Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.01.2023, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 28.01.2023, Qupperneq 40
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringarþerapisti og bóka- höfundur, segir að góð heilsa og hollusta sé byggð á öruggum og sterkum stoðum og þær mikilvæg- ustu séu mataræði, líkams- rækt, hugrækt og viðleitni. sjofn@frettabladid.is Þorbjörg er næringarsérfræðingur, heilsuráðgjafi og lífsþjálfi með 30 ára reynslu að baki. Hún hefur hjálpað fólki og gefið innblástur um heilsusamlegan lífsstíl í einka- tímum, í bókunum sínum, í fyrir- lestrum og á námskeiðum um ára- bil og nýtur sín í þessu hlutverki. „Mín reynsla er sú að góð heilsa og hollusta er byggð á öruggum og sterkum stoðum og þær mikil- vægustu eru mataræði, líkams- rækt, hugrækt og viðheldni,“ segir Þorbjörg og sjálf reynir hún að halda vel í þessar stoðir. Við fengum Þorbjörgu til að segja okkur hvernig hefðbundinn dagur hjá henni er þegar kemur að því að fá sér næringu og einnig fengum við hana til að deila með lesendum uppskrift að einum af sínum uppáhaldsréttum sem á vel við í vetrarhörkunum þessa dagana. Lágkolvetnamataræði virkar vel „Ég borða bólgustemmandi lágkol- vetnamataræði svipað því sem ég skrifa um í Ketóflex 331 bókinni. Mataræðið virkar einstaklega vel til að ná tökum á yfirdrifinni sykurneyslu og -fíkn, á ójafnvægi á blóðsykri og til að örva fitu- brennslu og létta sig. Ég hef sjálf verið veik fyrir sykri allt mitt líf og tel að sykur- og matarfíkn sé oft misskilin sem „bara“ stjórnleysi. Til að sporna við að sykurlöng- unin taki stjórn og að „detta í það“, er mín reynsla og besta ráð við- heldni og rútína með líkamsrækt, jóga og kolvetna snauðu mataræði sem inniheldur nóg af hollri fitu og prótínum. Það, meðal annars, róar taugakerfið og mettar og persónulega er ég mun orkumeiri og hausinn bullar ekki og sljóvgar vitund eins og gerist á sykri. Þvert á móti verður skýrleiki og fókus og það ástand hentar mér og þeim sem fylgja mínum ráðum betur. Rútínan og reglusemi er nauðsyn- leg til að stjórna því sem er undir okkar stjórn. Það er ekki hægt að gera eitthvað bara stundum og þegar maður er í stuði, það eru tvö skref áfram og eitt tilbaka og ekkert gerist. Margir verða pirraðir og vonsviknir á sjálfum sér og gefast upp. En það er ekki sanngjarnt, gagnvart sjálfum sér, enginn verður óbarinn biskup og það þýðir ekkert að væla en bara prófa aftur og aftur þangað til rútínan verður komin í DNA- for- ritið,“ segir Þorbjörg þegar hún er spurð út í hvaða mataræði hún aðhyllist. „Hvað maður borðar er mikil- vægt en hvenær er kannski það allra mikilvægasta. Tímabundin fasta er áhrifarík leið, fyrir f lesta, til að stilla blóðsykur og auka fitubrennslu. Líkamsrækt og hreyfing er nauðsynleg, líkaminn er hannaður til að hreyfa sig. Ég er svo heppin að finnast gaman að hreyfa mig og mæti þrisvar í viku í HIIT (high intensy interval training) útitíma, hvernig sem viðrar. Líkamsrækt er hluti af minni „biohacking“ ástundun og þar á meðal er jóga, hitinn í gufu og sund í köldum sjó.“ Þyngri matur yfir veturinn „Í byrjun árs finnst mér gott að núllstilla mig í nokkra daga á föstu-líku mataræði. Það er með í námskeiðunum mínum og mörgum finnst fastan góður undirbúningur fyrir að breyta um eða fara aftur á gott mataræði í kjölfarið. Það gerist svo margt f lott í frumunum á föstu sem meðal annars fá tækifæri til að hreinsa og endurnýja sig.“ Þorbjörg segist yfirleitt borða þyngri mat yfir veturinn. „Meira kjöt, heitar súpur, pottrétti, soðið, ofnbakað. Á vorin og sumrin er meira úrval af góðu fersku græn- meti sem ég borða fullt af og meira af fiski og minna af kjöti.“ „Dagurinn minn er ósköp ein- faldur en afar reglusamur. Ávallt líkamsrækt klukkan 7, þá fæ ég mér kollagenduft í vatn áður. Sjaldan morgunmatur, nema smjörkaffið mitt góða, fasta yfir- leitt til hádegis. Í hádeginu er annað hvort afgangar frá kvöld- mat peppað upp með salati og káli og slatta af góðri ólífuolíu, eða salatskál eða heitt salat; kál, kúrbítur, laukur, sveppir, tóm- atur og f leira, steikt á pönnu og alltaf prótín, til dæmis kjúklingur, egg, rækjur eða túnfiskur. Ef ég á ekkert á ég samt alltaf dós af gæða sardínum í ólífuolíu uppi í skáp og borða með harðsoðnum eggjum. Ekkert að vera að flækja þetta,“ segir Þorbjörg og bætir við að það skipti líka máli að nýta það sem til er. „Ég borða sjaldan millibita, þarf þess ekki, en drekk te, vatn, kaffi og borða kannski einn 85% Sykur- og matarfíkn oft misskilin Þorbjörg aðhyllist bólgustemmandi lágkolvetnamataræði sem hefur reynst henni afar vel. Hún hefur gefið fólkið inn- blástur fyrir heilsusamlegan lífsstíl í hartnær 30 ár. MYND/AÐSEND Dýrðlegur þessi chili con carne-réttur og á vel við á þessum árstíma. súkkulaðibita. En það er ekki alveg meitlað í stein, ég fæ mér líka stöku sinnum ís eða köku með börnunum eða vinkonunum á kaffihúsi. Kvöldmatur er ekki seinna en klukkan 19 og getur verið fiskur, kjúklingur, kjöt, lambalifur, eggjahræra og alltaf grænmeti með. Á mínum borðum er fjölbreyttur matur en aldrei pasta. Heimalöguð pitsa á föstu- dögum og ég skelli oft í vöfflur eða pönnsur um helgar (þær eru sykur- og glútenlausar) og býð börnum og barnabarni í mat og þeim finnst, sem betur fer, ömmu- maturinn góður og borða allt. En það verður að vera sósa. Einn af mínum uppáhalds- réttum á þessum árstíma er chili con carne og mig langar að deila uppskriftinni minni að honum með ykkur,“ segir Þorbjörg að lokum. Hægt er að fylgjast með því sem Þorbjörg er að gera og nám- skeiðunum hennar á heimasíðu hennar, ketoflex.is. Chili con carne 4–5 skammtar 800–1.000 g hakkað nautakjöt eða lambakjöt 1 dós / 140 g tómatkraftur 400 g (ein dós) lífrænar nýrna- baunir eða svartar baunir eða kjúklingabaunir. Ef notaðar eru þurrkaðar baunir skal leggja þær fyrst í bleyti í 12 klukkustundir og sjóða svo í 1 klukkustund. 2 miðlungsstórir laukar, fínhakk- aðir 2 hvítlauksrif, hökkuð smátt Ólífuolía eða smjör til að steikja úr 1 tsk. cayenne-pipar 2–3 tsk. rautt chili duft /fræ 2–3 tsk. kúmen 1 msk. þurrkað óreganó 1 tsk. vanilluduft 2 tsk. reykt paprikuduft (smoked paprika) 3–400 ml vatn 1 msk. grænmetisduft 2–3 tsk. flögusalt /sjávarsalt Nýmalaður svartur pipar Laukur og hvítlaukur brúnaður í olíu. Kjötið og allt kryddið sett út í og haldið áfram að steikja og hræra í hráefninu. Vatni og tómatkrafti bætt út í og allt hrært vel saman. Látið malla í hálf- tíma. Baunirnar settar út í og látið malla áfram í 15 mínútur. Smakkið til hvort vantar meira af til dæmis salti eða pipar. Berið fram rjúkandi heitt og toppið með 1 matskeið af rjómaosti eða 36% feitum sýrðum rjóma og saxaðri steinselju eða kóríander. Tilvalið að hafa blómkálshrísgrjón með þessu. n Dagurinn minn er einfaldur en reglu- samur. Ávallt líkamsrækt klukkan 7, þá fæ ég mér kollagenduft í vatn áður. Sjaldan morgunmatur, nema smjörkaffið mitt góða, fasta yfirleitt til hádegis. 4 kynningarblað A L LT 28. janúar 2023 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.