Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 25

Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 25
við hlið mér, og sé í sama mund að þar er kominn gamall sálufélagi úr mörgum veiðiferðum. — Það er naumast að þú ert niður- sokkinn. Ég er búinn að sitja hér lengi, sagði hann. Hvað hefurðu nii gert af þér? — Nú, ég er að skoða haustið, maður, svaraði ég. En komdu nú heim með mér. Við skulum fá okkur kaffisopa og rabba saman um stund. Og svo segir þú mér auðvitað eina góða veiðisögu um leið. Við sátum lengi yfir kaffinu, og rifj- uðum upp ýmsa gamla og kynlega at- burði frá grænum bökkum Laxár. Tím- inn leið, og birtu var tekið að bregða. Við fórum að tala urn snjólínuna í vest- urfjallinu, sem færist hægt og markvisst neðar og neðar. Hann sagðist vona að hann ætti eftir að vera á stað þar sem engin snjólína mjakaðist að úr öllum átt- um, allt inn að innstu hjartarótum. Ég setti nokkur tár í glös og fór að ympra á sögunni. Hann byrjaði ekki al- veg strax, en svo fóru orðin að koma hægt og liægt, og innan stundar viðstöðulaust. Ég skráði sögu hans, eftir minni, strax og hann var farinn, og sé einhvers staðar liallað réttu máli, er misminni um að kenna, en ekki frásagnargleði. Hann hef- ur þá venju að segja frá atburðum eins og þeir séu í raun og veru að gerast; og ég held því hér. Saga hans var svona: Morguninn, senr við svo lengi höfðum þráð og beðið eftir, er loks upprunninn. Að vísu er veðrið ekki eins og bezt verð- ur á kosið. Drungaleg ský hanga niður í mið fjöll, og það hefur rignt dálítið. Samt er sýnilegt að þessi gráhula muni kemb- ast af, er fram á daginn kemur. Við erum tveir félagarnir, sem stönd- um við veiðiheimilið, og búum okkur undir að mæta mörgum góðum ævintýr- um á löngum degi. Okkur kemur sam- an um að ekkert sumar megi líða svo að við komum ekki á alla veiðistaðina við ána okkar, sem við svo köllum. Margt vetrarkvöldið hafði veiðiferð þessi verið rædd, og miklar áætlanir gerðar. Það er alltaf ólýsanlega ljúft að koma á eftirlætis veiðistaðina sína, í fyrsta sinn á sumrinu. Það er rétt eins og að hitta kæran vin eftir vetrarlangan skilnað. Margir og góðir veiðistaðir rnunu bjóða okkur velkomna í dag. Bifreið okkar rennur úr hlaði, á vit okkar vetrardrauma. Vegurinn er dökk- ur eftir vætuna, þar sem hann hverfur undir bílinn. Grasið á vegköntunum sýnist óvenju ljósgrænt, i þessu gráa upp- liafi ógleymanlegs dags. Brýr eru að baki, og hraun tekur við. Síðan kemur beini vegurinn, — Nú eru fimm mínútur eftir, segir sessunautur minn, þegar við beygjum af aðalveginum. Líklega tekur hann núna, bætir hann við, og reynir að láta sem ekkert sé. En ég lieyri að það er eftirvænting í röddinni. Óvissa, sexn dagurinn fær skor- ið úr. Ég tek því mjög líklega, því vongóðir liafa veiðimenn löngum verið. Enda all- oft þurft á þeim góða eiginleika að halda. Hliðið er opnað og ekið milli kirkju og bæjar. Það er ekki farið að rjúka enn- þá, enda er klukkan ekki nema hálf sjö. Við setjum saman stengurnar á bakk- anum. Félagi minn ætlar að byrja hér við kvíslina, þar sem hinn fagri hólmi skiptir ánni. Eg geng lítið eitt lengra niður með, Vf.iðimaðurinn 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.