Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 54

Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 54
mjög misjöfn. Sumir flokkarnir fá gott fluguveður og tært vatn, en aðrir ekki. Þó er víða auðsætt, að sumir hafa slegið slöku við fluguna. Skulu nokkur dæmi nefnd þessu til sönnunar: Einn átta manna flokkurinn fékk 67 laxa. Af þeim veiddust 34 á flugu, eða 51%. Sex stengurnar veiddu 49 af þess- um 67 löxum og þar af alla flugulaxana nema einn. M. ö. o., þessar sex stengur fengu tæp 67% af sinni veiði á flugu, á móti 5i%% hjá hinum tveimur. Einn maðurinn í þessari sveit veiddi 10 laxa, þar af 9 á flugu. Allt voru þetta vanir veiðimenn, og því verður að álykta, að þessir tveir hefðu átt að geta veitt á flug- una eins og hinir, eða a. m. k. talsvert meira en einn lax af 18. Annar hópur veiddi 33 laxa, þar af 20 á flugu, eða um 61%. Einn maðurinn í þessum hópi fékk 9 laxa, alla á flugu. Þriðji hópurinn veiddi 77 laxa, þar af 47 á flugu, eða um 61%, eins og hinn. Einn þessara manna fékk 14 laxa, þar af 10 á flugu, eða um 71%. Tveir fengu 13 laxa hvor, annar þeirra 8 á flugu, en hinn aðeins 4. Einn fékk 10 laxa, alla á flugu. Öll þessi dæmi sýna, að skilyrði til fluguveiði hafa verið góð, þótt sumir veiðimennirnir notuðu sér þau ekki. Sé ástæðan sú, að þeir vantreysti sér með fluguna, ættu þeir sem fyrst að reyna að losna við þá hræðslu, en það tekst þeim ekki, nema þeir fari að nota flugu að staðaldri og sætti sig við að missa ef til vill nokkra laxa fyrst í stað, meðan þeir eru að ná réttu tökunum á henni. Eftir það munu þeir komast að raun um, að flugan heldur yfirleitt eins mörgum löx- um og maðkurinn, ef gætilega er þreytt og landað. Norðurá er tvímælalaust ein at' allra skemmtilegustu fluguám landsins. Hún er hvergi óveiðandi með flugu. Má því til sönnunar minna á, að menn liafa meira að segja fengið lax á flugu bæði í Drottningarhyl og Klingenberg. Það væri því ekkert undrunarefni þótt hlut- föllin milli maðksins og flugunnar ættu eftir að verða öfug við það sem verið hefur, þ. e. að fluguveiðin yrði milli 60 og 70%, en maðkveiðin 30—40%, eftir atvikum. Menn segja stundum, þegar þetta berst í tal: Það er nú víðar pottur brot- inn en í Norðurá. Ekki er fluguhlutfall- ið t. d. upp á marga fiska hjá ykkur í Laxá í Aðaldal. Ekki skal því neitað, að hægt væri að veiða meira á flugu en gert er þar sums staðar. En við samanburð á þessum ám, þarf þó að hafa í huga, að í Laxá er 35 —40% af veiðinni á stöðum þar sem kalla má að ekki sé hægt að veiða á flugu. Nærtækasta dæmið er veiðin í ánni s. 1. sumar. Alls veiddust þar 1090 laxar, og af þeim 420, eða tæp 40% fyrir neðan Æðarfossa, þar sem heita má vonlaust að fá lax á flugu, nema þá helzt á Breið- unni. Kæmi einhvern tíma til þess, að hætt yrði að veiða á þessum hluta árinn- ar, mætti ef til vill fara að bera hana saman við Norðurá sem fluguá, en fyrr ekki. Á svæðinu fyrir ofan Æðarfossa er, eins og kunnugir vita, hver flugu- staðurinn af öðrum, og sumir þeirra svo fallegir, að fáar ár hafa upp á sambæri- legt að bjóða. Hitt er svo annað mál, að víða þarf þar nokkuð löng köst, sem ekki Vf.iuimapurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.