Fréttablaðið - 28.01.2023, Page 62
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Óttars
Guðmundssonar
bakþankar |
Á unglingsárum mínum á sjöunda
áratugnum varð hippahreyfingin
mjög áberandi. Menn gagnrýndu
ríkjandi þjóðfélagskerfi og prédik
uðu nýjan lífsstíl. Tim Leary og
fleiri gúrúar boðuðu fagnaðarerindi
skynörvandi og hugvíkkandi efna
til að losa um gamlar hömlur og
kreddur. Þessar kenningar náðu flugi
en margir efuðust og hugbreytandi
efnin voru smám saman bönnuð.
Allt fer í hringi og nú hafa ofskynj
anaefni gengið í endurnýjun lífdaga
sem töfralausn við öllum mögu
legum geðkvillum. Fjölmargir hafa
vitnað um lækningamátt þessara
efna. Engar óyggjandi rannsóknir
liggja þó fyrir um yfirburði þessara
efna gagnvart öðrum meðferðar
úrræðum. Geðlæknar vara við
auglýsingamennsku og popúlisma
í kringum þessi efni þar sem þau
séu á engan hátt fullrannsökuð.
Margir gamlir fíklar hafa barist fyrir
notkun hugbreytandi lyfja. Neysla
ofskynjunarefna í lækningaskyni
hljómar mun betur en hversdagsleg
misnotkun. Enn og aftur er í tísku að
kafa í sálardjúpin og finna sjálfan sig
og tala í innihaldslausum frösum.
Fyrir Alþingi liggur tillaga þess
efnis að Ísland verði leiðandi í
rannsóknum á hugvíkkandi efnum.
Þessi tillaga ber vott um forræðis
hyggju og æpandi vanþekkingu á
eðli vísindarannsókna. Það er í tísku
að kasta rýrð á hefðbundnar geð
lækningar. Viðkomandi þingmenn
vilja vera hipp og kúl og boða nýtt
fagnaðarerindi.
Gamlir læknar hafa lært á langri
ævi að það eru engar töfralausnir til.
Öll lyf hafa sínar aukaverkanir. Frjáls
og óheft notkun ofskynjanaefna til
lækninga yrði fljót að snúast upp í
andhverfu sína. Tilraunastarfsemi
Timothy Learys rann út í sandinn
fyrir nokkrum áratugum og hætt er
við að þessi bylgja fari sömu leið. n
Allt kemur aftur
©
Inter IKEA System
s B.V. 2023
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
Skoðaðu
eldhús hér!
Eftir þínum
smekk
Hvort sem þú vilt glænýtt eldhús eða
lífga aðeins upp á það þá getur þú valið
úr breiðu úrvali af þjónustuleiðum og
framhliðum í IKEA. Nýttu þér aðstoð frá
teikniþjónustunni sem finnur bestu
lausnina eftir þínum smekk
– þjónustan er ókeypis!TOLLSJÖN
blöndunartæki
35.950,-
UPPLÖV hurðir
B60�H80 cm
14.950,-/stk.
UPPLÖV skúffuframhliðar
B60�H40 cm
8.950,-/stk.
KILSVIKEN vaskur
með vatnslás
B56�D46 cm
38.450,-
+
Heilsu- & lífsstíls-
dagar Nettó
Gleðilegt
nýtt
heilsuár!
25%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
OG APPTILBOÐ Á
HVERJUM DEGI
26. janúar - 5. febrúar
Skannaðu
QR-kóðann
og náðu
í blaðið