn áhugi væri á að fá til- boð í eignina. Samkvæmt þessu virðist stjórn Lindarhvols hafa brugðist því grundvallarhlutverki sínu að gæta hagsmuna eiganda félagsins. Í kjölfar bankahrunsins voru stjórnendur og stjórnarmenn föllnu bankanna sóttir til saka og meðal annars ákærðir og dæmdir fyrir umboðssvik á þeim grunni að þeir hefðu ekki gætt hagsmuna eigenda bankanna. Þrír sátu í stjórn Lindarhvols ehf. Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu til áratuga, var stjórnarformaður. Aðrir stjórnar- menn voru Ása Ólafsdóttir, þá dós- ent við lagadeild Háskóla Íslands, og Haukur Camillus Benediktsson, þá framkvæmdastjóri Eignasafns Seðlabanka Íslands. Þórhallur hefur síðan látið af störfum fyrir aldurs sakir, en Ása var skipuð hæstaréttardómari árið 2020 og Haukur var ráðinn fram- kvæmdastjóri fjármálastöðugleika- sviðs Seðlabankans árið 2019. Þau þóttu bæði hæfust umsækjenda um þær stöður. Óvíst er hvort hæfnis- nefnd hefur horft sérstaklega til stjórnarstarfa þeirra í Lindarhvoli við mat á hæfni þeirra. Athygli vakti að fram kom í mál- flutningi að öll stjórn Lindarhvols hefði, ásamt Steinari Þór Guðgeirs- syni, lögmanni ríkisins, og Esther Finnbogadóttur, sem sat í vara- stjórn Lindarhvols, komið til fundar í húsi Seðlabankans í aðdraganda aðalmeðferðar málsins til að rifja upp málið. Öll fimm eru lykilvitni í málinu en vitnum er óheimilt að bera saman bækur sínar áður en vitnisburður er gefinn fyrir dómi. Í 3. málsgrein 21. greinar siða- reglna lögmanna segir: „Lögmanni er heimilt að hafa samband við vitni í máli til að kanna hvað það getur borið um atvik og, ef því er að skipta, til að gera því kleift að búa sig undir vitnaleiðslu … Hafi lögmaður samband við vitni ber honum að gæta viðeigandi tillits- semi og forðast að hafa áhrif á fram- burð vitnisins.“ Lögmenn sem Fréttablaðið ræddi við telja ákvæðið heimila fund lög- manns með einu vitni en ekki hópi vitna, og hvað þá þegar lögmaður- inn er sjálfur vitni í málinu. Athygli vekur að sitjandi hæstaréttardóm- ari sat þennan fund. Viðmælendur Fréttablaðsins úr lögmannastétt vildu ekki tjá sig undir nafni en telja hæstaréttardómara eiga að vita betur en að sitja svona vitnafund. n Vitni stilltu saman strengi kristinnpall@frettabladid.is H a f n a r fj ö r ð u r B æja r st jór i úkraínska smábæjarins Tsjortkív, Volodímír Shmatko, sendi Hafn- arfirði beiðni um vinabæjarsam- starf sem var tekið fyrir á nýjasta fundi bæjarráðs. Áður hafði áhugi Reykjanesbæjar á vinabæjarsam- starfi verið kannaður en það var af þakkað. Verkefnastjóri menningar- og markaðsmála í Hafnarfirði, Andri Ómarsson, sagði vinabæjakeðjuna sem Hafnarfjörður er hluti af með það til skoðunar að bjóða úkra- Sendu aðra beiðni um vinabæjarsamstarf Rósa Guðbjarts- dóttir, bæjar- stjóri Hafnar- fjarðar Steinar Þór Guðgeirsson lögmaður og vitni í Lindarhvolsmálinu. FRÉttaBlaÐIÐ/ERnIR ínskum bæ inn í hópinn. Í beiðn- inni kemur fram að Tsjortkív hafi aðstoðað 3.452 Úkraínumenn á f lótta undan árásum Rússa ásamt því að verða fyrir eldf laugaárás þann 11. júní síðastliðinn þar sem 438 íbúðir skemmdust. Shmatko sagðist vonast til að hefja vinabæjasamstarf á ýmsum sviðum ásamt því að bjóða Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafn- arfjarðar, í heimsókn til Tsjortkív. n 6 fRéTTiR FRÉTTABLAÐIÐ 28. jAnúAR 2023 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.