Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Side 26

Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Side 26
þar sem áin er komin saman, eins og óendanlegur leyndardómur. Hér er minn staður, og héðan á ég margar dýrlegar minningar. Vatnadísin, sem hér hefur aðsetur, lofaði mér eitt sinn að ég skyldi alltaf verða var á flug- una mína úti á flúðinni. Þoka næturinnar er nú óðum að hverfa, og himinninn að verða blár og fagur. Ég stendu og horfi út á vatnið. Það er merlað grænum lit, frá bröttum ásnurn hinumegin. Yfir ásnum hvílir mógræn hula, tæpast nógu dökk til að íeljast skuggi. Sólin er ekki ennþá komin á fæt- ur eftir örskamman svefn, en er sjálfsagt farin að hlakka til að skína á sumardal- inn prúða, sem unir liljóður í skarti sínu, og hlustar með mér á kliðmjúkan nið árinnar. Unaðsleg dul hvílir yfir vatninu svona snemma morguns. Þá er það mettað leynd, og saman við nið þess blandast hörpusláttur vatnadísanna sjálfra. Kitlandi liugsun smýgur inn í huga minn á hátíðlegri stundu. Skyldi hann ekki taka núna? Ég hrindi frá mér hinni veraidiegu ásókn. Hér, frammi fyrir opinberun slíkrar fegurðar sæmir ekki að rjúfa stemninguna, og skemma hinn silfraða. flöt vatnsins. Hvaða flugu ætti maður að reyna fyrst? Jafnvei hér, nú á þessari fögru morg- unstund, þurfa hinar veraldlegu hugsanir hversdagsleikans að fylgja manni eins og skuggi. Slík er forherðingin, sem vér höfum tamið oss. Hví get ég ekki fallið í faðm náttúrunnar, gleymt dagsins önn, og endurnært sálu mína? — Farðu að renna, karlinn. Til hvers ertu kominn hér? Hann tekur núna. Mér heyrist einhver hvísla þessu í eyra mér, en enginn er sjáanlegur. Mig langar til að svæfa veiðieðlið og gleyma fiskinum fagra, aðeins í þetta eina sinn — einu sinni á ævinni. En ásóknin ágerist, og hinn mjúki klið- ur árinnar beinir augurn mínum til sín. Hún virðist ekki renna áfram eins og venjulega, heldur frernur síga fram eins og dregin á ósýnilegu bandi. Hið óhjákvæmilega lilýtur að ske, og ég hnýti fluguna á girnið, hægum, hik- andi liöndum. Ég vel mér Blue Charm nr. 2. Það er góð fluga, og reisir oft fisk. Hvernig manni er innan brjósts á slík- um stundum er tæpast hægt að lýsa. Hin lokkandi eftirvænting er svolítið blandin órósemi óvissnnnar. Það virðist nálgast helgispjöll að skemma þetta fagra vatn. Laxinn stekkur ekki, til þess að hrukka ekki flötinn slétta. Jafnvel vindarnir áræða ekki að rjúfa friðinn, og ýfa gyll- inguna djúpu. Með tregablandinni eftirsjá nokkurra dýrlegra augnablika, læt ég fluguna snerta hið slétta vatn. Hún er þurr, og fjaðrirnar fljóta aiveg ofan á, eins og þær tími ekki að bleyta sig. Ég virði fyrir mér livernig flugan líður fram í sveig, og upp að grænum bakkanum. Köstin smá lengjast, og flugan sekkur nú alveg. Gam- alkunn kennd gerir vart við sig. Það er veiðihugurinn blessaður, sem streyinir um mig allan. Hann þýtur um eins og eldur. Friðhelgi og kyrrð hinnar fögru morgunstundar hefur verið svipt á braut. Hvað skyldu vatnadísirnar muna mér mörgum í dag? Ég kasta vel fram á flúð- 16 Veibimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.